Tíminn - 30.11.1980, Blaðsíða 20
>28
Sunnudagur 30. nóvember 1980.
l'ii'jililí
verslun
iðnaður
<Ja
þjónusta
vinnsla
landbúnaðarafurða
vinnsla
sjávarafurða
allt
í einu
númeri
214 00
gefur samband við ailar deildir kl. 9-18
KAUPFÉLAG EYFIRÐINGA
AKUREYRI
Besta heimilishjálpin
fullkomin uppþvottavél frá
Bauknecht
5 þvottakerfi
þvær eftir 12manna
borðhald
Úr ryófríu stáli aó
innan
Hæó 85,0 cm
breidd 59,5 cm
dýpt 60,0 cm
Greiósluskil málar
eóa staógreióslu-
afsláttur
KOMIÐ
HRINGIÐ
SKRIFIÐ
vió veitum allar nánari upplýsingar.
Véladeild
Sambandsins
Ármúla 3 Reykjavik Simi 38900
Utsölustaðir DOMUS, og kaupfélögin um land allt
W&Mmí u
ÞRÍHJÓL
Níðsterk Exquist þríhjól
Sver dekk, létt ástig
Þola slæma meðferð
Mjög gott verð
Fást í flestum kaupfélögum landsins
Heildsölubirgðir:
INGVAR HELGASON
Vonarlandi v/Sogaveg — Simi 33560.
ÁRATUGUR VATNSINS
HEFST INNAN FÁRRA VIKNA:
Yfirgnæfandi meiri-
hluti jarðarbúa býr
við ónógt, mengað
og hættulegt vatn
Hreint vatn er lifgjafi.
og göfugt markmið. A hinn bóg-
inn er hæpiö, hversu gengur að ná
þvl. Eigi að siöur er virðingar-
vert, að þessi ákvörðun skuli hafa
verið tekin.
Allir vita, eða ekkert lif getur
þrifizt án vatns. Lif eða dauði
veltur á þvi, að vatn sé fáanlegt.
Þegar það þrýtur, kemur dauðinn
og leggur allt i auðn. Hinar fyrstu
og frumstæðustu lifverur jaröar-
innar urðu til I vatni, og þar
þróuðust þær um óralangar aldir,
unz llfinu varð kleift að hasla sér
•völl á þurrlendi. En eftir sem
áður var það háð þvl, að völ væri
á vatni.
Við horfum á hafið, og okkur
miklast viðáttan. Af mælingum
og myndum, sem teknar hafa
verið af jöröinni utan úr geimn-
um, vitum við, að meiri hluti
jarðar er hulinn vatni. En sjórinn
er saltur, og hann er óhæfur til
drykkjar. Ferskt vatn á jörðinni
er minna en okkur grunar að ó-
reyndu. Innanvið þrir hundraðs
hlutar þess vatns, sem jörðin
hefur upp á að bjóða, er ferskt, og
enn minna það vatn, er menn og
dýr og jurtir fá náö til. Lang-
Innan fárra vikna hefst niundi
áratugur þessarar aldar. Sam-
einuðu þjóðirnar hafa ákveöið, að
hann skuli vera áratugur vatns-
ins. Það markmið er sett, að allir
jarðarbúar skuli eiga völ á
nokkurn veginn heilnæmu vatni,
þegar honum lýkur. Það er gott
mestur hluti hins ferska vatns er
annað tveggja grunnvatn i jörðu
niöri eða bundið I heimsskautsis
eöa jöklum.
Frumstæðar þjóðir ná ekki til
annars vatns en þess, sem ofan á
jörðinni flýtur eða er svo grunnt i
jörðu, að til þess verði með þvi
móti að grafa brunna, sem eru til-
tölulega grunnir. Sums staöar
hefur ekki verið nein frágangssök
að grafa meö þeim hætti niður á
vatnsæðar undir yfirborði jarðar,
annar staðar ógerlegt.
Hversu misdjúpt er á vatns-
æðar má ráða af þvi, að viða i
Bangladesh fæst vatn á fárra
metra dýpi, en sums staöar i
Sómalíu er ekki von I vatni nema
borað sé tvö hunduð og fimmtiu
metra niður I jörðina.
Alls er taliö, að sjötlu af hverju
hundraði jarðarbúa hafi annað
tveggja ónógt vatn eða skaðlegt,
óhreint og mengað. Fjöldi fljóta,
vatna og fenja i heitum löndum er
uppspretta sjúkdóma, sem lama
þrek fólks og draga það til dauða
langt fyrir aldur fram. Mörg fljót
frjóvga landið, er þau renna um,
og á bökkum þeirra er afarþétt-
býlt. En þau lifga bæði og deyða.
Efrat og Nil, Indus og Ganges,
Bramapútra og Mekong frjóvga
mikil lönd, en dauðinn býr lika i
þeim.
Mýflugur og margt annað
flugnakyn klekst út I vatni, og i
heitum löndum bera þessi skor-
dýr með sér háskalega sjúkdóma.
Sama er að segja um margs
konar lirfur, orma og kuðunga.
Þess vegna eru malarla, áblinda,
gula og svefnsýki svo geigvæn-
legir sjúkdómar i þessum löndum
sem raun ber vitni, og þaðan
stafa margs konar húðsjúkdómar
og augsjúkdómar, svo sem tra-
kóma og bilharzia. Talið er, að
fimm hundruð milljónir manna
Kona við þorpsbrunninn eins og Rakel á dögum Jakobs.
]