Fréttablaðið - 05.07.2007, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 05.07.2007, Blaðsíða 2
2 5. júlí 2007 FIMMTUDAGUR Sturla á Mön Sturla Böðvarsson, forseti Alþing- is, verður við þingsetningu á eyjunni Mön í dag. Þingað er undir berum himni og er athöfnin árlegur viðburð- ur á þjóðhátíðardegi Manar. Rekur hann rætur sínar aftur til víkingaaldar. StjórnMál lögregla á slysadeild Lögreglumenn þurftu að vakta tvo menn sem voru lagðir inn á slysa- deild í annarlegu ástandi í gærnótt. Tilkynnt var um mennina í annar- legu og jafnvel hættulegu ástandi auk þess sem þeir voru viðskotaillir. lögreglufréttir VeðUR „Veðrið hefur verið glettilega gott í nokkuð marga daga og verður það áfram í dag,“ segir Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur um blíðviðrið á höfuðborgar­ svæðinu undanfarna daga. „Það fer að verða meira skýjað og einhverjar líkur á úrkomu bæði á morgun og hinn.“ Einar segir þó að ekkert met hafi verið slegið og að ekki þurfi að leita langt aftur í tímann til að finna annan eins góðviðriskafla. „Ég man mjög vel eftir sumrinu 1991, þá var samfelldur góðviðris­ kafli frá 13. júní fram undir 10. júlí,“ segir Einar. „Þá fór hitinn að minnsta kosti fimm sinnum yfir 20 stig í Reykjavík, en við höfum held ég ekki náð því enn þá núna. Þá var reyndar miklu meiri blíða um land allt.“ - sgj Blíðviðrið í höfuðborginni: Síðasti sólskins- dagurinn í bili einar SveinbjörnSSon VIðskIpTI Úrvalsvísitalan hækkaði um 1,59 prósent í Kauphöllinni í gær, endaði í 8.541 stigi og hefur aldrei verið hærri. Gengi bréfa í Alfesca hækkaði mest, um 3,96 prósent, en mesta lækkunin varð á gengi bréfa í Föroya Banka, sem fór niður um 1,69 prósent. Vísitalan hefur hækkað um 33,24 prósent það sem af er árs. Björn Rúnar Guðmundsson, forstöðumaður greiningardeildar Landsbankans, segir engar sérstakar skýringar liggja að baki hækkuninni síðustu tvo daga aðrar en þær að bjartsýni virðist almennt ríkja á hlutabréfamarkaði. - jab Enn stekkur Úrvalsvísitalan: Vísitalan aldrei hærri en nú Sigurður, er þetta ekki í raun bara eitt og sama starfið? „Nei, bændur eru ekki allir fram- sóknarmenn frekar en allir fram- sóknarmenn bændur.“ Sigurður Eyþórsson, fyrrverandi fram- kvæmdastjóri Framsóknarflokksins, hefur verið ráðinn í starf framkvæmdastjóra Landssamtaka sauðfjárbænda. AlþInGI Skrifstofa Alþingis sendi nýjum þingmönn­ um tölvuskeyti fyrir skemmstu þar sem þeim er gert grein fyrir því að þar sem Alþingi væri með „ríkis­samning við Símann, og greiðir alla síma­ reikninga alþingismanna, væri það til mikilla þæg­ inda“ að þeir flyttu símanúmerin til Símans ef þeir væru með viðskipti við annað fyrirtæki. Sérstak­ lega er tekið fram að fjármálaskrifstofa Alþingis geti „annast flutninginn“ eins og orðrétt segir í tölvuskeytinu sem Fréttablaðið hefur undir hönd­ um. Helgi Bernódusson, skrifstofustjóri Alþingis, segir skilaboðin hafa verið send til þingmanna vegna samnings ríkisins við Símann. Ekki sé verið að beita þá þrýstingi með neinum hætti. „Alþingi er aðili að samningi ríkisins við Símann og það væri einfaldlega ódýrara fyrir Alþingi ef þing­ menn beindu símaviðskiptum sínum til Símans. En ef þingmenn kjósa að eiga viðskipti við önnur fyr­ irtæki þá er það bara allt í góðu lagi. Það er enginn þvingaður til eins eða neins,“ segir Helgi. - mh Skrifstofa Alþingis beinir því til nýrra þingmanna að færa viðskipti sín til Símans: Sagt vera þægilegt fyrir Alþingi alþingi Ríkið er með samning um símaviðskipti við Símann, sem nær til Alþingis. FRéTTABLAðið/gvA UTAnRíkIsMál Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra var viðstödd setningu níunda leiðtoga- fundar Afríkusambandsins (AU) í Accra, höfuðborg Gana á sunnu- daginn. Utanríkisráðherra sótti einnig framkvæmdaráðsfund sambands- ins sem fór fram dagana á undan og átti tvíhliða einkafundi með ráðherrum rúmlega tuttugu Afríkuríkja. Meðal þeirra voru utanríkisráðherrar Eritreu og Eþíópíu. Framboð Íslands til Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna var kynnt og stuðningur fjölmargra Afríkju- ríkja við framboðið þakkaður. - lbb Utanríkisráðherra í Gana: Þakkar stuðning við framboðið pARís, Ap Cecilia Sarkozy, eiginkona Nicholas Sarkozys Frakklandsforseta, hefur skilað kreditkortinu sem hún fékk eftir að eiginmaður hennar sigraði í forsetakosning­ unum í Frakk­ landi í maí. Ástæðan er sú að franska blaðið Le Canard Enchaine greindi frá því að Cecilia notaði kortið í tvígang til að bjóða fólki út að borða og lét því ríkissjóð borga brúsann: saman­ lagt tæpar 35 þúsund krónur. Laurent Wauquiez, talsmaður frönsku ríkisstjórnarinnar, segir að Cecilia hafi ákveðið að skila kreditkortinu til að komast hjá „öllum misskilningi.“ Að sögn talsmanns frönsku forsetahallar­ innar notaði Cecilia kortið aðeins í þessi tvö skipti á síðustu tveimur mánuðum. - ifv C. Sarkozy skilaði kreditkorti: Lét ríkissjóð borga máltíðir FélAGsMál „Þetta þýðir einfald­ lega flótta úr Njálsgötunni enda liggur við að það sé önnur hver íbúð hér komin á sölu,“ segir Pétur Svavarsson, annar tvegga fulltrúa íbúa og húseigenda í samráðshópi vegna opnuna athvarfs fyrir heim­ ilislausa á Njálsgötu 74. Velferðarráð Reykjavíkurborg­ ar samþykkti í gær að heimilið á Njálsgötu verði opnað 1. október: „Velferðarráð hefur ákveðið að koma til móts við gagnrýnisraddir íbúa í nágrenninu með því fækka heimilismönnum um tvo, heimilis­ menn verða því átta en ekki tíu eins og áður var gert ráð fyrir. Öflugt samstarf verður við lög­ reglu um vakt í hverfinu, skapað­ ur verður grundvöllur fyrir reglu­ legri samvinnu við nágranna heimilisins og staðsetning heimil­ isins verður endurskoðuð að ári liðnu með tilliti til reynslunnar,“ segir í frétt sem velferðarráð sendi frá sér í gær. Pétur segir þessa ákvörðun koma sér algerlega í opna skjöldu. Vilhjálmur Þ. Vihjálmsson borg­ arstjóri hefði sagt á fundi með íbúunum að samráð yrði haft við íbúana. Aðeins tveir fundir hefðu verið haldnir í samráðshópnum og fulltrúar borgarinnar þar lagt fram tillögur sem fulltrúar íbú­ anna hefðu algerlega hafnað en væru nú grundvöllur fyrir stofn­ un heimilisins. Í lögfræðiáliti lögmannanna Karls Axelssonar og Dýrleifar Kristjánsdóttur sem unnið var fyrir íbúanna og lagt fram á fundi samráðshópsins kemur fram sú skoðun að stofnun heimilisins á Njálsgötu án grenndarkynningar og breytts deiliskipulags brjóti í bága við lög því að í raun sé um stofnun en ekki heimili að ræða á svæði sem ekki sé skipulagt fyrir stofnanir. Þessari túlkun hefur Jórunn Frímannsdóttir, formaður velferðarráðs, hafnað. Í lögfræðiálitinu segir að falli borgaryfirvöld ekki