Tíminn - 30.11.1980, Qupperneq 12

Tíminn - 30.11.1980, Qupperneq 12
Sunnudágur 30. riövtehibéi' ISgO. Dr. Pauling giskar á að svo mikil heilsubót sé fólgin i töku 3 til 6 gramma af C-vitamini á dag að flest fólk geti lengt lifdaga sina um 12—18 ár á þann hátt! C-vitamin örvar vamarkerfi líkamans til dáða, eykur framleiðslu hvitra blóðkorna, eflir framleiðslu mótefna gegn vims- sjúkdómum og eykur þvi að öllum likindum framleiðslu líkamans á „interferon”, þessu nýuppgötvaða efni sem talið er að sé mögulegt læknislyf gegn krabba meini. Geir Viðar Vilhjálmsson sálfræðingur: C-vitamín eykur mótstöðuafl, segir Nóbelsverðlaunahafinn Linus Pauling Ndbelsverðlaunahafinn Linus Pauling. Sá visindamaður sem mest hefur rannsakað C-vitamin hin siðustu ár er hinn tvöfaldi Nóbelsverðlaunahafi Linus Pauling. Hann fékk Nóbelsverð launin I efnafræði árið 1954, friðarverðlaun Nobels árið 1962 og 1975 fékk hann heiðursmerki bandarisku þjóðarinnar fyrir afrek I visindum. 1 bók sinni C- vítamin, kvef og inflúenza sem út kom árið 1970 gerir hann grein fyrir sögu C-vitamins og rekur helstu rannsóknir og áhrif þess. Munum við rekja hér nokkur eftirtektarverð atriði úr þessari bók. Dr. Pauling tekur gaumgæfi- lega fyrir þá spurningu hvers vegna heilsubætandi áhrif þessa vitamlns séu jafn umdeild og raun ber vitni. Hann bendir á að tilraunir sem afsanna eiga gildi C-vitamins beri það einkenni að of smáir dagskammtar hafi verið notaðir miðað við þá stóru skammta sem þarf til þess að árangur fáist. Hann sýnir einnig fram áað umtalsverður árangur hafi komið fram I sumum hinna „neikvæðu” tilrauna, sem höf- undar hafa ekki tekið mark á. C-vitamin eykur mótstöðuafl Til dæmis bendir hann á að fimm rannsóknir þar sem aðeins 70 til 200 mg af asborbin sýru voru tekin á dag gáfu samt að meðaltali 31% færri sjúkdómstilfelli. Niu rannsóknir þar sem eitt gramm af C-vita- mini eða meira var tekið gáfu hinsvegar 40% færri sjúkdómstilfelli. Gott dæmi um velheppnaða og nákvæma rannsókn þar sem eitt gramm af C-vitamlni var gefið á dag er rannsókn Dr. G. Ritzel sem birt var 1961. Hann gaf 279 drengjum sem voru á skiðum áðurnefndan skammt af C- vitamini i 5 til 7 daga meö nokkru millibili. Kvefsækni án C-vitamintöku var um það bil tuttugu af hundraði. Beitt var samanburðarhóp- um, annar hópurinn fékk C-vita- min en hinn ekki, hvorki þátt- takendur né læknarnir vissu hvor hópurinn fékk C-vitamin- töflurnar og hvor fékk gerfitöfl ur. Óháöur hópur visindamanna las siöan úr niöurstöðum og reiknaði út árangurinn. Arang- urinn var i stuttu máli sá að tiöni kvefs minnkaði um 45%, lengd veikindanna styttist um 29% og samanlagt batnaöi heilsufarið um 61% við töku þessara skammta af C-vita- mini. Annaö gott dæmi um velgeröa, tviblinda tilraun var gerö i Toronto af Anderson, Reid og Beaton og birtist 1972. Þar fengu 407 einstaklingar 1 gramm á dag af C-vitamini og auk þess 3 grömm á dag i þrjá daga ef einhver sjúkdómur gerði vart við sig. 411 einstak- lingar sem fengu gervilyf voru notaöir • til samanburöar. Rannsóknin stóð yfir i fjóra mánuöi. Veikindadagar á hvern einstakling voru 30% færri, dagar frá vinnu voru 33% minni hjá þeim sem fengu C-vitamin. Tölfræöimat á þessum niður- stöðum gefa 99,9% likur á þvi að þær séu réttar. Einstaka læknar sem beitt hafa stórum skömmtum af C- vitamlni telja sig hafa náð enn betri árangri. Dr. Gildersleeve skýröi til dæmis svo frá i júli- ágústhefti timaritsins Fact 1967 að hann hefði komist að þvi að meö þvi að gefa 4 til 5 grömm af C-vitamini á dag heföu 95% 400 sjúklinga sem hann meöhöndl- aöi á þennan hátt fengið bata af kvefi. Hann hélt þvi einnig fram i greininni aö árangur C-vita- mins sem lyfs gegn kvefi „sé stungið undir stól vegna hins fjárhagslega taps'sem það heföi i för með sér fyrir lyfjafram- leiöendur, læknatimarit og læknana sjálfa.” Áhrif C-vitamins og krabbamein C-vitamin hefur tvennskonar aöaláhrif i likamanum, það örv- ar framleiöslu mótefna gegn virusum, örvar framleiöslu hvitra blóðkorna, eflir i stuttu máli varnarkerfi llkamans. I öðru lagi er C-vitamin nauðsyn- legt við myndun bandvefs, en heilbrigður bandvefur er anuö- synlegur liður i eðlilegri starf- semi likamans. Blæöingar þær sem fram koma úr tannholdi við iangvarandi skort af