Tíminn - 30.11.1980, Page 32

Tíminn - 30.11.1980, Page 32
Einu sinni var lítill bókaormur. Hann át bókstaflega allar bækur sem hann komst í, því hann var algjör bókaormur. En svo fékk hann magapínu. Sumir halda að hann hafi étið of margar vondar bækur sem hafi orðið að æðislegum köggli í maganum á honum. Ef þú þekkir litla bókaorma þá skaltu kynna þér vel hvaða fóður þú velur þeim. Guðrún Helgadóttir: ENN AFJÓNIODDI OG JÓNI BJARNA Hér kemur þriðja bók Guðrúnar Helgadóttur um tvíburabræöurna vinsælu. Óvænt tíóindi gerast í fjölskyldumálum þeirra . . . Skemmtilegar myndir eftir Sigrúnu Eldjárn. Nú eru allar þessar bækur Guörúnar fáanlegar, leikritið Óvitar komið í endurskoöaðri gerð. Sigrún Eldjárn: ALLT í PLATI! Hér hefur Sigrún Eldjárn gert skemmtilega barnabók alveg á eigin spýtur, sögu og myndir. Þetta er ævintýri um tvo Reykjavíkur- krakka sem fara í hugsanaleik, — og þá getur margt gerst. Magnea frá Kleifum: KRAKKARNIR í KRUMMAVÍK Magnea frá Kleifum er góðkunn fyrir lifandi barnasögur. Þetta er bók um systkinin fimm í Krummavík og segir frá mörgu sem á daga þeirra drífur þarna í sveitinni. Sigrún Eldjárn teiknaði myndir í söguna. Aðgengilegt lestrarefni fyrir lítil börn. Gunnilla Wolde: TUMIOGEMMA Bækurnar um Tuma og Emmu eru stöðugt endurprentaðar. Nú koma líka tvær nýjar: Emma og Pétur og Emma og ryksugan. Annette Tison & Talus Taylor: BARBAPAPA Barbapapa þekkja allir. Hér eru þrjár haröspjaldabækur um þá fyrir yngstu lesendurna: Barbapapasirkusinn, Barbapapa og dýrin og Barbapapa úti Og svo eru smábækur um Barbapapafjölskylduna, sex hefti: Barbaljóö býr til glermuni, Barbasnjall býr til klukkur, Barbamamma býr til hús, Barbavænn vió bústörfin, Barbapabbi í perluleit, Barbapabbi býr til hljóðfæri. H.C. Andersen og Ulf Löfgren: NÝJU FÖTIN KEISARANS OG ELDFÆRIN ævintýrum H.C. Andersens, með skemmtilegum myndum Ulf Löfgren, þar sem vel nýtur sín spaugið í þessum verkum ævintýraskáldsins góða. — Sígildar þýöingar Steingríms Thorsteinssonar. Bækur sem mæla með sér sjálfar. Ole Lund Kirkegaard: HODJA OG TÖFRATEPPIÐ Hodja langaói út í heim. Og hann var svo heppinn að honum áskotnaðist töfrateppi . . . Þetta er fjóröa bók þessa vinsæla höfundar á íslensku, — hann myndskreytir bækurnar sjálfur meó mjög fyndnum teikningum. SÖGUR ÚR BIBLÍUNNI í MYNDUM OG MÁLI Sögur úr Þetta er frábærlega falleg bók, endursögn Biblíunnar í aógengilegu formi með fögrum litmyndum. DAGURINN HANS ÓLA 1 Fjórar litríkar og skemmtilegar bækur um daglegt líf lítils drengs, og vininn hans besta, hann Tóta trúó. 6 HERRAMENN Sex litlar bækur, fyndin og skemmtileg lesning fyrir alla með myndum: Herra Kjáni, Herra Subbi, Herra Draumóri, Herra Sæll, Herra Skellur, Herra Hnýsinn. — Þrándur Thoroddsen þýddi textann. ÞROSKANDI MYNDSPJALDABÆKUR Þetta eru fjórar bækur handa litlum börnum sem lýsa daglegu lífi þeirra: Tommi leikur sér, Benni fer að sofa, Anna borðar og Sigga fer í bað. Svend Otto S.: GRIMMSÆVINTYRI Ein fegursta bókin á markaðnum í ár. Nokkur frægustu Grimmsævintýrin, eins og Mjallhvít og Stígvélaði kötturinn, prýdd afbragös góðum myndum danska myndlistarmannsins vióurkennda, Svend Otto S. Og ekki spillir íslenskur búningur Þorsteins skálds frá Hamri. DALUR DYRANNA Övenjulega litrík og skemmtileg bók, um hina útdauðu og alfriðuðu íbúa Einskisdals, Villa Vængstyrk, sem er fiórildi sem segir sex, og ýmsa fleiri. Og borgarstjórinn hér er Enginn Panda . . . Ævintýri meö myndum og fræðitextar. Fögur bók, fróðleg og eiguleg í senn. Þýóendur: Þrándur Thoroddsen og Örnólfur Thorlacius. Brasðraborgarstíg 16 Sími 12923og 19156

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.