Fréttablaðið - 05.07.2007, Blaðsíða 44
32 5. júlí 2007 FIMMTUDAGUR
menning@frettabladid.is
> Ekki missa af
þætti um söngleikinn Allra
meina bót eftir Jónas, Jón Múla
og Stefán Jónsson fréttamann
á Gufunni í dag kl. 15.03. Allra
meina bót var frumsýnd 24.
mars 1961 í Austurbæjarbíó og
geymdi margar perlur laga sem
fluttar verða í þættinum í upp
haflegum útgáfum.
Borin verða upp þau ný-
mæli í versluninni og menn-
ingarsetrinu 12 Tónum á
næstu vikum að þar verð-
ur uppi myndlistarsýning:
Það er listakonan Sigríður
Níelsdóttir sem sýnir þar
klippimyndir.
Að þessu sinni sýnir Sigríður 31
klippimynd sem hún hefur unnið
að síðastliðið ár. Viðfangsefn
ið spannar allt litróf mannlífs
ins og bera myndirnar nöfn eins
og Fuglaútópía, Skakki turninn á
Íslandi, Knús er hollt, Mammon
og Sápukúlur.
Þetta er önnur einkasýning
Sigríðar, sem er á áttræðisaldri.
Á sýningu Sigríðar í 12 Tónum í
fyrra seldust allar myndir henn
ar upp á innan við tíu mínútum og
fengu færri en vildu. Það má því
búast við að heitt verði í kolunum
á föstudaginn því Sigríður á sér
marga og sanna aðdáendur.
Lífshlaupið
Lífsferill Sigríðar er um margt
sérstakur: Eins og hún segir sjálf:
„Rætur mínar liggja til tveggja
landa. Faðir minn var Dani, móðir
mín Þjóðverji. Ég fæddist í Kaup
mannahöfn 25. febrúar 1930 og
ólst upp þar. Það var mikil músík
í kringum okkur. Faðir minn og
bróðir spiluðu á fiðlu en móðir
mín og við systurnar tvær lærð
um á píanó. Það gamla hljóðfæri
er nú á heimili systursonar míns.
Mamma söng oft við hússtörfin og
við systurnar sungum oft við upp
þvottinn á kvöldin og skemmtum
okkur prýðilega. Ég hugsa að ég
hafi erft sönggleðina frá mömmu.
Það var sungið í skólanum, í kirkj
unni og í K.F.U.K., og svo var það
útvarpið sem veitti okkur ríku
lega af fallegri tónlist. Sem barn
átti ég litla leirflautu og munn
hörpur hef ég átt margar, á reynd
ar eina núna. Ég reyndi að spila á
gítar en náði ekki tökum á því. 17
ára gömul keypti ég harmónikku,
sem ég hafði með þegar ég fór til
Íslands 1949, en ég varð að hætta
við að spila á hana vegna bakveiki.
1960 var mér gefið gamalt stig
ið orgel, sem ég notaði um ára
bil. Síðan keypti ég mér rafmagns
orgel.“
Brasilíuför
„1989 fór ég til Brasilíu og þar
keypti ég mitt fyrsta, og síðar
annað hljómborð. Þau skildi ég
eftir þegar ég fór heim til Ís
lands 1997. Eitt af því fyrsta sem
ég keypti hér var nýtt hljómborð,
sem er nú bara galdratæki, sem
gefur manni möguleika á að spila á
öll möguleg hljóðfæri sem hjartað
girnist. 2004 keypti ég það hljóm
borð sem ég á núna. Ég get ekki
hugsað mér hvernig lífið væri án
tónlistar!
Klippimyndir hef ég gert alla
ævi eða frá því ég gat haldið á
skærum, en þær myndir sem ég
sýni nú hef ég unnið að síðastlið
ið ár.“
Mikilvirkur tónlistarmaður
Sigríður hefur sent frá sér 58
geisladiska á undanförnum sjö
árum, og hefur vakið verðskuld
aða athygli hér heima og erlend
is fyrir frumlega og einlæga tón
list sína. Umfjöllun um hana hefur
birst í fjölmiðlum í Danmörku,
Þýskalandi, Portúgal, Finnlandi,
Póllandi og Japan svo nokkur
dæmi séu tekin.
Þá er vinna við nýja íslenska
heimildarmynd um Sigríði í full
um gangi en umsjón hennar er í
höndum Kristínar Bjarkar Kristj
ánsdóttur (Kira Kira) og Orra
Jónssonar í Slowblow.
Sýningin stendur frá 6. júlí til 1.
september. Allir eru velkomnir en
á opnuninni frá 1618 í dag verða á
boðstólum kaffi og með því að ís
lenskum sið. pbb@frettabladid.is
„..frá því ég gat
haldið á skærum“
MyndList Sigríður með verk sín en hún hefur sett saman klippimyndir frá því að
hún var barn. FréttAblAðið /Hrönn
Tónlistarkonan Kira Kira eða
Kristín Björk Kristjánsdóttir
heldur tónleika í kvöld af því til
efni að hún hefur nú lokið upp
tökum á nýju safni tónsmíða
sem væntanlegar eru á mark
að síðla árs eða í ársbyrjun
2008. Með henni á sviði gamla
Iðnaðarmannahússins verða Sea
bear og Hudson Wayne. Herleg
heitin hefjast upp úr tíu að kvöldi
og verður vonandi friður fyrir
lendingum einkaþotna yfir Tjörn
inni þessa kvöldstund.
