Fréttablaðið


Fréttablaðið - 10.06.2007, Qupperneq 53

Fréttablaðið - 10.06.2007, Qupperneq 53
Tæknistjóri Gagnaveitu Reykjavíkur Leitað er að einstaklingi sem er drífandi, árangurs- drifinn, skipulagður og tilbúinn að taka þátt í mótun þjónustu sem byggir á nýjustu samskiptatækni. Tæknistjóri er deildarstjóri tæknideildar Gagnaveitu Reykjavíkur sem sér um uppbyggingu, rekstur og viðhald á gagnaflutningskerfi GR. Starfssvið: • Mótun tæknistefnu • Stjórnun tæknideildar • Gerð og eftirfylgni rekstrarlýsinga • Samningagerð við birgja og þjónustuaðila • Gerð, mælingar og eftirfylgni þjónustusamninga • Áætlanagerð og kostnaðarstjórnun Ábyrgðarsvið: • Rekstur ljósleiðaranets GR • Uppbygging og rekstur netbúnaðar og tilheyrandi upplýsingakerfa • Uppitími kerfa Menntunar- og hæfnikröfur: • Háskólamenntun á sviði verkfræði, tölvunarfræði eða sambærilegt • Góð þekking á netkerfum • Reynsla af rekstri tölvu- eða fjarskiptakerfa æskileg • Stjórnunarreynsla æskileg • Samstarfshæfni, metnaður, frumkvæði, agi og sjálfstæði í vinnubrögðum Umsjón með starfinu hafa Helga Jónsdóttir (helga.jonsdottir@capacent.is) og Tómas Oddur Hrafnsson (tomas.hrafnsson@capacent.is) hjá Capacent Ráðningum. Umsóknarfrestur er til og með 24. júní nk. Umsækjendur eru vinsamlega beðnir um að sækja um starfið á heimasíðu Capacent Ráðninga, www.capacent.is. Gagnaveita Reykjavíkur, dótturfélag Orkuveitu Reykjavíkur, vinnur að uppbyggingu, þjónustu og rekstri á gagna- flutningskerfi byggt á ljósleiðaratækni. Um ljósleiðara- netið rekur Gagnaveitan öflugt dreifi- og samskiptakerfi fyrir sjónvarp, síma og Internet, byggt á MPLS/IP tækni. Yfirlæknir á dag- og göngudeild lyflækninga Laus er til umsóknar 100% staða yfirlæknis við dag og göngudeild lyflækninga við lyflækningadeild FSA. Umsækjandi skal hafa fullgild réttindi í lyflækningum og æskilegt að hafa réttindi í einhverri af eftirtöldum undirgreinum lyflækninga, svo sem krabbameinslækningum, innkirtla- og efnaskiptasjúkdómum, lungnalækningum, nýrnalækningum og smitsjúkdómum. Starfinu fylgir vaktskylda og vinnuskylda á lyflækningadeild, þátttaka í kennslu heilbrigðisstétta, þjálfun aðstoðar- og deildarlækna auk þátttöku í rannsóknavinnu. Næsti yfirmaður er forstöðulæknir lyflækningadeildar. Yfirlækninum er ætlað byggja upp og þróa dag- og göngudeildarþjónustu lyflækna við FSA á nýrri dag- og göngudeild lyflækninga sem verður tekin í notkun í ágúst næstkomandi. Þar verður veitt fjölbreytt meðferð þó mest í krabbameinslækningum. Umsóknarfrestur er til 30. júní 2007 og staðan veitist frá 1.ágúst 2007 eða eftir samkomulagi. Nánari upplýsingar um stöðuna veitir Jón Þór Sverrisson forstöðulæknir í síma 463 0100 eða 860 0468 og í tölvupósti jonthor@fsa.is . Laun eru samkvæmt kjarasamningi Læknafélags Íslands. Umsóknum um ofangreindar stöður skal skila í tvíriti á þar til gerðum eyðublöðum, www.heilbrigðisraduneyti. is/media/Starfsrettindi_lækna/Umsokn_laekningaleyfi.doc auk fylgiskjala til Þorvaldar Ingvarssonar framkvæmdastjóra lækninga, FSA Eyrarlandsvegi, 600 Akureyri. Starfsmaður í ræstingu- og búrstörf Laus er til umsóknar staða starfsmanns í ræstingu- og búrstörf, blandað starf á nýrri dag- og göngudeild Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri. Um er að ræða 100% stöðu í dagvinnu. Á dagdeildinni verður meðal annars krabbameinslyfjameðferð, dag- og göngudeild lyflækninga, speglun meltingar- og þvagfæra. Æskileg er reynsla í ræstinga- og búrstörfum. Lögð er áhersla á frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og hæfileika í samskiptum og samvinnu. Starfsmaðurinn ber ábyrgð á verkefnum sem flokkast undir ræstingu- og búrstörf. Móttöku- og læknaritari Laus er til umsóknar 100% staða móttöku- og læknaritara við dag- og göngudeild lyflækninga á FSA. Starfskjör fara eftir kjarasamningi KJALAR og fjármálaráðherra. Staðan veitist frá og með 15. ágúst eða eftir samkomulagi. Umsækjendur skulu hafa fullgild réttindi sem læknaritari en auk