Fréttablaðið - 10.05.2007, Page 52

Fréttablaðið - 10.05.2007, Page 52
Andri Snær Magnason skrifar grein í Fréttablaðið síðastlið- inn laugardag og fer mikinn eins og honum er lagið. Andri gefur lítið fyrir arðsemi Kárahnjúka- virkjunar: „Landsvirkjun telur að hagnaðurinn af Kárahnjúkavirkj- un verði um 4 milljarðar samtals á 40 árum.“ Það er einfaldlega grundvallarmisskilningur á ferð- inni hjá Andra. Það kann vel að vera að Andri hafi einhvers staðar séð að áætl- að sé að „núvirtur framtíðarhagn- aður“ Landsvirkjunar af Kára- hnjúkavirkjun sé 4 milljarðar en Andri misskil- ur hvað það þýðir. „Nú- virtur fram- tíðarhagnað- ur“ er hagn- aður umfram ávöxtunar- kröfu og sam- svarar hann í tilfelli Kára- hnjúkavirkj- unar um 4 milljörðum kr. Sú tala er raunar um 85 millj- arðar ef hún er ekki núvirt. Eðli- legast er að skilja orðalag Andra, „hagnaður samtals á 40 árum“, sem heildarávöxtun eigin fjár sem lagt er í verkefnið. Hagnaðurinn í þeim skilningi nemur margföldum stofn- kostnaði Kárahnjúkavirkjunar eða hundruðum milljarða króna. Þetta má útskýra með eftir- farandi: Ef núvirtur hagnaður af einni framkvæmd er enginn eða 0 þá hefur hún staðist þá kröfu sem eigendur fjármagnsins gerðu til hennar. Allur kostnaður hefur þá verið greiddur og eigandinn feng- ið þann arð sem hann ætlaði sér. Ef núvirtur hagnaður er hærri en 0 þá er umframhagnaður af fram- kvæmdinni en ef hann er minni en 0 næst ekki sá hagnaður sem að var stefnt. Landsvirkjun gerði 11% arðsemis- kröfu á eigin fé í Kárahnjúkavirkj- un sem þýðir að sú krafa var gerð að fjármagnið ávaxtaði sig líkt og fé á bundinni langtímabók með 11% vöxtum eða með um 8% raun- vöxtum umfram langtíma verð- bólgu. Það þýðir að þeir u.þ.b. 25 milljarðar sem hafa þessa kröfu á sér í verkefninu verða orðnir að tæpum 550 milljörðum eftir 40 ár á verðlagi dagsins í dag, eða rúm- lega fimmfaldur heildarkostnaður við virkjunina, ef verkefnið stenst arðsemiskröfuna. Eins og kemur fram í grein Andra þá er reiknað með að hún standist hana og Lands- virkjun eigi sem svarar 4 milljörð- um í vasann strax í dag í umfram- hagnað. Það getur verið umdeilanlegt hvaða arðsemiskröfu á að gera á einstakar framkvæmdir en það ræðst m.a. af áhættunni og í tilfelli Kárahnjúkavirkjunar var fræðun- um fylgt hvað þetta varðar. Til að mynda er ekki óalgengt að í útrásar- verkefnum síðustu ára sé gerð 15– 20% krafa um arðsemi á eigin fé til að mæta áhættunni. Hitt er jafn ljóst að ef allt heimsins fjár- magn ætti aðgang að áhættulítilli fjárfestingu með slíkri ávöxtun þá væri auður heimsins fljótur að vaxa. Það er því miður ekki þannig, enda vex heimsframleiðslan um nálægt 4% á ári nú um stundir. Það þýðir um fimmföldun á 40 árum á móti því að 25 milljarðarnir í Kára- hnjúkaverkefninu tuttugu og tvö- faldast á sama tíma. Höfundur er fyrrverandi fram- kvæmdastjóri Landsvirkjunar. Andri Snær og hagnaður af Kárahnjúkavirkjun Ég var vígður í hjónaband í Egilsstaðakirkju 31. júlí árið 1977 af einhleypum sóknarpresti. Svaramenn voru feður okkar hjóna- efnanna, vígsluvottar, ættingjar