C-vitamini koma einmitt til vegna hrörn- unar i bandvef háræðanna. Vegna hinna jákvæðu áhrifa C-vitamins á bandvefinn má telja llklegt að aukin taka C- vitamins geti komið að liði, við lækningu og fyrirbyggingu brjóskloss en margir liða og verða jafnvel örkumla af völd- um þess. Einnig viröist liklegt að C-vitamin geti flýtt fyrir bandvefsmyndun þannig að sár grói fyrr en ella. Linus Pauling heldur þvi fram að ascorbinsýra sé i raun fæðu- tegund og hann telur að ef efnið hefði fundist nú á timum heföi það ekki veriö flokkað sem vitamin. Maöurinn getur ekki framleitt C-vitamin sjálfur það heta hinsvegar ýmis dýr og útfrá hugleiðingum um fram- leiöslu ýmissa dýrategunda af C-vitamini miðaö við likamsstærð kemst Pauling að þeirri niðurstöðu aö maður að meöalþyngd muni þurfa á bilinu 3—6 grömm af C-vitamini á dag til þess að efnaskipti hans starfi sem best. Vegna þess hve efna- skipti fólks eru einstaklings- bundin, mataræði og lifnaðar- hættir mismunandi telur Paul- ing að dagsþörfin geti legiö á bilinu 250 milligrömm allt upp I 9 grömm. C-vitamin gegnir lykilhlutverki i efnaskiptum i likamanum. bað er milliliður i efnaskiptum vatnsefnis og súrefnis, það getur gefiö frá sér vatnsefni og tekið viö þvi aftur og hvetur þannig fjölmargar lif- rænar efnabreytingar. Dr. Pauling giskar á aö svo mikil heilsubót sé fólgin I þvi aö tka nægilega stóran skammt C- vitamins — um það bil 3—6 grömm fyrir flest fólk ( að ævi- dagarnir geti lengst um hvorki meira né minna en 12 til 18 ár. Vegna hinnar axmennu eflingar varnarkerfis likamans telur Dr. Pauling liklegt að C- vitaminiö örvi framleiöslu Interferons einnig. Þar að auki leiöir aukinn styrkur bandvefj- arinstil þess að krabbameins- frumur geta siöur flutt sig til I likamanum ogsmitaðút frá sér. 1 þriðja lagi fundu Fenninger og fleiri árið 1976 að 5 grömm af C- vítamlni á dag jók á marktækan hátt framleiðslu hvitra blóö- korna. Hvitu blóðkornin eyöi- leggja bakteriur og aðra aðskotahluti svo sem krabba- meinsfrumur. Vitað er aö krabbameinssjúklingar sem framleiða mikið af hvitum blóð- kornum hafa meiri möguleika á lækningu en aðrir. 1 fjórða lagi er rétt að endurtaka hér að C- vitamin tekur þátt i framleiðslu hormóna nýrnahettubarkarins og heiladingulsins og eykur þannig almennt þol gegn álagi. C-vitamin og kólestról Fyrir hjarta og æðasjúklinga er vert að hafa i huga að Ginter fann i rannsóknum sem birtar voru 1973 g 1975 aö eitt gramm af C-vitamini á dag lækkaði kolestról-magn blóðsins úr 253 milligrömmum á decaliter i 210 mg á dcl. á 6 mánaða timabili, hér var um að ræða fólk sem aöeins hafði meðalhækkun á kolesteróli. Hjá samanburðar- hópnum jókst hins vegar kólesterolið um 12 mg á decaliter. í þessu sambandi er rétt að minna á rannsókn Altschul og fleiri frá 1955 en þar kom i ljós að vitamin B3, nicótinsýra lækkaði kolesterol- magn i blóði um 50 mg á decaliter að meðaltali. Meðal margra náttúru- lækningamanna rikir sú trú að náttúruleg C-vitamin og C- vitaminskyld efni svokölluð bioflavióids séu verðmætari fyrir likamann en hrein ascorbinsýra en engar rannsóknir virðast vera fyrir hendi til þess aö skera úr um þetta atriði. Ascorbinsýru er ódýrast að kaupa eftir vikt i lyfjabúð, samsvarar ein slétt- full tekseið af hreinu C-vitamin- dufti um það bil 4 grömmum. C- vitamintöflur innihalda bindi- efni auk þess er óþarfa kostn- aöur við gerð þeirra sem sjálfsagt er að spara sér. Eru aukaverk- anir af C-vita- mini í stórum skömmtum? C-vitamin eru náttflrulegt næringarefni og hefur mjög óverulegar aukaverkanir miðað við lyf. Algengasta aukaverkun- in þegar tekin eru 3 grömm eða meira I einu er lausar hægðir. jafnvel niðurgangur, einkum sé þaö tekið á fastandi maga. Fari inntakan fram á eftir máltiö kemur niðurgangur oftast ekki til, hann hverfur á þremur til fjórum dögum og auðvelt er aö forðast þessi aukaáhrif með þvi að hækka skammtinn smátt og C 0) o o cr CD O c <D O) o c c CTJ (D C-vitamin, öðru nafni askorbinsýra ogsama efnieftir það hefur gefið frá sér tvö vatnsefnisatóm. C-vita- min er mikilvægasti milliliður fyrir samskipti súrefnis og vatnsefnis Ilikamanum, það tekur þátt i lang- flestum efnabreytingum. Gefur frá sér og tekur viö vatnsefni á vlxl.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.