Fréttablaðið - 10.06.2007, Qupperneq 66
Ein merkilegasta bók
sem ég hef lesið er án efa
bókin Aðlaðandi er konan
ánægð eftir leikkonuna
Joan Bennett. Bókin heit-
ir á frummálinu How to be
attractive og kom fyrst út árið 1941,
en fjórum árum síðar var hún þýdd
og útgefin hérlendis.
Ég fann þennan merka grip á
bókasafni fyrir mörgum árum og
las af miklum áhuga, því sannar-
lega tek ég undir þessa yfirlýsingu
Joan að vissulega hljóti „konan“ að
vera ánægð þegar aðrir að henni
laðast.
Bókinni var ætlað að vera eins-
konar handbók fyrir mýkra kynið
um hvernig á að líta vel út, koma
fallega fram og vera á allan hátt
sem dömulegust og mest aðlaðandi.
Til þess ráðlagði Joan kynsystrum
sínum meðal annars að bursta hárið
daglega, hreinsa húðina kvölds
og morgna, drekka vatn, borða
smjör og rjóma ef þær vildu fitna
og sleppa því ef þær vildu grenn-
ast. Allt saman mjög skynsamleg-
ar athafnir sem liggja í sjálfu sér í
augum uppi.
Það merkilega við þessa bók er
þó að mínu mati ekki fegrunar- og
aðlöðunarráð fröken Bennett, held-
ur formáli bókarinnar því í honum
talar hún beint til kynsystra sinna
og fer þar yfir breytta stöðu mála
í seinni heimsstyrjöld. Nú séum við
stelpurnar farnar að vinna úti en
það þýði samt ekki að við þurfum að
láta selja okkur aðra karlavitleysu.
Auðvitað vilji konur halda áfram
sínu pjatti þó þær séu útivinnandi.
Að karllæg gildi séu ágæt, en vitan-
lega verði að halda áfram í þessi
kvenlegu. Ekki breytast í karlkonur.
Af einhverjum ástæðum virðast þó
sumar kynsystur mínar hafa mis-
skilið þetta. Halda að til að ná jafn-
rétti verði konur að verða eins og
karlar. Gleyma því að kvennapjatt
er mjög skemmtilegt þó að það
flokkist ekki sem virðingarvert í
hugum karla og pjattaðir karlar
þyki púkó.
Gleyma því að aðlaðandi er fem-
inistinn ánægður. Gleyma því að til
að hið svokallaða jafnrétti felst ekki
í að verða eins og karl, heldur að fá
að njóta virðingar fyrir það sem við
erum – eins og við erum.
„ÞAÐ ELSKA ALLAR KONUR HEIMSFRÆGA MENN“
GRETTIR
Miðasala 568 8000
www.borgarleikhús.is
grettir.blog. is
SMS
LEIKUR
SENDU SMS JA 2HO
Á 1900 OG ÞÚ GÆTIR
UNNIÐ BÍÓMIÐA!
VINNINGAR ERU BÍÓMIÐAR,
DVD MYNDIR, TÖLVULEIKIR
OG MARGT FLEIRA!
V
in
n
in
g
ar
v
er
ð
a
af
h
en
d
ir
h
já
B
T
Sm
ár
al
in
d.
K
ó
p
av
o
g
i.
M
eð
þ
ví
a
ð
t
ak
a
þ
át
t
er
tu
k
o
m
in
n
í
SM
S
kl
ú
b
b.
9
9
kr
/s
ke
yt
ið
.
HEIMSFRUMSÝND 8. JÚNÍ
STRANGLEGA BÖNNUÐ
FYRSTUR
MEÐ
FRÉTTIRNAR
www.visir.is