fagþekkingar er lögð áhersla á góða hæfileika á sviði samskipta og samvinnu. Umsóknum skal skilað á þar til gerðum eyðublöðum sem fást á skrifstofu FSA eða www.fsa.is til Sigríðar Jónsdóttur forstöðulæknaritara Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri, Eyrarlandsvegi, 600 Akureyri, tölvupóstur: siggaj@fsa.is og gefur hún jafnframt nánari upplýsingar. Hjúkrunardeildarstjóri Laus er til umsóknar staða hjúkrunardeildarstjóra á nýrri dag- og göngudeild Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri. Um er að ræða 100% stöðu í dagvinnu. Á dagdeildinni verður meðal annars krabbameinslyfjameðferð, dag- og göngudeild lyflækninga, speglun meltingar- og þvagfæra. Hæfniskröfur eru próf frá viðurkenndri stofnun hjúkrunarmenntunar. Æskileg er reynsla í stjórnun og rekstri og/eða nám í stjórnun og rekstri. Lögð er áhersla á frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og hæfileika í samskiptum og samvinnu. Hjúkrunardeildarstjóri ber fag-, stjórnunar- og rekstrarlega ábyrgð á hjúkrun á deildinni. Hjúkrunardeildarstjóra er ætlað byggja upp, þróa og samhæfa hjúkrun dag- og göngudeildarþjónustu á nýrri dag- og göngudeild sem verður tekin í notkun í ágúst næstkomandi. Næsti yfirmaður er framkvæmdastjóri hjúkrunar. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og fjármálaráðherra. Staðan er laus frá 1. ágúst 2007 eða nánara samkomulagi. Nánari upplýsingar gefur Ólína Torfadóttir, framkvæmdastjóra hjúkrunar í síma 463 0271, gsm 8630271 eða netfang: olina@fsa.is og Þóra Ákadóttir, starfsmannastjóri hjúkrunar í síma 4630273, gsm 8601273 eða netfang: thora@fsa.is Umsóknir með upplýsingum um menntun og fyrri störf skulu sendar til Ólínu Torfadóttur, framkvæmdastjóra hjúkrunar. Næsti yfirmaður er hjúkrunardeildarstjóri dag- og göngudeildar. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Einingar Iðju. Staðan er laus frá 15. ágúst 2007 eða eftir samkomulagi. Nánari upplýsingar gefur Þóra Ákadóttir, starfsmannastjóri hjúkrunar í síma 4630273, gsm 8601273 eða netfang: thora@fsa.is Umsóknir með upplýsingum um menntun og fyrri störf skulu sendar til Þóra Ákadóttir, starfsmannastjóri hjúkrunar. Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri Umsóknarfrestur um ofangreindar stöður er til 30. júní 2007. Öllum umsóknum verður svarað. Fr um Grundartanga • 301 Akranesi • Sími 430 1000 • Fax 430 1001 • nordural@nordural.is • www.nordural.is Framtíðarstörf hjá Norðuráli Hvaða kröfur gerum við? Sveinspróf í viðkomandi iðngrein eða að umsækjandi stefni að sveinsprófi innan árs Góð samskiptahæfni, geta til að vinna sjálfstætt og starfsáhugi Reynsla af vinnu í iðnaðarumhverfi eða við sambærileg störf er æskileg Staðgóð kunnátta í ensku og almennri tölvunotkun kemur í góðar þarfir Hvað veitum við? Góður aðbúnaður hjá fyrirtæki í stöðugri sókn Kraftmikill og góður hópur samstarfsfólks Starfsþjálfun og símenntun Atvinnuöryggi, traustar tekjur og laun að hluta árangurstengd Umsókn Vinsamlega sendu okkur umsókn þína fyrir 20. júní n.k. Þú getur sótt um á vef fyrirtækisins, www.nordural.is, sent umsókn þína á netfangið umsokn@nordural.is eða póstlagt umsóknina, merkta: Atvinna. Við förum með umsókn þína sem trúnaðarmál. Öllum umsóknum verður svarað. Nánari upplýsingar veita Skúli Skúlason framkvæmdastjóri starfsmannasviðs, Einar F. Björnsson viðhaldsstjóri og Lárus Hjaltested yfirvaktstjóri kerskála í síma 430 1000. Norðurál óskar eftir að ráða vélvirkja og vélfræðinga til starfa í dagvinnu á verkstæði og í vaktavinnu í kerskála. Um framtíðarstörf er að ræða og æskilegt að umsækjendur geti hafið störf sem fyrst. Um þessar mundir er unnið að stækkun Norðuráls sem felur í sér að framleiðslugeta álversins verður aukin í 260.000 tonn á árinu. Hjá okkur starfar fjöldi iðnaðarmanna sem sinna eftirliti og viðhaldi á búnaði í öllum deildum. Áhersla er lögð á jafnan rétt kvenna og karla til starfa. VÉLVIRKJAR - VÉLFRÆÐINGAR 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.