Fréttablaðið - 09.05.2007, Qupperneq 56
Fyrir sekúndubroti af jarð-lífssögunni höfðu konur ekki
kosningarétt og stuttu áður aðeins
fáeinir framámenn. Lýðræðið er
þannig ekki náttúrulögmál, held-
ur viðkvæm áunnin réttindi, sein-
leg í framkvæmd, kostnaðarsöm
og oft ósanngjörn fyrir marga.
Alls kyns gallar skjóta upp koll-
inum, til dæmis þegar ponsulít-
ill flokkur kemst sífellt í oddaað-
stöðu og fær völd langt umfram
umboð.
er fátt eins spennandi og
kjördagur. Eins og manneskja af
annarri kynslóð er ég í hátíðar-
skapi frá morgni til kvölds, fer í
skárri fötin og set á mig púður og
varalit fyrir ferðalagið á kjörstað.
Stemning sameiningar og náunga-
kærleika lyftir mér um stund
á hærra plan, næstum eins og í
vel heppnaðri landssöfnun fyrir
góðu málefni. Mér tekst jafnvel
að gleyma því að sumir hinna við
kjörklefann hugsa sér mögulega
að kjósa aðra flokka en ég.
hátíðarandi blæs
lífi í vordaginn þegar Eurovision-
keppnin fer fram þó ég sé ekki
nógu mikill aðdáandi til að hafa
séð hana samfellda síðustu ára-
tugina. Þennan dag er samt upp-
lagt að æsa upp keppnisskapið
með því að raula íslenska lagið,
bjóða hávaðasömum gestum með
börn í Eurovisionpartí, grilla eitt-
hvað virkilega flókið og missa í
látunum af sjálfri keppninni nema
kannski eigin framlagi og fáein-
um glefsum af annarra.
maður hefur treyst á
þessa tvo tyllidaga – kosning-
ar og Eurovision – á vori síns til-
breytingarsnauða lífs er auðvit-
að glæpsamlegt að svippa þeim
saman í einn. Sama daginn þarf
maður nú að punta sig, kjósa, taka
á móti gestum, grilla baki brotnu
og vera með hnút í maganum út af
alls kyns úrslitum. Þetta hljómar
nú ekki mikið svona í einni setn-
ingu en getur verið virkilega lýj-
andi í framkvæmd. Svona eins og
ef jólum og páskum væri steypt
saman og fólk yrði að vinda sér
beint úr pökkunum í páskaeggið.
– eða vegna þess –
að Ségolène Royal hafi ekki náð
alla leið, Hillary Clinton eigi lang-
an veg fyrir höndum, launamis-
rétti kynjanna sé enn eins og arfi
í þjóðmenningunni og íslensk-
ar konur verði í hæsta lagi milli-
stjórnendur – þá getum við á laug-
ardaginn nýtt gullið tækifæri til
að kjósa fyrstu konuna sem for-
sætisráðherra á Íslandi.
Jöfn og frjáls
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
T
O
Y
3
70
03
0
5/
07
engin útborgun
Það hefur aldrei verið þægilegra að eignast Aygo. Núna þarftu ekki að hafa áhyggjur af neinu nema að keyra bílinn – við sjáum um restina.
Aygo. Engar áhyggjur.
Ofkeyrðu þig.
www.aygo.is
Toyota Kópavogi
Nýbýlavegi 4
Kópavogur
Sími: 570-5070
Toyota Akureyri
Baldursnesi 1
Akureyri
Sími: 460-4300
Toyota Reykjanesbæ
Njarðarbraut 19
Reykjanesbær
Sími: 420-6600
Toyota Selfossi
Fossnesi 14
Selfoss
Sími: 480-8000
Toyota Austurlandi
Miðási 2
Egilsstaðir
Sími: 470-5070
Kostar ekkert,
þannig séð
*Sértilboð Elísabetar og AYGO. M.v. 84 mánuði. Innifalið er afborgun af láni, tryggingar (ábyrgðar- og kaskótrygging) og bifreiðagjöld á fyrsta tímabili.
26.855 kr.* á mánuði:
Innifalið: Afborgun af láni - Tryggingar - Bifreiðagjald 1. tímabils - Engin útborgun.
FYRSTUR
MEÐ
FRÉTTIRNAR
www.visir.is