Fréttablaðið - 05.07.2007, Síða 46
34 5. júlí 2007 FIMMTUDAGUR
Nú stendur yfir Listasumar á
Akureyri og er margt um dýrð-
ir í bænum. Í hádeginu á morg-
un verða tónleikar í Ketilhúsinu:
það eru ungir listamenn sem stíga
þar fram og flytja blandaða dag-
skrá þekktra sönglaga við undir-
leik Antoníu Havesi píanóleikara:
Hlöðver Sigurðsson tenór og Þór-
unn Marinósdóttir sópran. Hefjast
tónleikarnir klukkan 12.
Hlöðver er Siglfirðingur og
naut kennslu við tónlistarskólann
þar. Hann lærði fyrst á trompet
en sneri sér svo að söngnum undir
leiðsögn Antoníu. Áttunda stigi
lauk hann frá Tónlistarskólanum
á Siglufirði 2001. Síðan lagðist
hann í víking, stundaði söngnám
við Guildhall-skólann í London og
Mozarteum-háskólann í Salzburg.
Nú um stundir nýtur hann leið-
sagnar Kristjáns Jóhannssonar.
Þórunn Marinósdóttir er úr
Reykjavík. Hún stundaði einnig
nám á hljóðfæri um árabil, lærði
á fiðlu í tíu ár áður en hún sneri
sér að söngnum. Hún var fyrst í
Söngskólanum í Reykjavík og lauk
þaðan prófi 2002. Framhaldsnám
hefur hún stundað í Mozartheum
frá 2003 til 2006. Hún er einnig í
læri hjá Kristjáni Jóhannssyni.
Bæði hafa þau komið fram
í óperusýningum í Austurríki
og flutt söngdagskrár víða. Á
tónleikunum á morgun syngja
þau þekktar perlur óperubók-
menntanna og íslenskra sönglaga,
bæði einsöngslög og tvísöng. - pbb
Hádegistónleikar
í Ketilhúsinu
TónlisT Í stundarhléi milli æfinga: Antonía Havesi, Hlöðver Sigurðsson og Þórunn
Marinósdóttir.
Breski myndlistarmaðurinn Peter
Blake – maðurinn sem gerði ásamt
eiginkonu sinni umslag plötunnar
Sergeant Pepper‘s, er sjötíu og
fimm ára um þessar mundir. Hann
heldur upp á afmælið með stórri
málverkasýningu í Tate-safninu
í Liverpool og hefur mátt þola
nokkra gagnrýni í blöðum eftir að
hún var opnuð í síðustu viku.
Sir Peter þarf reyndar ekki að
láta það á sig fá þótt kornung-
ir listfræðingar fúlsi við stórum
olíuverkum hans. Hann hefur um
marga ára skeið verið með vin-
sælli myndlistarmönnum á Bret-
landi, er gjarnan kallaður guð-
faðir poppsins þar í landi, sem er
raunar nokkuð vafasamur titill.
Hann er líka úr þeirri stétt sam-
félagsins sem hefur alltaf verið
litið frekar niður á í yfirlætisfullri
umfjöllun listfræðinga sem lista-
mönnum eins og honum úr verka-
lýðsstétt hefur raunar verið frek-
ar uppsigað við. Hann er úr verka-
lýðsstétt sem skýrir aðdáun hans
á dægurlagahetjum, Presley, Ev-
erly Brothers og Bítlarnir; glímu-
kappar, dvergar og stripparar eru
hans fólk.
Blake hefur valdið nokkru um-
róti síðustu vikur. Hann lýsti því
yfir opinberlega fyrir mörgum
árum að hann væri hættur opin-
berum afskiptum að myndlist en
framleiðir enn verk, bæði stök
verk og print í fjöldaútgáfu. Um-
rótið var sökum þess að hann fal-
bauð vinnuskála sinn til marga
ára til sölu í heilu lagi. Hann hefur
alla tíð verið sjúkur safnari á alls
kyns furðugripi og fullyrða þeir
sem hafa fengið að grúska í vinnu-
skálanum að þar leynist mörg ger-
semin og raunar gæti draslið sem
hann hefur sankað að sér fyllt
heilt safn. Kaupendur hafa ekki
gefið sig fram enda verðið óljóst.
Hann segist þurfa á fjármagninu
að halda: þrátt fyrir langan feril
séu sjóðir hans uppurnir og fátt
eftir til elliáranna.
Ýmsir hafa tekið upp hanskann
fyrir hann síðustu daga. Þar fer
fremstur annar strákur úr verka-
mannastétt: ríkasti myndlistar-
maður núlifandi, Damien Hirst.
Hann fussar við athugasemdum
hinna lærðu og segir að enginn
geti efast um yfirburði afmælis-
barnsins. Eftir hann liggi áhrifa-
mesta listaverk síðustu aldar: um-
slagið um Sgt. Pepper‘s Lonely
Hearts Club Band.
Sýning í Tate-safninu í Liver-
pool verður opin til hausts. - pbb
Guðfaðir poppsins
MyndlisT Sir Peter Blake.
MyndlisT Frægasta myndverk síðustu
aldar, segir Damien Hirst.
Fundaaðstaða
Smáréttahlaðborð
Konfektkökur
Smurt brauð