Fréttablaðið - 10.05.2007, Síða 18

Fréttablaðið - 10.05.2007, Síða 18
nær og fjær „ORÐRÉTT“ Þrátefli við Bobby Fischer? Nefndarmenn fá meiri tíma með börnunum Alvöru og töff karlmenn í Helsinki Gunnlaugur A. Júlíusson, sviðsstjóri hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, varð þriðji í hlaupi í Borgundar- hólmi í Danmörku um síðustu helgi þegar hann hljóp 197 kílómetra á 24 klukkutímum. „Þetta fór langt fram úr öllu sem ég átti von á,“ segir Gunn- laugur sem fyrir hlaupið stefndi að því að ljúka 160 kílómetrum en hefði getað lokið 200 kílómetrum hefði GPS-mælirinn ekki orðið fyrir truflun á leiðinni. „Ég hefði getað farið 200 kílómetra ef ég hefði getað stillt mig af og skrúfað mig upp þegar fjórir tímar voru eftir því að ég var ekki svo þreyttur þegar ég kom í mark. En þetta er alltaf vegasalt. Maður tekur áhættu og þetta var fyrsta hlaupið af þessum toga sem ég tek þátt í þannig að ég var að fara út í óviss- una,“ segir hann. Árangur Gunnlaugs jafn- gildir því að hlaupa frá Reykjavík að Hellnum á Snæ- fellsnesi og rúmlega það í gegnum Hvalfjarðargöngin á einum sólarhring. Það er afrek enda bendir hann á að það hafi „púnkterað“ hjá mörgum í hlaupinu. „Þetta er hárfín lína, að fara ekki of hratt eða hægt og borða og drekka rétt.“ Þrjátíu og fjórir hlauparar tóku þátt, þrjátíu og einn lauk hlaupinu. Sigurvegarinn hljóp 226 kíló- metra og sá sem varð í öðru sæti hljóp 206 kílómetra á þeim sólarhring sem hlaupið stóð. Hlaupnir voru 1,8 kílómetra hringir og hringirnir taldir. Gunnlaugur segir slík hlaup erfiðari andlega. „Hausinn spilar rullu í þessu líka,“ segir hann og bætir hlæjandi við að talað sé um 200 kílómetra sem „magísku mörkin. Þá er maður kominn í stórmeist- araflokkinn.“ Eins og að hlaupa upp á Snæfellsnes á 24 tímum Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri og Árni Pétur Jónsson, forstjóri Vodafone, skrifuðu í gær undir samning um fjarskiptaþjónustu fyrir borgina til næstu þriggja ára. Samhliða því var opnað grænt símanúmer borgarinnar og Vodafone, en í það geta borgarbúar hringt til að gefa tré sem gróðursett verður í landi borgarinnar í sumar. Með því að hringja í símanúmerið 900 9555 gjaldfærast 500 kr. á símareikn- ing. Skógræktarfélag Reykjavík- ur sér um að planta trjánum. Hringdu og gefðu tré Ný tískuvöruverslun og gallerí hefur verið opnuð á Djúpavogi. Eigendur eru Ágústa Margrét Arnardóttir frá Höfn í Hornafirði og Íris Dögg Hákonardóttir úr Reykjavík. Fram kemur á vef Djúpavogshrepps að það hafi verið ástin sem dró þær báðar á Djúpavog. Ágústa Margrét er tösku- og fylgihlutahönnuður sem starfar undir nafninu GUSTA DESIGN. Íris Dögg Hákonardótt- ir keypti verslunina ONI á Laugaveginum árið 2006 en lokaði síðan versluninni og hóf að selja vörurnar á Netinu. Nú er ONI opnuð aftur í nýjum landshluta. Ný tískuvörubúð á Djúpavogi Viðkvæmt mál og erfitt

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.