Tíminn - 30.11.1980, Blaðsíða 24

Tíminn - 30.11.1980, Blaðsíða 24
32 Surinudagur 30. nóvember 1980. HLJÓMPLÖTUÚTGÁFAN H.F. OG FLEIRI TIL STYRKTAR FÉLAGASAMTÖKUNUM VERND í HÁSKÓLABÍÓI SUNNUDAGINN 7. DES. KL. 22.00 Orðabelgur Myndskreytt orða bók handa börnum Bókaútgáfan örn og örlygur hf. hefur gefiö út mjög sérstæöa oröabók fyrir börn. Nefnist hún ORÐABELGUR og ber undirtitil- inn Myndskreytt oröabók handa börnum. Stefán G. Jökulsson islenskaöi textann sem er eftir Heather Amery. Teikningar i bókinni eru eftir Stephen Cart- wright en ráögefandi viö efnisval- iö var Betty Root viö lestrar- kennsludeild Readingsháskóla. Betty Root segir um bókina á bókarkápu: „Vonandi þykir flest- um börnum þess nýstárlega oröa- bók skemmtileg. Börnum þykir fátt jafngaman og aö skoöa eöa Hoather Amery og Stephen CertwOQht ^ ^rOtOMCWUft* Myndskreyít orðabók handa bórnum lesa bók meö fullorönu fólki og vit er aö myndirnar gefa þeim æriö tilefni til samtals viö foreldra og kennara. Tilvaliö er aö börnin nefni fyrst hverja persónu, dýr eða hlut sinu nafni og meö hvatn- ingu og hjálp mun þeim brátt tak- ast að tengja oröin myndunum. Bókin örvareinig imyndunarafl þeirra barna sem lengra eru komin i lestrarnáminu og auð- veldar þeim að semja stuttar sög- ur eöa frásagnir. Aftast i bókinni er orðunum raðað i stafrófsröö. Þar geta börnin leitaö oröa og siöan fundiö rétta blaðsiðu og mynd. Þannig þjálfast þau i að nota uppsláttar- rit og oröabækur. Munið aö i Oröabelg eru þúsund orö. Það tekur sinn tima aö læra þau öll”. Allar myndir i bókinni eru lit- prentaðar. A hverri opnu leynist önd sem stundum getur veriö erfitt aö finna og börnin hafa gaman af aö leita aö. Setning og filmvinna fór fram á Prentstofu G. Benediktssonar en bókin er prentuð i Englandi. Sérð þú < það sem ég sé?1 Bðrn skynja hraða ög f jarlaegðir á annan hátt en fullorðnir. Aðventa í Skálholti Fyrsta sunnudag I aöventu hefst I Skálholtsprestakalli aö- ventuhátiö. Sunnudag, 30. nóv., kl. 14 predikar dr. Sigurbjörn Einarsson, biskup, viö messu I Skálholtskirkju. Sama dag kl. 16 verður sam- koma i krikjunni. Glúmur Gylfa- son, organisti, leikur verk eftir Bach og Buxtehude, og Skálholts- kór syngur. Sýnd verður kvik- mynd, sem tekin var við upp- groftinn I Skálholti og við niu alda afmæli biskupsstóls i Skálholti 1956. Loks flytja börn helgileik við jötu. Þá verða einnig haldnar sam- komur á útkirkjum prestakalls- ins. Þriöjudagskvöld, 2. des., kl. 21 flytur sira Eirikur J. Eiriks- son, prófastur á Þingvöllum, erindi i Bræðratungukirkju um Orð Guðs og islenska tungu. Rósa B. Blöndal les kvæði og sr. Ingólf- ur Astmarsson heldur hugvekju. Fimmtudagskvöld, 4. des.,ræðir sr. Sigfinnur Þorleifsson, prestur I Stóra-Núpskalli, um Bibliuna og lestur hennar I Haukadalskirkju og föstudagskvöld, 5. des., ræðir sr. Þorbergur Kristjánsson, prestur i Digranesskalli, um Fermingarbarn, foreldra og söfn- uð i Torfastaðakirku, en sr. Heimir Steinsson, rektor, hefur hugvekju. Laugardag, 6. des., kl. 16verð- ur svo samkoma i Skálholts- kirkju. Sigurður Pálsson, náms- stjóri i kristnum frasðum, flytur erindi um kristna fræðslu og upp- eldi. Jóhanna Möller syngur með aðstoð Glúms Gylfasonar. Dr. O. Prunner leikur á orgel. Helgileik- urinn verður endurfluttur, og sr. Sveinbjörn Sveinbjörnsson i Hruna flytur hugvekju. Hátiðinni lýkur sunnudag, 7. des. Þá verður messa i Skálholti kl. 14, og predikar dr. Sigurður Pálsson, vigslubiskup. Organisti verður Rut Magnúsdóttir. Siöasta samkoman verður svo i Skál- holtskirkju sama dag kl. 16. Kammersveit Tónskóla Rangæ- inga leikur undir stjórn Friðriks Guðna Þorleifssonar, og vonir standa til, að Árnesskór og barnakór úr Hreppum syngi und- ir stjórn Lofts Loftssonar. Loka- orðflytur prófastur, sr. Eirikur á Þingvöllum. Fermingarbörn i Skálholtskalli taka þátt i hátiðinni, og er það upphaf fermingarundirbúnings á vetrinum. Þau annast flutning efnis á samkomunum og vinna a sýningu,, sem standa mun á Skálholtskirkju þessa daga. Ber hún yfirskriftina: Brot úr sögu skristinnar fræösiu á tslandi. Fleiri, en hér eru taldir, koma fram á samkomum þessa viku, m.a. sönghópur stúlkna úr KFUK og að likindum sönghópur úr Æskulýðsfélagi Selfosssafnaðar. Dagfinn Föllesdal í Norræna húsinu Hinn þekkti norski heimspek- ingur Dagvinn FÖllesdal heldur fyrirlestur i Norræna húsinu þriðjudaginn 2. desember kl. 20:30, og nefnir hann fyrirlest- urinn „Hovedströmninger I vár tids filosofi”. Dag Föllesdal kemur hingað til lands i boði Norræna hússins og tekur þátt i öðru norræna heimspekiþing- inu, sem haldið er dagana 29. nóvember — 1. desember. Hann stundaði nám I Noregi og framhaldsnám I Þýskalandi og Bandarikjunum. Doktors- prófi laukhann frá Harvard-há- skóla 1961. Hann hefur veriö prófessor i heimspeki við Oslóarháskólafrá 1967 og einnig viö Stanford University árin 1966-76. Sérsvið hans er rökfræði, en á fyrirlestrinum i Norræna húsinu ræðir hann um ýmsar helstu heimspekistefnur vorra tíma. Fyrirlesturinn er opinn öllum, sem áhuga hafa á menningar- straumum nútimans.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.