Fréttablaðið - 10.06.2007, Page 10
Tuttugu og fimm ár eru síðan Sig-
rún Einarsdóttir og Søren Larsen
eiginmaður hennar stofnuðu gler-
verkstæðið Gler í Bergvík. Þau hjón-
in ráku verkstæðið saman til ársins
2003 þegar Søren féll frá. Síðan þá
hefur Sigrún séð um reksturinn en
Ólöf systir hennar hefur hjálpað til
frá upphafi.
Sigrún lærði glerhönnun í Kaup-
mannahöfn í skóla sem nú heitir Dan-
marks designskole. Þar kynntist hún
eiginmanni sínum, sem var kennari í
keramikdeild skólans og sérhæfði sig
í gifsvinnu. „Um það bil ári eftir að
við kynntumst þurfti ég að fara heim
og Søren ákvað að skella sér til Ís-
lands í glerið með mér,“ segir Sigrún.
Søren lærði að blása gler á Íslandi
hjá Sigrúnu og kennaranum hennar
sem kom nokkrum sinnum í heimsókn
og að sögn Sigrúnar náði hann fljótt
mikilli leikni. „Søren var mjög góður
listamaður og við unnum allt saman,
bæði stök verk hvors annars og alls
konar nytjavöru,“ segir hún.
Sigrún segir að reksturinn hafi alla
tíð gengið vel hjá þeim og nóg hafi
verið að gera. „Við höfum verið í fram-
leiðslu á eigin hönnun og svo hef ég
gert svolítið af sérunninni vöru fyrir
fyrirtæki, stofnanir og félagasamtök
og eins selt fyrirtækjum tölvert af
skúlptúrum. Fyrir síðustu jól gerði ég
til dæmis hátt á þriðja hundrað eins
glös fyrir eitt fyrirtæki.“
Sigrún segir að á þessum tíma-
mótum sé hún samt að hugsa um að
breyta svolítið til. „Ég ætla að fara
að minnka framleiðslu á nytjamun-
um og gefa mér tíma og vera hvíld
til þess að sinna eigin listsköpun.
Ég ætla líka að gefa mér meiri tíma
til þess að sinna barnabörnunum og
kannski fer ég að ferðast um heim-
inn að heimsækja aðra glerlistamenn.
Hver veit, kannski verð ég í Honolulu
eða Japan á sama tíma að ári,“ segir
hún og hlær.
Í tilefni dagsins verður opið hús hjá
Sigrúnu og hægt að skoða verk henn-
ar og sjá glerblástur. „Það er frekar
sjaldgæft að ég sé með verkstæðið
sjálft opið en svo verður í dag. Svo eru
hér tveir ungir amerískir gestalista-
menn, Ryan Staub og Justin Brown,
sem verða að vinna sín verk og það
verður örugglega mjög spennandi
að sjá það. Ég tek á móti fólki á milli
tíu og fimm og allir eru velkomnir á
meðan húsrúm leyfir,“ segir hún.
Sjá nánar á www.gleribergvik.is
„Ég get gert allt sem þið viljið
að ég geri svo lengi sem ég
þarf ekki að tala.“
AFMÆLI
Fyrsti kappróðurinn á milli Oxford
og Cambridge á Thames
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
Jón Leví Bjarnason
Fiskakvísl 13, Reykjavík,
lést á Landspítalanum við Hringbraut föstudaginn
1. júní. Jarðarförin fer fram frá Grafarvogskirkju
þriðjudaginn 12. júní og hefst athöfnin kl. 13.00.
Svavar Bragi Jónsson
Bjarni Jónsson
Margrét Jónsdóttir
Björn Jónsson
tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
Okkar ástkæri
Þorleifur Guðfinnur
Guðnason
fyrrum bóndi á Norðureyri við
Súgandafjörð,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Ísafirði miðvikudaginn
6. júní. Jarðarförin verður auglýst síðar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Ævar Einarsson.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Ólöf Ólafsdóttir
frá Syðra-Velli, Grænumörk 2, Selfossi,
verður jarðsungin frá Selfosskirkju mánudaginn 11.
júní kl. 13.30.
Ingólfur Kristmundsson Elín Magnúsdóttir
Eyjólfur Kristmundsson Jóhanna Þorsteinsdóttir
Ólafur Kristmundsson Halldóra Óskarsdóttir
Barnabörn og langömmubörn.
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Símar: 567 9110 & 893 8638
www.utfarir.is • runar@utfarir.is
Alhliða útfararþjónusta
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
Þorbergur
Þórðarson
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og
amma,
Ingileif Bryndís
Hallgrímsdóttir
Lynghaga 13, Reykjavík,
lést 29. maí að hjúkrunarheimilinu Sóltúni. Útförin fer
fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík þriðjudaginn
12. júní nk. kl. 13.00.
Hallgrímur Gunnarsson Steinunn Helga Jónsdóttir
Gunnar Snorri Gunnarsson
Áslaug Gunnarsdóttir Þór Þorláksson
og barnabörn
MOSAIK