frá núverandi áformum liggi beinast við að íbú­ arnir krefjist lögbanns. Í síðasta lagi á þeim tímapunkti sem borgin tilkynni um opnun heimilsins sé ástæða til að hefjast handa við undirbúning lögbannskröfunnar. Pétur segir það nú verða tekið til skoðunar: „Borgin er að reyna að brjóta lögin af því hún þorir ekki með málið í grenndarkynningu. Nú munum við ræða við okkar lög­ menn um næstu skref. Þetta útspil borgarinnar er eins og blaut tuska framan í okkur og breytir alls engu um okkar afstöðu.“ gar@frettabladid.is Njálsgötubúar íhuga að krefjast lögbanns Fulltrúi í samráðshópi íbúa og borgarinnar vegna heimilis fyrir heimilislausa á Njálsgötu segir ákvörðun velferðarsviðs um opnun heimilisins koma sér á óvart. Íbúarnir ræði nú lögbannskröfu eins og boðað var af lögmönnum þeirra. njálSgata 74 Hér munu átta heimilislausir karlmenn búa frá 1. október í haust. FRéTTABLAðið/ANToN jórunn fríMannSdóttir Formaður velferð- arráðs Reykjavíkur. Pétur SvavarSSon Annar fulltrúa íbúa í samráðs- nefnd. CeCilia SarKoZY lÖGReGlUMál Mjög sterk upplausn af morfínskyldu lyfi var í sprautu sem fannst við hlið ungrar konu er lést á Landspítalanum mánu­ dagskvöldið 18. júní, samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins. Konan lá á smitsjúkdómadeild og fannst meðvitundarlaus þar aðfaranótt 16. júní. Hún lést skömmu síðar. Lögregla höfuðborgarsvæðis­ ins hefur rannsakað málið að und­ anförnu, meðal annars hvaðan sprautan og innihald hennar komu. Efnarannsókn fer fram um þessar mundir. Útilokað er að full­ yrða um dánarorsök konunnar, þar á meðal hvort hún neytti umrædds efnis, fyrr en niðurstöð­ ur krufningarinnar liggja fyrir. Lyfið sem var í sprautunni er morfínskylt lyf, eins og áður sagði, af tegundinni Fentanyl. Það er meðal annars til í svokölluðum forðaplástrum í mismunandi styrkleikum, sem notaðir eru gegn slæmum verkjum. Þeir skammta lyfið smátt og smátt inn í líkam­ ann. Rökstuddur grunur er um að upplausn úr slíkum plástri hafi verið í sprautunni, samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins. Sem dæmi um styrkleika má nefna að sé notuð sterkasta gerð Fentanyl­plásturs, sem er 10 milligrömm, efnið í honum leyst upp og sprautað í mannslíkama, þá fær viðkomandi hundraðfald­ an skammt í líkamann á einu bretti. - jss Stúlkan sem lést á voveiflegan hátt á Landspítalanum: Sterkt morfínskylt lyf fannst í sprautunni MennTUn Háskólaráð Háskóla Íslands hefur skipað nefnd sem mun gera úttekt á brottfalli nemenda við skólann, greina ástæður þess og leggja fram tillögur um úrbætur. Á dögunum kom út skýrsla á vegum Ríkisendurskoðunar um háskólanám á Ísland og kom Háskóli Íslands best út á flestum sviðum. Hins vegar benti Ríkisendurskoðun á mikilvægi þess að draga úr brottfalli við HÍ. Nefndin mun einnig hanna stefnu um inntöku nýnema og hvernig auka megi kröfur og kynna betur þjónustustofnanir skólans. - sgj Háskólaráð Háskóla Íslands: Brottfall skoðað Sex kanadískir hermenn úr NATo og afganskur túlkur þeirra létust í sprengjuárás í í suðurhluta Afganist- an í gær. Sprengja sprakk við veginn þar sem þeir keyrðu í bifreið merktri NATo. Árásin er sú mannskæðasta gegn erlendum hermönnum í Afgan- istan síðan 13. maí. afganiStan Sex Kanadamenn létust SPurning dagSinS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.