og vinir. Það eina sem ég minnist í raun frá hjónavígslunni var ægiþungi handar prestsins á höfði mér er hann bað fyrir okkur hjónunum vígðum. Ég var síðar vígður til prests í Þjóðkirkjunni af herra Pétri og þá kom þessi sama hönd og beygði höfuð mitt. Frá þeim tíma hefi ég fermt í þjónustu kirkjunnar fjöl- mörg ungmenni á Íslandi og í Sví- þjóð með sömu handayfirlagningu auk þess að vígja hjón og blessa tvo myndarmenn í staðfesta samvist. Ég lauk embættisprófi í guðfræði haustið 1986 og stundaði um hríð framhaldsnám í kirkjurétti við há- skólann í Lundi og Kaupmanna- höfn. Áhugasvið mitt var þó og er svokölluð játningafræði enda bygg- ir kirkjurétturinn á henni, alla vega sá lúterski. Að mínu mati er aðkallandi í ljósi yfirstandandi synodu Þjóðkirkjunn- ar á Húsavík að evangelísk-lúterskir biskupar safnaða landsins setjist á rökstóla og leggi grunn að játningu um inntak vígslu til fjölbreyttrar þjónustu í kirkju Krists á jörðu og á himni. Að minni eigin hyggju tel ég árið 2007 á Íslandi vel koma til álita að tala um vistarvígslu, en mér lærðari og hæfari menn dæma um það. Ég lít þá til hinna ýmsu laga og reglna samfélagsins, sem mis- muna pörum á hinu efna- lega sviði, en segist um leið leita jafnréttis. Fyrir mér geta pör verið karl og kona, karl og karl, kona og kona, systkini, feðgin, mæðgin, vinir og e.t.v. fleira. Ég vil þakka biskupi vorum, herra Karli Sigurbjörns- syni, séra Geir Waage og Sigur- steini Mássyni fyrir það að vekja mig til umhugsunar og löngunar til að leggja ofannefnt til málanna. Jón Sigurðsson, formaður Fram- sóknarflokksins, hefur lýst því yfir að hann vilji breyta lögum og leyfa þeim trúfélögum sem það kjósa að vígja samkynhneigða í hjóna- band. Þetta sé heimildarákvæði þannig að ríkisvaldið og löggjafinn sé ekki að taka völdin af þjóðkirkj- unni eða öðrum trúfélögum heldur leyfi þeim sem það vilja að annast slíkar vígslur en amist ekki við því að hinir sem vilja það ekki geri það ekki. Ég styð þessa afstöðu Jóns Sig- urðssonar og Framsóknarflokksins. Hún er í samræmi við hugmyndir mínar um mannréttindi samkyn- hneigðra og sjálfstæði kirkjunnar gagnvart ríkisvaldinu. Ég treysti Jóni Sigurðssyni til þess að leiða málið til lykta með þessum hætti á næsta kjörtímabili. Þess vegna ætla ég að kjósa hann og Framsóknar- flokkinn næsta laugardag. Höfundur er prófastur emeritus. Ég vil minnast... Íslenskt þjóðlíf hefur geng-ið í gegnum stórfelldar kerfisbreytingar frá árinu 1980 og ungt fólk flutt úr minni byggðakjörnum um allt land og til höfuðborgar- svæðisins. Áhrif þessara breytinga koma ekki fram að fullu fyrr en eftir nokkra áratugi þegar stórir árgangar fólks sem nú býr úti á landi fer á eftirlaun. Nátt- úrulegri fólksfjölgun á landsbyggð- inni eru mikil takmörk sett ef fólk á barneignaraldri býr ekki lengur á svæðinu. Þó þessi staðreynd blasi við, er best að hafa ekki of hátt um hana því tilhugsunin er svo niður- drepandi. Byggðastefna stjórnvalda er löngu orðin gjaldþrota og má frek- ar líkja við líknardráp en uppbygg- ingu til lengri