Fréttablaðið - 05.07.2007, Side 6
6 5. júlí 2007 FIMMTUDAGUR
oRkUMál Vatnsnotkun borgarbúa
hefur aukist mikið í þurrkum og
eindæma blíðu undanfarinna daga
og kemur það greinilega fram á
rennslistölum frá Orkuveitu
Reykjavíkur.
Að sögn Kristins H. Þorsteins-
sonar, garðyrkjustjóra Orkuveit-
unnar, er um að ræða tuttugu pró-
senta aukningu á vatnsnotkun
miðað við það sem venjulega er.
Ástæðurnar eru nokkrar að hans
sögn. „Þegar heitt er í veðri, sól-
skin og vindur, þá fer fólk út og
þvær gluggana og húsin sín. Bíl-
arnir eru líka þvegnir mun oftar,“
segir Kristinn. Hann segir þó
vökvun eiga mestan þátt í þessari
auknu vatnsnotkun, ekki síst á
gróðrarstöðvum. Það sé mikilvægt
að fólk vökvi gróður lengur og
sjaldnar svo að vatn nái ofan í
jarðveginn.
Rennslið frá vatnstökusvæðum
borgarinnar varð mest rúmlega
1.100 lítrar á sekúndu síðdegis
föstudaginn 29. júní. Vikuna fyrir
það nam mesta rennslið rúmlega
1.000 lítrum á sekúndu.
Kristinn segir borgina þó ekki á
leið að verða vatnslausa, þrátt
fyrir aukninguna.
„Orkuveitan annar þessu en að
sjálfsögðu hvetjum við borgarbúa
til að bruðla ekki með vatnið.“
- þeb
sTjóRnMál Efasemdir eru uppi
um að ákvörðun Jóhönnu Sigurð-
ardóttur félagsmálaráðherra um
að lækka lánshlutfall Íbúðalána-
sjóðs úr níutíu prósentum í átta-
tíu prósent hafi tilætluð áhrif.
Ráðherra hefur sagt aðgerðina
viðbrögð við mikilli hækkun á
fasteignamarkaði sem, auk ann-
ars, hefur leitt til þenslu í hag-
kerfinu.
Ingibjörg Þórðardóttir, fast-
eignasali á Híbýli og formaður
Félags fasteignasala, telur
aðgerðina ekki hafa áhrif á lækk-
un fasteignaverðs því hún breyti
litlu sem engu fyrir fólk sem
kaupir eignir á rúmar tuttugu
milljónir og þar yfir. Þar ráði
veðviðmið Íbúðalánasjóðs sem
reiknast út frá brunabótamati,
auk lóðamats.
„Þetta kemur harðast niður á
fólki sem kaupir ódýrustu og
minnstu eignirnar og var svo hepp-
ið að geta tekið níutíu prósenta lán.
Allt tal um að þetta slái á þensluna
er því rangt.
Þetta hefur
ekkert að
segja og
kemur verst
við þá sem
minnst mega
sín,“ segir
Ingibjörg og
bendir á að
fólk þurfi eftir
sem áður að
fjármagna
íbúðakaup sín
með einhverjum hætti.
Ingibjörg segir að sárlega vanti
úrræði fyrir fólk sem á undir
högg að sækja á fasteignamark-
aði og deilir þar skoðun með
félagsmálaráðherra. Hún vill að
öllum gefist færi á lántöku innan
sama kerfis en ráðherra boðar
sérstakar félagslegar úrbætur.
Slíkar ráðstafanir telur Ingibjörg
afturför; ekki eigi að stimpla fólk
með félagslegum úrræðum.
bjorn@frettabladid.is
Lægra lánshlutfall
slær ekki á þenslu
Lægra lánshlutfall Íbúðalánasjóðs slær ekki á þenslu og stuðlar ekki að lækkun
fasteignaverðs, að mati formanns Félags fasteignasala. Á fyrstu fimm mánuð-
um ársins fengu 127 lántakendur hámarkslán, þar af 40 á höfuðborgarsvæðinu.
IngIbjörg Þórð-
ardóttIr Formaður
Félags fasteignasala.
úrvalIð skoðað Formaður Félags fasteignasala telur lækkað lánshlutfall Íbúðalánasjóðs koma harðast niður á fólki sem kaupir
ódýrustu og minnstu eignirnar. Eftir sem áður þurfi fólk að fjármagna íbúðakaup sín. Fréttablaðið/pjEtur
Guðmundur Bjarnason, fram-
kvæmdastjóri Íbúðalánasjóðs,
telur ákvörðun um lækkað láns-
hlutfall sjóðsins hafa lítil áhrif.
