Fréttablaðið - 10.05.2007, Side 2

Fréttablaðið - 10.05.2007, Side 2
Ögmundur, þurfa þingmenn ekki líka nýtt launaþak? Lágmarksframfærslu- eyrir útlendinga á Schengen-svæð- inu er talinn tvö þúsund krónur á dag, hafi þeir frítt húsaskjól. Að öðrum kosti er lágmarkið fjögur þúsund krónur. Þessi skilyrði eiga einnig við um EES-borgara, segir Hildur Dungal, forstjóri Útlend- ingastofnunar. Frávísunarheimildir er að finna í 18. grein útlendingalaga. Sam- kvæmt þeim má stöðva för útlend- inga til landsins, til dæmis á Kefla- víkurflugvelli, geti aðkomufólk ekki sýnt fram á lágmarksfram- færslugetu og fjárráð til að fara heim aftur. Hildur telur að heimild- inni sé beitt „töluvert oft“. Minna eftirlit er á flugvellinum þegar fólk kemur frá Schengen- svæðinu, eins og í tilfelli Rúmen- anna. Því hefur lögregla svigrúm til að beita heimildunum í sjö daga eftir komu fólks inn í landið. Útlendingastofnun getur síðan ákvarðað að vísa fólki úr landi, samkvæmt sömu heimildum, innan níu mánaða frá komu. Hörður Jóhannesson aðstoðarlög- reglustjóri hafnar gagnrýni Norð- manna á það hvernig var að máli Rúmenanna staðið. Í fréttum RÚV kom fram að Norðmenn teldu íslensk lögregluyfirvöld ekki geta sent Rúmenana til Noregs, nær hefði verið að senda þá til Rúmeníu. „Við erum ekki að senda einn eða neinn. Við erum bara að hjálpa þeim að komast til baka, af því að þau óskuðu eftir því, segir hann. Lögreglan hafi því ekki gert neitt sem Útlendingastofnun Norðmanna geti kvartað undan. „Það er enginn formlegur gjörn- ingur af hendi lögreglu né Útlend- ingastofnunar,“ segir Hörður. Lögreglan hafði afskipti af Rúm- enunum vegna þess að þeir voru „í reiðileysi“ og ekki með atvinnu- leyfi. „Vendipunkturinn var um helg- ina þegar þetta lá allt sofandi niðri í bæ. Það kom í ljós að þau voru hér til að vinna en ekki með atvinnu- leyfi og höfðu ekki sótt um það. Þau áttu ekki pening til að framfleyta sér. Þegar þeim var gert ljóst að þau gætu ekki verið hér á götunum og til væri heimild til að vísa þeim úr landi, óskuðu þau eftir aðstoð okkar til að komast úr landi.“ Hefðu Rúmenarnir hins vegar kosið að dveljast hér áfram, „þá hefði komið til skoðunar að beita einhverjum heimildum,“ segir Hörður. Rúmenarnir gátu ekki framfleytt sér Til að dveljast á Íslandi hefðu Rúmenarnir, sem var hjálpað úr landi, þurft 4.000 krónur fyrir hvern dag. Frávísunarheimildum mun oft vera beitt. Lögreglan hefði skoðað að beita þessum heimildum hefði fólkið ekki farið sjálfviljugt. Fjörutíu og tveir fangar á Litla-Hrauni nýttu kosningarétt sinn í utankjörfund- aratkvæðagreiðslu á þriðjudag. Fulltrúar sýslumanns efndu til kjörfundar og var kjörklefa komið upp í skólastofu í fangels- inu. 77 afplána refsidóm á Litla- Hrauni, þar af 12 útlendingar. Af þeim 65 sem höfðu kosningarétt nýttu hann 42. Það er um 65 prósenta þátttaka. Að sögn fangavarðar fór lítið fyrir pólitískri umræðu í fangels- inu í aðdraganda kosninganna. 42 af 65 kusu á Litla-Hrauni Samræmdu prófunum í 10. bekk lauk í gær. Tæplega 4.500 nemendur eru skráðir í 10. bekk og flestir þeirra þreyttu einhver samræmd próf. Fjölmennasta prófið var í íslensku en rúmlega 4.200 nemendur voru skráðir í það. Það eru mikil tímamót að ljúka grunnskólagöngu og því venja að unglingar geri sér dagamun við lok samræmdu prófanna. Undanfarin ár hefur dregið verulega úr unglingadrykkju á þessum tímamótum og nú er í flestum skólum boðið upp á skipulagðar skemmtanir á borð við óvissuferðir. Marta Kristín Hreiðarsdóttir, félagsfræðingur og talsmaður SAMAN-hópsins, sem hefur barist ötullega að forvörnum, segir að það sé mikilvægt að boðið sé upp á jákvæðar og heilbrigðar skemmt- anir fyrir unglingana á þessum tímamótum. „Skilaboð okkar beinast að mestu til foreldra og eru þess efnis að eyða tíma með börnunum sínum, virða útivistartíma og leyfa ekki eftirlitslaus partí,“ segir Marta. Skemmta sér eftir prófin „Vart var sólarhringur liðinn þegar stjórnmála- menn allra flokka, sem ekki áttu húseignirn- ar, höfðu opinberlega lýst því yfir að þeir teldu mikilvægt að viðhalda götumynd og endurbyggja húsin á sama stað í upprunalegri mynd,“ sagði Björgólfur Guðmundsson í Landsbankanum á þingi um uppbyggingu eftir brunannn í Austurstræti. „Í sjálfu sér er þetta falleg hugsun og viðbrögðin skiljanleg,“ bætti Björgólfur við. Hann kvað verndun menningar- verðmæta mikilvæga en að þau viðhorf mættu „ekki hindra eðlilega framþróun borga“. Vilhjálmur Vilhjálmsson borgar- stjóri sagðist ekki hafa breytt um skoðun varðandi endurgerð götumyndarinnar. Verndun hindri ekki framþróun Aðstandendur Live Earth-tónleikanna, hafa dregið til baka tilboð um að tónleikar verði haldnir í Reykjavík vegna þess að ríkisstjórn Íslands sýndi viðburð- inum ekki nægan áhuga, auk þess sem staðan á tæknilegum undirbúningi þótti ekki viðun- andi. Kári Sturluson, sem annaðist skipulag hér á landi, segir skipuleggjendur hafa runnið út á tíma. Hann vill ekki kenna áhugaleysi ríkisins alfarið um niðurstöðuna. „En það er ljóst að ef fulltrúar ríkisstjórnarinnar hefðu sýnt þessu verkefni raunverulegan áhuga frá upphafi þá hefði staðan getað verið allt öðruvísi.“ Hætt við Live Earth á Íslandi Búist er við að Tony Blair, forsætisráðherra Bret- lands, muni á hádegi í dag segja af sér sem formaður Verka- mannaflokksins. Líklega gegnir hann áfram embætti forsætisráð- herra þangað til í lok júní eða byrjun júlí. Skrifstofa Blairs staðfesti í gær að hann muni greina frá áformum sínum í dag. Gordon Brown fjármálaráðhera þykir líklegast- ur arftaki hans. Á morgun heldur Blair til Frakklands til að óska Nicolas Sarkozy til hamingju með sigurinn í forsetakjöri um síðustu helgi. Blair segir lík- lega af sér í dag „Hún er búin að fá of mikla neikvæða umfjöll- un,“ sagði Fanný Guðbjörg Jónsdóttir, kosningastjóri ungra framsóknarmanna, um Luciu Celeste Molina Sierra. Lucia, sem er tengdadóttir Jónínu Bjartmarz umhverf- isráðherra, dreifði grænum frostpinn- um til vegfarenda í boði Framsóknarflokksins á Laugaveginum. Þegar ljósmynd- ara Fréttablaðsins bar að garði neitaði hún að vera á mynd og hljóp hún inn á kosningaskrifstofu ungliða flokksins sem þar stendur. „Það er búið að vera mikið álag á henni undanfarið. Lucia er vinkona okkar og hún er hér einfaldlega til að hjálpa vinum sínum. Þetta er engin frétt,“ sagði Fanný kosn- ingastjóri eftir að hafa rætt málið við Luciu sem hélt sig inni á skrifstofunni og aftók að láta mynda sig og veita viðtal um sjálfboðastarf sitt fyrir Framsóknarflokkinn. Stuttu seinna var hún farin af kosninga- skrifstofunni. Þingflokkur Vinstri grænna vill láta leiða í lög að ráðherrar geti ekki ráðstafað fé úr ríkissjóði í þrjá mánuði fyrir kosningar. „Frá og með því að 90 dagar eru til reglu- legra alþingis- kosninga eða jafn langur eða skemmri tími er til kosninga sem boðað hefur verið til aukalega er ráðherrum óheimilt að gera samninga eða binda með neinum öðrum hætti ríkissjóð þannig að í því felist skuldbinding, vilyrði eða fyrirheit um ný útgjöld,“ segir í frumvarpi þingflokksins. Hemja ráðherra fyrir kosningar Mikill munur er á fylgi Framsóknarflokksins í tveimur skoðanakönnunum sem birtar voru í gær. Í könnun Capacent Gallup mælist flokkurinn með 14,6 prósent, og eykur fylgi sitt um tæp fimm prósentustig frá því í könnun Capacent daginn áður. Í könnun Félagsvísindastofnunar mælist flokkurinn hins vegar einungis með 8,6 prósenta fylgi. Sjálfstæðisflokkur fær 38 prósent, Samfylkingin 29 og Vinstri græn 16,2 hjá Félagsvís- indastofnun en hjá Capacent fær Sjálfstæðisflokkur 36 prósent, Samfylkingin 25 og Vinstri græn 14,5 prósent. Mikill munur á Framsóknarfylgi Gaf vegfarendum græna frostpinna

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.