tíma. Of lítið hefur verið gert og of seint. Vanhugsuð inngrip hafa verið of mörg, gegn- um stofnanir og ráð sem skortir þann neista sem til þarf til að end- urreisa drifkraft, bjartsýni og já- kvætt hugarfar sem er nauðsyn- legt til að eðlileg atvinnusköpun eigi sér stað. Stjórnvöld þurfa að jafna aðstöð- umun milli landsbyggðar og höfuð- borgarsvæðis með því að byggja upp innviði samfélagsins, sam- göngur og menntun, og aflétta hömlum af einstaklingsframtakinu. Og hvernig á að fara að því? Það er bláköld staðreynd að því lægri sem skatt- ar á fyrirtæki eru, því betur vaxa þau og skapa fleiri ný störf. Við það vex verðmætasköpun og skatt- stofninn vex og meiri verð- mætum er aftur skilað til samfélagsins í formi skatta og annarra verð- mæta, s.s. hærri launa eða styttri vinnutíma. Núverandi 18% skatt- ur er ekki samkeppnisfær á við bestu rekstrarskilyrði fyrirtækja í Evrópu, til þess þarf hann að lækka í 12%. Tekjutap ríkissjóðs til skamms tíma væri um 12 milljarðar en kæmi margfalt til baka innan ör- fárra ára. Það er skammsýni að lækka ekki skattinn til að hámarka ávinning okkar af auðlegðarsköpun atvinnulífsins. Á atvinnuleysisskrá í NA-kjör- dæmi eru rúmlega 300 manns. Það er viðurkennd staðreynd að atvinnuleysi verður aldrei núll heldur rambar á bilinu 1-2% þegar best lætur. Á Húsavík hefur fólki fækkað og atvinnulífi hnignað eins og annars staðar á landinu. 400 verksmiðjustörf í álveri leysa ekki vanda Húsavíkur. Til að endurnýja Húsavík þarf aukna fjölbreytni í atvinnulífið, drífa í Vaðlaheiðar- göngum, auka eðlilega örvun ný- sköpunar á svæðinu af miklum krafti og gefa heimamönnum tæki- færi á að byggja upp fjölbreytt og öflugt atvinnulíf. Þungaiðnaður er ekki rétta svarið. Þorsteinn Már hjá Samherja benti nýlega á að í Færeyjum störf- uðu um 1.000 manns við stjórnun á risatank-, flutninga- og farþega- skipum. Atvinnugrein sem við Ís- lendingar höfum bara einfaldlega ekki beint sjónum okkar að. Þor- steinn benti réttilega á þann mögu- leika að útgerðarfyrirtæki og Há- skólinn á Akureyri tækju hönd- um saman um að byggja upp og mennta þúsundir skipstjórnenda af þessari gráðu, fyrir skip sem eru 500.000 tonn og yfir. Eðli málsins samkvæmt skiptir búseta þeirra sem við þetta starfa litlu máli og því síður þegar beint flug erlendis frá til Akureyrar eykst með stækk- uðum flugvelli. Þetta snýst um þekkingu, framsýna og markvissa menntastefnu í þágu svæðisins. Í komandi kosningum stendur valið milli gjaldþrota byggða- stefnu núverandi ríkisstjórnar sem á engin úrræði önnur en að knýja atvinnulífið með byggingu álverk- smiðja og botnlausum erlend- um lántökum, eða stefnu Íslands- hreyfingarinnar um að staldra við í stóriðjustefnunni og byggja upp þekkingarsamfélag í stað þunga- iðnaðar. Höfundur skipar 1. sæti fyrir Ís- landshreyfinguna í NA- kjördæmi. Þekking í stað þungaiðnaðar H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA 8 1 3 1 SKRÁÐU ÞIG NÚNA ÞEIR SEM SKRÁ SIG FYRIR 17. JÚNÍ FÁ 10.000 GLITNISPUNKTA!

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.