Fréttablaðið - 04.07.2007, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 04.07.2007, Blaðsíða 34
Leikir kvöldsins: Ármúla 11 - sími 568-1500 Lónsbakka - sími 461-1070 Vélorf Alvöru orf á góðu verði Valsstúlkur urðu fyrir aðkasti í Árbænum Fram tókst að skapa tals- verða pressu á botnlið KR með mikilvægum 1-0 sigri á Breiða- bliki í gær. Gestirnir voru reyndar betri aðilinn í Laugardalnum í gær en tókst á einhvern ótrúlegan máta að nýta ekki þeirra fjöldamörgu færa sem þeir fengu í leiknum. Blikar byrjuðu betur strax í upp- hafi leiks og fengu þó nokkur góð færi á fyrsta korterinu. Það voru þó Framarar sem fengu hættuleg- ustu marktækifærin. Daði Guð- mundsson átti fyrirgjöf á Jónas Grana Garðarsson sem var einn á auðum sjó í miðjum vítateignum en skallaði yfir markið. Svo á 38. mínútu dæmdi Jóhann- es Valgeirsson víti á Guðmann Þórisson sem braut á Jónasi Grana yst í vítateigshorninu við endalín- una. Igor Pesic fór á vítapunkt- inn og lét Casper Jacobsen verja frá sér. Þetta var í annað skiptið í röð sem Pesic klikkar á víti og sömuleiðis sem Jacobsen ver víti í marki Blika. Þrátt fyrir þetta voru Blikar að spila betur og sami háttur á liðinu og var í upphafi móts. Liðið spil- aði glimrandi vel, kom sér í sókn- ir en náði allt of sjaldan að klára þær með þokkalegri marktilraun. Framarar beittu skyndisóknum og voru skeinuhættir án þess þó að nýta færin sín. Það er einnig gömul saga og ný hjá liði Fram. Þetta sést best á því að Fram hefur aðeins nýtt eina af síðustu fjórum vítaspyrnum sínum. Fram fékk hornspyrnu í upp- hafi síðari hálfleiks og upp úr henni náði Jónas Grani að skalla að marki en Kristjáni Óla tókst að bjarga á marklínu. Í næstu sókn Blika átti Kristján Óli Sigurðsson fast skot að marki sem var varið í horn. Blikar fengu svo ótrúlegt færi á 55. mínútu er Pesic missti bolt- ann klunnalega á versta stað. Blik- ar voru þrír gegn einum varnar- manni Fram en tókst samt ekki að nýta sóknina. Eftir þetta gerðist ekki mikið þar til á 68. mínútu er heimamenn fengu aukaspyrnu á miðjum vall- arhelmingi Blika. Pesic tók spyrn- una og Jónas Grani skallaði lag- lega yfir Jacobsen. Loksins nýtti leikmaður á vellinum færið sitt. Það gerði reyndar Prince Raj- komar líka í næstu sókn Blika en hann var dæmdur rangstæður eftir að hann byrjaði að fagna. Blikar voru áfram meira með boltann en án þess þó að það skil- aði sér með marki en gestirnir voru hreint ótrúlegir klaufar fyrir framan mark heimamanna. „Ég er orðinn hundleiður á að tala um eftir leiki hvað við spilum vel en náum ekki að koma boltan- um yfir línuna. Ég er alveg búinn að fá upp í kok af því,“ sagði Ól- afur Kristjánsson, þjálfari Blika, eftir leik. „Við verðum að gjöra svo vel að snúa blaðinu við hvað þetta varðar.“ Hjá Fram var sigurvíman áber- andi, ekki síst hjá sóknarmann- inum Ívari Björnssyni. „Þetta er bara snilld. Svona á þetta að vera. Þetta var hörkuleikur enda er maður ekki vanur því að spila í svona hita. En sem betur fer datt þetta okkar megin í dag.“ Það er svo rétt að geta þess að bakvörðurinn ungi hjá Breiða- bliki, Arnór Sveinn Aðalsteinsson, átti frábæran leik og var í raun í sérklassa á vellinum. Hann sinnti varnarskyldu sinni afar vel, var hættulegur fram á við og skilaði boltanum af sér af miklu öryggi. Þrátt fyrir að hafa klúðrað víti enn eina ferðina tókst leikmönnum Fram að nýta eitt færa sinna í leiknum gegn Breiðabliki í gær. Blikar fengu urmull færa en ekkert virtist ganga hjá þeim og skildi það liðin að.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.