Fréttablaðið - 04.07.2007, Blaðsíða 33
Markaðssetning Simpsons-
kvikmyndarinnar er komin
á fullt skrið í Bandaríkjun-
um og er óhætt að fullyrða
að framleiðendur og mark-
aðsmenn fari óhefðbundnar
leiðir í þeim efnum.
Viðskiptavinir valdra 7-Eleven
verslana í Bandaríkjunum geta
nú keypt forlátar vörur á borð
við Buzz-Cola, Morgunkorn Kru-
sty og Squishee-gosdrykki, sem
aðdáendur Simpsons-fjölskyld-
unnar ættu að kannast við úr
samnefndum þáttum.
Í tilefni af frumsýningu Simp-
son-kvikmyndarinnar síðar í
mánuðinum ákvað 7-Eleven keðj-
an, gegn vænlegri greiðslu frá
framleiðendum kvikmyndarinn-
ar, að breyta útliti nokkurra versl-
ana þannig að þær líktust Kwik-E-
Mart verslun Apu Nahasapeema-
petilon í Simpson-þáttunum. Apu
þessi er hindúískur vinnualki sem
eitt sinn stóð vaktina í 96 klukku-
stundir samfleytt án þess að taka
pásu.
Viðtökur viðskiptavina létu
ekki á sér standa við opnun
verslananna í gær og mynduðust
langar biðraðir fyrir utan flest-
ar þeirra. Vörurnar úr þáttunum
seldust eins og heitar lummur og
vöktu mikla lukku. „Viðtökurn-
ar hafa farið fram úr björtustu
vonum. Ég átti von á einhverri
athygli en hér hefur verið allt
vitlaust,“ sagði ónefndur versl-
unarstjóri í gær.
Rollsinn í hjólhýsum
560 Ufe Excelsior með leðri
D650 Van T650 T600