Fréttablaðið - 10.05.2007, Síða 70
Verður silfrið að gulli?
Kolbeinn Sigþórsson er
enn samningslaus og gæti þess
vegna spilað með hvaða liði sem er
hér á landi í sumar. Svo gæti einn-
ig farið að þessi stórefnilegi sautj-
án ára drengur bíði enn um sinn
og semji við erlent lið í sumar.
Mikil óvissa er í kringum Kol-
bein sem er nýkominn heim úr
ferð sinni með U-17 ára landslið-
inu sem tók þátt í Evrópumótinu
í Belgíu. Hann hefur farið utan í
vetur og æft með fjöldamörgum
liðum en enn fleiri eru talin hafa
augastað á piltinum.
„Við höfum ekki farið í viðræð-
ur við HK ennþá. Við komum heim
í gær og erum bara nývaknaðir,“
sagði Sigþór Sigurjónsson, faðir
Kolbeins, við Fréttablaðið í gær.
Kolbeinn hefur undanfarið ár
leikið með HK en er þar fyrir utan
uppalinn í Víkingi.
„Við erum að skoða okkar mál
núna og ætluðum ekkert að vaða
í þau fyrr en þessu landsliðsverk-
efni lyki,“ sagði Sigþór enn frem-
ur. „Þetta skýrist allt á næstu
dögum.“
Halldór Valdimarsson, formað-
ur knattspyrnudeildar HK, hafði
skilning á afstöðu Kolbeins. „Við
höfum ekki fengið nein óskiljan-
lega fá svör,“ sagði hann. „Þetta
er ungur maður með marga mögu-
leika á borðinu fyrir framan sig.
Það er ekki okkar að beita hann
óeðlilega miklum þrýstingi. Að
sjálfsögðu bind ég vonir við að
hann spili með okkur en við höld-
um okkar striki áfram hvernig
sem fer,“ sagði Halldór.
Þjálfari HK, Gunnar Guðmunds-
son, tók í svipaðan streng. „Ég get
engu svarað um hvort hann spili
með okkur í sumar. Það liggur
ekkert fyrir í því máli.“
Kolbeinn hefur þrátt fyrir að
hafa verið samningslaus frá síð-
astliðnu hausti æft með HK í vetur
þegar tækifæri gefst til. „Hann
hefur lítið getað æft með okkur
í vetur þar sem hann hefur æft
mikið og keppt með landsliðinu.
Þá hefur hann einnig farið mikið
til æfinga með erlendum félögum
og verið einnig meiddur. Málin
hafa þó verið margrædd við Kol-
bein og hans fólk sem vill þó bíða
og sjá til með framhaldið.“
Þeir sem þekkja til Kolbeins
segja að hann sé á góðri leið með
að verða knattspyrnumaður í allra
hæsta gæðaflokki. Staða hans er
þó þannig að hann er ekki bund-
inn neinu liði og ekkert því til fyr-
irstöðu að hann semji við annað lið
en HK á næstunni, hvort sem það
verði hér á Íslandi eða erlendis.
Fjöldi útsendara fylgdist með
leikjum íslenska liðsins í Belgíu
og ekki ólíklegt að fleiri fyrir-
spurnir berist í hann á allra næstu
dögum.
Hinn stórefnilegi Kolbeinn Sigþórsson, er samnings-
laus, aðeins tveimur dögum áður en Íslandsmótið í
knattspyrnu hefst. Óljóst hvar hann spilar í sumar.
Teitur Örlygsson
verður næsti þjálfari Njarðvík-
inga í Iceland Express deild karla
í körfubolta og tekur við starfi
Einars Árna Jóhannssonar.
„Það er tilhlökkun í mér. Ég
verð væntanlega með sama
kjarna. Það er orðið pottþétt
að Brenton Brimingham, Frið-
rik Stefánsson og Jóhann Árni
Ólafsson verði áfram. Egill Jón-
asson er eitthvað að skoða sín
mál og svo á eftir að klára Guð-
mund Jónsson. Þarna er kjarninn
kominn og svo verða ungu strák-
arnir áfram,“ segir Teitur en ekki
er víst hvort Igor Beljanski verð-
ur með liðinu næsta vetur.
„Það eru alltaf sömu kröfur hér
í Njarðvík, að vinna sem flesta
leiki og vonandi einhverja titla.
Ef okkur tekst að halda öllum
þessum mönnum þá verðum við
með hörkulið,“ segir Teitur sem
hefur unnið tíu Íslandsmeistara-
titla sem leikmaður Njarðvíkur.
„Ég er með aðrar áherslur, ann-
ars væri ekki þessi löngun hjá
mér að taka við þessu. Ég er bæði
með mínar hugmyndir um öðru-
vísi sóknarleik og öðruvísi varn-
arleik,“ segir Teitur sem veit að
draumastarfið verður allt annað
en auðvelt. „Nú reynir á mann,“
bætir Teitur við.
Alltaf sömu kröfurnar í Njarðvík