Fréttablaðið - 10.06.2007, Síða 30
Þrátt fyrir að atvinnu-
leysi sé með minnsta
móti um þessar mundir
eru alltaf einhverjir
sem þurfa að þiggja
atvinnuleysisbætur á
hverjum tíma. Gunnar
Richardsson, deildar-
stjóri vinnumiðlunarsviðs
hjá Vinnumálastofnun
höfuðborgarsvæðisins,
segir alla þá sem missa
vinnuna eiga rétt á at-
vinnuleysisbótum.
„Allir sem missa launaða
vinnu eiga rétt á atvinnu-
leysisbótum daginn sem
þeir verða launalausir,“
segir Gunnar og bætir við:
„Það er byrjað að telja frá
þeim degi sem fólk kemur
og skráir sig í eigin persónu
hjá vinnumiðlun en ekki er
hægt að fá greiðslur aftur í
tímann.“
Gunnar bendir á að ef
starfsmaður segi sjálfur
upp starfi sínu þurfi hann
að bíða í fjörutíu virka
daga áður en hann komist á
bætur.
„Miðað við að hafa unnið
í tólf mánuði á fólk full-
an bótarétt sem er 114.244
krónur miðað við meðal-
mánuð en það er reyndar
talið út frá dögum. Þetta eru
grunnatvinnuleysisbætur
en þeir sem hafa verið á
hærri launum fyrir geta
fengið tekjutengdar bætur í
þrjá mánuði,“ segir Gunnar
og útskýrir að þá sé miðað
við að bæturnar nemi sjötíu
prósentum af heildarlaun-
um síðustu sex mánuðina.
„Bæturnar verða þó aldrei
hærri en 185.400 krónur.
Síðan er borgað með hverju
barni upp að átján ára aldri,
211 krónur á dag.“
Varðandi námsmenn segir
Gunnar þá þurfa að eiga að
minnsta kosti þriggja mán-
aða vinnusögu á síðustu
þremur árum áður en námi
er hætt og geta þá tiltekið
sumarstörf sín á þeim tíma.
Lágmarksréttur til at-
vinnuleysisbóta fæst að
sögn Gunnars ef viðkom-
andi hefur unnið meira en 25
prósenta vinnu í að minnsta
kosti þrjá mánuði á síðustu
tveimur árum. „Sjálfstæðir
atvinnurekendur lenda hins
vegar gjarnan á mjög erf-
iðu svæði því þeir þurfa
að hætta rekstri til að geta
skráð sig og fá þá bætur
miðað við þau trygginga-
gjöld eða skatta sem þeir
hafa verið að greiða,“ segir
Gunnar og bætir því við að
það sé að sjálfsögðu ekki
hægt að vera með rekstur
í gangi samhliða atvinnu-
leysisbótunum.
Ákveðnar skyldur felast í
því að þiggja atvinnuleysis-
bætur auk þess að mæta til
skráningar á tveggja vikna
fresti. „Það þarf að koma
reglulega í viðtöl til ráð-
gjafa og gera grein fyrir
sér. Að jafnaði er miðað við
að slík viðtöl séu mánaðar-
lega. Svo fer fólk á netið
og staðfestir þar að það sé
ennþá í atvinnuleit. Þetta
þarf alltaf að gera milli 20.
og 25. hvers mánaðar til að
fá útborgað fyrsta virka
dag næsta mánaðar,“ segir
Gunnar.
Spurður hvort fólk hafi
rétt á að hafna störfum sem
því bjóðast segir Gunnar:
„Nei, enda reynum við að
bjóða fólki störf við hæfi
miðað við menntun og
starfsreynslu. Það er ekki
hægt að hafna starfi jafnvel
þó að kaupið sé lágt eða eitt-
hvað slíkt. Hafni fólk starfi
fær það fjörutíu daga refs-
ingu en það þýðir að það er
svipt bótum í fjörutíu virka
daga. Það sama á við ef fólk
mætir ekki á námskeið sem
það er boðað til; þá gildir
þessi fjörutíu daga refsing
líka.“
Gunnar segir alltaf reynt
að finna fólki störf við sitt
hæfi miðað við menntun og
starfsreynslu þannig að það
er tiltölulega mikið svigrúm
fyrir fólk til að finna rétta
starfið. „Þetta gengur auð-
vitað misvel en eins og stað-
an er núna vantar mikið af
fólki í hin ýmsu störf enda
er atvinnuleysi nánast ekki
neitt í dag. Það fólk sem
er á skrá hjá okkur núna
er mikið til fólk sem er að
skipta um vinnu eða skóla-
fólk sem hefur ekki fengið
sumarstarf,“ segir Gunnar
og bætir því við að þessir
hópar staldri yfirleitt stutt
við á bótum.
Að lokum tekur Gunnar
fram að einungis sé hægt að
þiggja atvinnuleysisbætur í
þrjú ár í senn en bótaréttur-
inn fáist á ný eftir tvö ár á
vinnumarkaði.
Finnum fólki
störf við hæfi
Starfssvi›
Vinna vi› tekjubókhald
Afstemmingar
Útgáfa reikninga
Önnur tilfallandi störf sem tengjast
bókhaldi
Hæfnis- og menntunarkröfur
Vi›urkenndur bókari, verslunarpróf
e›a hli›stæ› menntun
Bókhaldskunnátta e›a reynsla af
sambærilegu starfi
Hæfni í mannlegum samskiptum
Metna›arfull og sjálfstæ›
vinnubrög›
Nánari uppl‡singar um fyrirtæki› er
a› finna á heimasí›u fless
www.securitas.is
Vi› erum til fyrirmyndar!
Samkvæmt árlegri könnun VR me›al
starfsfólks 2000 fyrirtækja á Íslandi
er Securitas me›al hinna efstu. A›
launum hlaut fyrirtæki› vi›urkenningu
VR og nafnbótina
Fyrirmyndarfyrirtæki 2006.
SECURITAS
Í bo›i er áhugavert og krefjandi starf, traustur vinnusta›ur, gó› starfsskilyr›i,
gó›ur vinnuandi og samkeppnishæf laun.
Umsóknir óskast fylltar út á www.hagvangur.is fyrir 17. júní nk.
Uppl‡singar veita Ari Eyberg og Inga Steinunn Arnardóttir.
Netföng: ari@hagvangur.is og inga@hagvangur.is
Skógarhlí› 12 • 105 Reykjavík • Sími 520 4700 • www.hagvangur.is
- vi› rá›um
Securitas óskar eftir a› rá›a öflugan starfsmann í
fjárrei›udeild. Á svi›inu starfa 8 manns sem sinna
öllu bókhaldi fyrirtækisins.
Starfsma›ur í fjárrei›udeild Securitas