Fréttablaðið - 10.05.2007, Síða 48

Fréttablaðið - 10.05.2007, Síða 48
Það var nokkuð athyglisverð um-ræða sem kom upp um daginn í sjónvarpsþætti með frambjóð- endum, þar sem forgangsröðun á biðlista sjúkrahúsanna var til um- ræðu. Siv Friðleifsdóttir heilbrigð- isráðherra lagði í þessum þætti þunga áherslu á og boðaði skoðun á þeim möguleika að forgangsröðun í aðgengi yrði tekin upp í einni eða annarri mynd. Þar með boðar hún möguleikann á þeirri framtíðarsýn að ekki verði allir jafnir gagnvart aðgengi að heilbrigðiskerfinu eins og þjóðin vill þó að sé til staðar. Svona viðhorf er alger uppgjöf hjá einni ríkustu þjóð veraldar. Mér fyndist eðlilegra að leggja vinnu í að endurskipuleggja kerfið í þágu jafnréttis fyrir þjóðina, í stað þess að sjá enga lausn í öðru en mismunun á grundvelli þjóð- hagfræði, sem myndi vafalaust helst bitna á öldruðum og líklega fötluðum í ljósi forsendnanna. Mín tillaga væri fremur að gefa einka- aðilum tækifæri til að spreyta sig á spítalarekstri, með því að litlum spítala yrðu tryggð sömu almennu starf- og rekstrarskilyrði og þeim sem Ríkisspítalarnir hafa í dag. Þannig leiddi reynslan í ljós sam- keppni, valfrelsi starfsfólks til vinnuveitanda og valfrelsi sjúk- linga sem hefðu val um þjónustu- kaup. Hver eru rökin fyrir því að Jón og Gunna séu ekki jafngildir fagmenn sama hvort þau eru opin- berir starfsmenn eða starfsmenn í einkarekstri. Það eru rökleysa og fordómar að berjast gegn því að mæta framtíðinni með opnum huga í þessum efnum. Það að aukin mismunun skuli vera kosninga-boðskapur úr heil- brigðisráðuneytinu á Íslandi, stjórnvaldi í einu ríkasta þjóðfélagi veraldar, er tíma- skekkja, og með öllu óviðeigandi. Heilbrigðis- ráðuneytið hefur ein- faldlega ekki þróast með þjóð- inni og þjóð- in geldur fyrir getu- leysið. Þjóðin mun ekki samþykkja þessa mismununarleið, heldur leggja til uppstokkun í nefndu ráðuneytinu, því ráðuneytið er til að þjóna þjóð- inni en ekki öfugt. Hvað er þjóðhagslega hagkvæmt við að hafa biðlista og kvarta undan því að heilbrigðiskerfið kosti þjóðina svo og svo mikið í út- gjöldum. Ég hef í ræðu og riti bar- ist við að snúa þessari nálgun við og kalla þetta fjárfestingu í heil- brigði þjóðarinnar en ekki útgjöld, því þessi svokallaði kostnaður skil- ar sér að stórum hluta til baka í auknum skatttekjum af þeim sem fá meina sinna bót. Hvað er þjóð- hagslega hagkvæmt við að full- vinnandi skattgreiðandi fái ekki meina sinna bót nema að undan- genginni langri bið á trygginga- og sjúkrabótum, bæði á undan og eftir aðgerð? Væri ekki nær að laga skattgreiðandann um hæl og koma honum í vinnu sem fyrst, svo hann geti farið að afla tekna og greiða skatta á ný? Þetta kall- ast fjárfesting en ekki útgjöld. Öll þessi biðlistamenning þolir ekki neina rökræðu. Stjórnmálaflokkar hafa í aðdrag- anda þessara kosninga verið með ýmiss konar kosningaloforð eins og gengur. Fólk er vant þessu og fer varlega í að vænta mikilla efnda, enda hefur það oft reynst hyggilegt að treysta ekki um of þessum loforðum. Það er hins vegar athyglisvert að mörgum stjórnmálamönnum virðist hulin samhengisráðgátan um samband- ið milli orsaka og afleiðinga þegar kemur að virðingu almennings á þeim sjálfum og til starfa þeirra. En hver og einn er gæfu sinn- ar smiður og geta þingmenn einir breytt ríkjandi viðhorfum til sín með breyttu verklagi í umgengni við þjóðina. Traust skapast af efnd- um og vantraust af vanefndum. Í fyrsta skipti sem ég veit um hefur stjórnmálaforingi gefið kosningaloforð um biðlistana og afgreiðslu málefna aldraðra, fatl- aðra, barna með geðröskun, og hefur lagt pólitískan feril sinn undir varðandi efndir. Ingibjörg Sólrún hefur nú gefið kosninga- loforð og fullyrt að hún og flokk- ur hennar muni ekki taka þátt í ríkisstjórn sem ekki vill efna þessi ófrávíkjanlegu loforð á næstu 18 mánuðum eða svo. M.ö.o. hún leggur pólitískan feril sinn að veði fyrir tímasettum efndum þessara loforða. Það er huggun harmi að ennþá skuli leynast á meðal okkar skörungar af því tagi sem eru til- búnir að rísa upp úr flatneskjunni og leggja allt sitt undir í stefnu- mál sín, hugsjónir, sannfæringu og ætla að standa og falla með þeim orðum. Hér er ekki verið að gefa innan- tóm loforð heldur er verið að gefa skuldbindingu með skuldadögum. Svona eiga hugmyndafræðilegir foringjar að tala, þannig verður til virðing. Höfundur er stjórnarformaður Sóltúns. Lausn á biðlistavandamálum Cheerios er trefjaríkt og sykurlítið og fer vel í litla og stóra maga ÍS L E N S K A /S IA .I S /N A T 3 75 90 0 5/ 07

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.