Kira er nýkomin úr sigl
ingu: hún var að túra um vest
urströnd Bandaríkjanna, spilaði
í San Diego, LA, San Francisco,
Portland og Seattle. Með henni
í för voru Mice Parade og Tom
Brusseu. Þaðan hoppaði hún yfir
meginlandið og lenti í Vermont og
giggaði þar með Charalambides.
Áður en túrinn vestanhafs hófst
hljóðritaði hún í Finnlandi efni á
nýja plötu. Þar lögðu þarfa hönd
á plóginn Samuli Kosminen, Ei
ríkur Orri, Alex Somers, Hilmar
Jensson og Pekka.
Það er fáu lofað um prógrammið
utan nýs efnis. Seabear mun leika
efni af nýjum diski og Wayne fer
með kyrrláta sveitasöngva. Miða
sala er við innganginn. - pbb
Kira Kira í kvöld í Iðnó
tónList Kira Kira við æfingar í vikunni. F.v. Alex Somers (klukkuspil), Eiríkur Orri
Ólafsson (trompet), Snorri Páll Jónsson (trommur), Kira Kira, Kristín björk Kristjáns
dóttir (gítar) og Pétur Hallgrímsson (kjöltustálgítar).
Ranghermt var í gær að Laufey
Sigurðardóttir fiðluleikari væri
upphafsmaður Sumartónleika við
Mývatn. Það er Margrét Bóasdótt
ir hratt þeim af stað og hefur stýrt
þeim í tuttugu ár. Laufey stendur
fyrir tónleikahaldi þar um páska.
Eru viðeigandi beðnar velvirðingar
á þessum missögnum. pbb
Leiðrétting
Þegar heldri konur vildu taka sér
sunnudagstúr létu þær karlana
keyra sig í Eden áður fyrr. nú er
ný kynslóð kvenna sæknari á
önnur mið. Og þó. Á laugardag
ætla fjórar vaskar myndlistar
konur að opna sýningu í Edens
ranni. Þær eru Anna Hallin,
Margrét Hlín Sveinsdóttir, Olga
bergmann og Steinunn Guðríð
ur Helgadóttir en þær voru allar
við myndlistarnám á sama tíma
í Gautaborg.
Eden á sér djúpar rætur í þjóð
arsálinni og tengist góðum
minningum um framandi nátt
úru og ís með dýfu. Í mörg ár
hafa líka erlendir ferðamenn
uppgötvað ýmislegt sem staður
inn hefur upp á að bjóða á leið
sinni um landið. Þar hafa löng
um verið myndlistarsýningar, en
listamenn verið af annarri kyn
slóð en þær stöllur.
Sýninguna kalla þær Álfavarp og
segja hana tímabundna heim
sókn ókunnra afla í þennan ald
ingarð þjóðarinnar: „Þessi öfl
rannsaka og gera tilraunir með
mannlíf og náttúru staðarins.“
Verkin eru af ýmsu tagi: hljóð
verk, myndverk í þrívídd og
myndbandsverk. Áætlað var að
sýningin yrði í Eden næstu þrjár
helgar en forvitni um þessa
samsetningu hins forna staðar í
sínum túristastíl og hinna ungu
framsæknu myndlistarkvenna
kann að leiða til lengra sýningar
halds. - pbb
Álfar setjast að í Edens ranni
Kl. 12.00
Tómas Guðni Eggertsson, organisti
Grundarfjarðar og Stykkishólms, leikur á
Klais-orgelið í Hallgrímskirkju á há-
degistónleikum kl. 12 í dag. Á efnisskrá
Tómasar eru Prelúdía í g-moll eftir Dietrich
Buxtehude, hinn frægi Kórall nr. 3 í a-moll
eftir César Franck, Transports de joie
d´une ame devant la glorie du Christ qui
est la sienne úr L’Ascension III. sem Olivier
Messiaen skrifaði 1933 fyrir hljómsveit en
umritaði ári síðar fyrir orgel.
MyndList Hluti af verkinu „SJö
SAMtöl“ eftir önnu Hallin.
ÞÓR HF | REYKJAVÍK : Ármúla 11 | Sími 568-1500 | AKUREYRI: Lónsbakka | Sími 461-1070 | www.thor. is
Nú er rétti tíminn til að kaupa SENTINEL garðtraktor
Á BETRA VERÐI!
12,5 ha Briggs & Stratton mótor
102 cm sláttubreidd, hliðarfrákast
5 hraða skipting.
169.000,-
15,5 ha Briggs & Stratton mótor
102 cm sláttubreidd, hliðarfrákast
vökvaskipting.
209.000,-
17 ha Briggs & Stratton mótor,
107 cm sláttubreidd, hliðarfrákast.
vökvaskipting
239.000,-
12,5 ha Briggs & Stratton mótor
76 cm sláttubreidd, afturkast
5 hraða skipting, grassafnari.
199.000,-
18 ha Briggs & Stratton mótor
107 cm sláttubreidd, hliðarfrákast
vökvaskipting.
279.000,-
18 ha garðtraktorinn
er með stýri á öllum
hjólum.