Fréttablaðið - 04.07.2007, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 04.07.2007, Blaðsíða 20
Liv Anna Gunnell kaupir margnota bleiur fyrir son sinn Trostan og lætur vel af. „Eftir að ég setti mig inn í þetta mál hef ég hitt marga foreldra sem kaupa fjölnota bleiur fyrir börnin sín,“ segir Liv sem kaupir umhverfisvænar, margnota blei- ur fyrir Trostan litla á netinu. „Þær eru fáanlegar í mörgum stærðum og litum fyrir börn á öllum aldri, alveg niður í unga- börn, en bleiurnar sem við notum núna eru hannaðar af móður barns sem hafði ofnæmi fyrir því að hafa þvag við húðina. Taubleiur valda börnum alls ekki þessum sömu óþægindum og plastbleiurn- ar vilja gera. Fyrir utan það þá bætast þær ekki í það tveggja tonna fjall af plastbleium sem hvert barn sendir á haugana,“ segir Liv Anna. Spurð að því hvort það kosti ekki tíma og fyrirhöfn að notast við margnota bleiur segir hún svo ekki vera „Fólk er hrætt við að þetta sé voðalegt basl. Þvo og brjóta saman og svo framvegis, en málið er að maður þarf bara að prófa og þá venst það strax. Einu sinni próf- uðum við umhverfisvænar, ein- nota bleiur en manninum mínum fannst allt of mikið vesen að nota þær, þannig að hann gafst bara upp strax og náði í taubleiu. Þær eru ekkert flóknari í notkun en hinar, minna ofnæmisvaldandi, ódýrari og umhverfisvænni líka.“ Áhugasamir geta farið á www. babykind.co.uk til að fræðast meira um bleiurnar hans Trost- ans. Margnota bleia borgar sig Fæst í apótekum um land allt Ofnæmisprófuð og mild lína sem er sérstkalega þróuð fyrir viðkvæma húð ungbarna Ungbarna andlitskrem – Verndar húðina gegn óæskilegum áhrifum umhverfis og útfjólubláum geislum. Sólarvörn SPF 18, vítamín A&E. Bossakrem – Mýkir og verndar bleyjusvæðið gegn ertingu, útbrotum og þurrki. Býr til verndandi lag á húðina. A&B5 vítamín. Mjög gott á bruna. Bossablautklútar – Handhægir klútar í ferðapakkningu. Húðlæknisfræðilega prófaðir. Úr 100% trefjum. Alkóhól- og litefnalausir. Ph gildi 5,5. Ungbarna baðsápa – Sérlega mild og rakagefandi kremsápa “sápulaus”. Innih. A&E vítamín. Ungbarna sjampó – Milt sjampó (tearless). Hefur góðan ilm og gerir hárið silkimjúkt. Ungbarna húðmjólk – Mild og rakagefandi húðmjólk. Inniheldur E&B5 vítamín. Ph gildi 5,5. Ungbarna olía – Mild olía sem mýkir og hefur róandi áhrif á húðina. Inniheldur A&E vítamín. Sensitive ungbarnalína Auglýsingasími – Mest lesið Útsalan hefst á morgun 40% afsláttur Laugavegi 51 • s: 552 2201

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.