Fréttablaðið - 10.05.2007, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 10.05.2007, Blaðsíða 28
hagur heimilanna Nýjung í ræstingum – þú nærð hærra með UniFlex afþurrkunarsetti R V 62 33 UniFlex afþurrkunarsett og tvær aukamoppur. 1.398,- Henrietta Holz Jensen sölumaður í útibúi RV í Danmörku N ú á ti lb oð i! il i ÁRMÚLA 11 | Sími 568-1500 | Lónsbakka | Sími 461-1070 | www.thor.is Demants ... ... kjarnaborar: 42 - 400 mm ... slípibollar: 125 og 180 mm ... sagarblöð: 125 - 800 mm Gæði og gott verð. Gísli Hrafn Atlason femínisti segir heillavænlegasta húsráðið að kenna ungviðinu grundvallaratriði þrifa og matseldar. Sumarið er rétt handan við hornið og margir eru farnir að sinna vorverkunum í garðinum. Jón Ragnar Björgvinsson skrúð- garðameistari segir að enn sé of snemmt að setja niður sumarblómin. „Um leið og sólin fer að skína streymir fólk af stað og vill fá sumarblóm. Ég er hins vegar svo harður að ég vil ómögulega selja þeim þau strax,“ segir Jón sem hefur starfað við garðyrkju um áratuga skeið og veitir ráðgjöf í gróðarstöðinni Storð. Jón segir að best sé að bíða með að setja niður sum- arblómin þangað til síðar í mánuðinum. „Upp úr 20. maí er fínt að fara að huga að þessu ef spáin er góð. Það er betra að hafa varann á því það getur alltaf kóln- að á þessum árstíma. Í fyrra var til dæmis næturfrost allar nætur frá því um miðjan maí og fram í byrjun júní og flest sumarblóm þola ekki frost,“ segir Jón. Hann bendir á að nú sé hins vegar fínn tími til þess að stinga upp beðin, losa um moldina og kaupa áburð. Öðrum vorverkum í garðinum ætti að vera lokið. „Nú er að verða of seint að klippa runnana og vorlauk- arnir ættu að vera komnir í mold. Það þarf að setja vorlaukana niður seinni part vetrar og það eina sem hægt er að eiga við úr þessu eru anímónur,“ segir Jón. Jón segir að tískan ráði ferðinni þegar kemur að sumarblómunum líkt og í öðru. „Það eru alltaf að koma nýjar og nýjar tegundir og þessar gömlu láta undan. Sala á stjúpum minnkar ár frá ári enda kann fólk ekki orðið að rækta þær. Það þarf að klippa þær niður í ágúst og þá standa þær í blóma alveg fram í október. Flestir tíma þessu hins vegar ekki og þá leggjast blóm- in niður og drepast,“ segir Jón. Hvað varðar umhirðu sumarblóma segir Jón að mik- ilvægt sé að vökva moldina vel eftir að sumarblómun- um hefur verið plantað. Þá sé einnig nauðsynlegt að gefa þeim áburð. „Sumarblómin eru viðkvæm og því velur maður þeim besta staðinn í garðinum helst að sunnan- eða vestanverðu. Hver og einn raðar blómun- um niður eftir smekk en maður þarf þó að hafa vaxtar- rými plantnanna í huga. Það er mikilvægt að hugsa fram í tímann og sjá blómið fyrir sér eins og það verð- ur þegar það nær fullum blóma,“ segir Jón. Enn of snemmt að setja niður sumarblómin Frjáls framlög í ræktina og augnskuggar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.