„Ég held að þetta hafi ekki
mjög mikil áhrif á útlánastarf-
semi sjóðsins vegna þess að
aðrar takmarkanir, eins og
brunabótamat, hafa mikil áhrif á
lánveitingarnar,“ segir Guð-
mundur.
Þær takmarkanir eigi fyrst og
fremst við um fyrstu íbúðakaup
á höfuðborg-
arsvæðinu
þar sem
brunabóta-
mat eldra og
ódýrara hús-
næðis er lágt.
„Þess vegna
óttast ég að
þessi breyt-
ing kunni
frekar að
hafa áhrif úti
á landi og þensluáhrifin hafa nú
kannski ekki verið mest þar.“
Guðmundur segir sjóðinn vita-
skuld starfa eftir ákvörðunum
ráðherra og allt tal um annað sé
rangt. „Stundum er því haldið
fram að Íbúðalánasjóður fylgi
ekki stefnu stjórnvalda í efna-
hagsmálum. Við gerum auðvitað
ekki annað en það sem stjórn-
völd ákveða með lögum og reglu-
gerðum.“
- bþs
Hefur lítil áhrif á starfsemina
guðmundur
bjarnason
Framkvæmdastjóri
Íbúðalánasjóðs.
Verður fuglaflensan að
heimsfaraldri?
já 24%
nei 76%
spurnIng dagsIns í dag:
Er kominn tími á rigningu
og rok?
Segðu skoðun þína á vísir.is
upplýsingar frá Íbúðalánasjóði
sýna að aðeins lítið brot lántak-
enda hjá sjóðnum fær eða tekur
lán sem nemur hæsta fáanlega
hlutfalli af kaupverði. Á fyrstu
þremur mánuðum ársins, þegar
lánshlutfallið var áttatíu prósent,
fengu 88 lántakendur slík lán - 28
á höfuðborgarsvæðinu og sextíu
utan þess - og á næstu tveimur
mánuðum, þegar hlutfallið var níu-
tíu prósent, fengu 39 slík lán - tólf
á höfuðborgarsvæðinu og 27 utan
þess.
Á fyrstu fimm mánuðum ársins
seldust á bilinu 4-5.000 íbúðir. Í
maí lánaði Íbúðalánasjóður rúma
fimm milljarða króna til íbúða-
kaupa og nam meðallánið í mán-
uðinum rúmum níu milljónum.
Samkvæmt upplýsingum Frétta-
blaðsins er meðallán sjóðsins um
eða undir sextíu prósentum af
kaupverði.
FáIr taka há lán
R
V
62
37
Rekstrarvörur
1982–200725ára
Bjarni Ómar Ragnarsson
- verslunarstjóri hjá RV
Umhverfisvottaðar hreinlætisvörur
– fyrir sumarbústaðinn og veiðihúsið
Auglýsingasími
– Mest lesið
Borgarbúar nota fjórðungi meira vatn en venjulega:
Notkun eykst í blíðviðri
Meðaltalsnotkun á vatni í reykjavík
frá áramótum: 762 lítrar á sekúndu.
á mínútu : 45.720 lítrar
Nóg til að fylla laugardalslaug 16,3 sinnum
á klukkustund : 2.743.200 lítrar
Nóg til að fylla laugardalslaug 979,7 sinnum
á sólarhring : 65.836.800 lítrar
Nóg til að fylla laugardalslaug 23.513 sinnum
Laugardalslaug tekur 2.800 lítra.
vatnsnotkun
sett í samhengI
löGReGlUMál Tíu félagar í
mótorhjólagengi gengu í skrokk á
manni í félagsheimili við Hverfis-
götu í gær. Lögregla fékk
tilkynningu um atburðinn og voru
tólf lögreglu- og sérsveitarmenn
sendir á vettvang. Mennirnir tíu
voru allir handteknir á staðnum.
Fórnarlamb árásarinnar var
flutt á slysadeild með lítilsháttar
meiðsl. Lögregla telur víst að
farið hefði verr hefði hún ekki
komið svo skjótt á vettvang. Ekki
er vitað um orsakir árásarinnar
en fórnarlambið þekkti árásar-
mennina. Í framhaldi af handtök-
unum var gerð húsleit.
- lbb
Líkamsárás á Hverfisgötu:
Tíu gengu í
skrokk á einum
kjörkassInn