Fréttablaðið - 10.05.2007, Page 22
fréttir og fróðleikur
Kosningalögin komu ekki af
himnum ofan – ekki frekar
en sjálfur kosningarétt-
urinn. Hvort tveggja eru
mannanna verk og bera
þess glögg merki.
„Þá er kjósandi hefur tekið við
kjörseðlinum fer kjósandi með
hann inn í kjörklefann, þar sem
kjósandinn má einn vera, og að
borði því er þar stendur. Á borðinu
skulu vera ekki færri en tvö venju-
leg dökk ritblý er kjörstjórn lætur
í té og sér um að jafnan séu nægi-
lega vel ydd.“ Svo segir í 81. grein
laga um kosningar til Alþingis.
Ekki er skilgreint hvað telst
„nægilega vel ydd“, en að líkind-
um er það kjörstjórnar að meta
það.
Á kjörskrá eru 221.368 kjósend-
ur en sú tala kann að breytast eftir
að tekið er tillit til látinna, nýrra
ríkisfangshafa og annarra leið-
réttinga. Þannig fjölgaði um
fimmtán á kjörskrá eftir leiðrétt-
ingu í kjölfar síðustu kosninga.
Í kosningum undangenginna 40
ára hefur kjörsókn verið á bilinu
84-91 prósent en síðast nýttu 87,7
prósent kosningarétt sinn. Til sam-
anburðar má nefna að 84 prósent
franskra kjósenda nýttu atkvæðis-
réttinn í forsetakosningunum þar í
landi á dögunum og þótti mikið.
Kosið er á samtals 151 stað á
landinu öllu en kjördeildir eru
talsvert fleiri. Flestir eru kjör-
staðirnir í Norðvesturkjördæmi,
47, en fæstir í Reykjavíkurkjör-
dæmunum, sjö í hvoru kjördæmi.
Þeir skipta hundruðum sem
vinna við kosningarnar með einum
eða öðrum hætti. Kjósendur verða
helst varir við almenna starfs-
menn í kjördeildum sem taka
niður nafn og kennitölu kjósenda
og vísa þeim til kjörklefa. En sam-
kvæmt laganna hljóðan starfa
landskjörstjórn, yfirkjörstjórnir,
undirkjörstjórnir og jafnvel
umdæmiskjörstjórnir og sérstak-
ar kjörstjórnir. Undan setu í kjör-
stjórn verður ekki vikist enda
segir í 18. grein kosningalaganna:
Það er borgaraleg skylda að taka
sæti í kjörstjórn.
Kosningalögin eru í 130 grein-
um í 28 köflum og prentast á 29 A
4 blöð. Síðast var lögunum breytt
1999 en grundvallarbreytingar
voru einnig gerðar 1982 og 1959.
Ítarlega er fjallað um refsi-
ákvæði sem liggja við margvísleg-
um brotum á lögunum en brot geta
varðað allt frá sektum og upp í
fjögurra ára fangelsi. Ekki hefur
komið til beitingar slíkra refsinga
í kjölfar umliðinna kosninga og
má af því draga þá ályktun að
Íslendingar hagi sér almennt vel á
kjörstað og virði lög og reglur um
framkvæmd kosninga.
Í lögunum er einnig fjallað um
óleyfilegan kosningaáróður og
kosningaspjöll.
Kjörstaðir opna flestir klukkan
níu á laugardag og stendur kjör-
fundur víðast hvar til tíu um kvöld-
ið. Í fámennum kjördeildum getur
kjörfundur staðið skemur.
Talning atkvæða hefst áður en
kjörfundi lýkur og er fyrstu talna
að vænta úr flestum kjördæmum
fljótlega eftir að kjörfundi lýkur.
Ekki er síðustu og endanlegra
talna að vænta fyrr en undir
sunnudagsmorgun.
Ritblýin skulu nægilega vel ydd
Starfslýsingin
þarf að
standast lög
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
8
1
3
1
NÝJUNG
Í BANKA
VIÐSKIPTUM
Ofsóttir öldum saman