Fréttablaðið - 10.05.2007, Síða 74
Mikið hefur verið rætt
um af hverju Heiðar Helguson er
hættur að gefa kost á sér í leiki
með íslenska landsliðinu. Lands-
liðsþjálfarinn segir ástæðurnar
persónulegar og segir allt í góðu
á milli sín og Heiðars. Formaður
KSÍ, Geir Þorsteinsson, gaf út á
blaðamannafundi í mars að Heið-
ar yrði ekkert meira með í þessari
undankeppni en gaf engar frekari
útskýringar á því.
Það hefur ekkert heyrst í Heið-
ari um málið og Fréttablaðið hefur
reynt að ná tali af honum vegna
málsins í margar vikur en án ár-
angurs. Heiðar svaraði loksins
símtali frá blaðinu í gær en hafði
þó lítið að segja.
„No comment. Ég hef engan
áhuga á að tjá mig um landsliðið.
Ég mun kannski tjá mig um þessi
mál síðar en ég hef ekki áhuga á
því núna,“ sagði Heiðar en margar
sögur hafa verið á lofti um ástæð-
ur þess af hverju hann gefi ekki
kost á sér. Það truflar hann ekk-
ert. „Sögurnar verða bara að vera
áfram.“
Heiðar vill ekki einu sinni tjá
sig um það hvort hann ætli að gefa
kost á sér í landsliðsverkefnin í
júní og gerir það tæplega ef eitt-
hvað er að marka formann KSÍ.
Margir telja að Heiðar hafi farið
í fýlu út í þjálfarann, Eyjólf Sverr-
isson, þegar hann lét Heiðar sitja
á varamannabekknum í 90 mínút-
ur gegn Norður-Írum og Dönum í
byrjun september á síðasta ári því
hann hefur ekki gefið kost á sér
síðan.
Í næsta landsliðsverkefni var
sagt að Heiðar hefði fengið frí af
persónulegum ástæðum en á fundi
fyrir leikinn gegn Spáni í mars
var hann allt í einu hættur að gefa
kost á sér af persónulegum ástæð-
um.
„Það er allt í góðu á milli mín og
Eyjólfs. Ég er líka ekkert ósátt-
ur við KSÍ. Það er ekki ástæð-
an fyrir því að ég gef ekki kost
á mér,“ sagði Heiðar en margir
stuðningsmanna landsliðsins vilja
meina að Heiðar, sem og aðrir
sem ekki gefa kost á sér í lands-
liðið, eigi að útskýra fyrir þjóð-
inni af hverju þeir gefi ekki kost á
sér þar sem það eigi að vera heið-
ur að vera valinn í hópinn. Hvað
vill Heiðar segja við þetta fólk?
„Fólk má segja það sem það vill.
Ég mun ekki svara neinu um málið
strax og ætla ekkert að tjá mig fyrr
en mér finnst tíminn vera réttur,“
sagði Heiðar sem hafði ekki verið
í essinu sínu með landsliðinu áður
en hann var settur á bekkinn.
Síðasta mark Heiðars með lands-
liðinu kom 17. ágúst árið 2005 í 4-
1 sigri á Suður-Afríku. Hann var
í byrjunarliði landsliðsins fimm
sinnum eftir það án þess að kom-
ast á blað.
Knattspyrnukappinn Heiðar Helguson segir að allt sé í góðu lagi á milli sín og Eyjólfs Sverrissonar lands-
liðsþjálfara sem og á milli hans og KSÍ. Hann vill ekkert tala um ástæður þess af hverju hann vilji ekki
gefa kost á sér í landsliðið og vill ekki staðfesta hvort hann muni bjóða sig fram í landsleikina í júní eður ei.
| Hefst 12.maí