Fréttablaðið - 05.07.2007, Blaðsíða 62

Fréttablaðið - 05.07.2007, Blaðsíða 62
50 5. júlí 2007 FIMMTUDAGUR 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 MorgunMaturinn LÁrÉtt 2. viðlag 6. guð 8. að 9. angan 11. hef leyfi 12. blossaljós 14. lengja 16. pot 17. málmur 18. sefa 20. grískur bók- stafur 21. íþróttafélag. LÓÐrÉtt 1. fjúk 3. tveir eins 4. skipafélag 5. hamfletta 7. dávænn 10. mánuður 13. gerast 15. einsöngur 16. heyskap- aramboð 19. samtök. LauSn LÁrÉtt: 2. stef, 6. ra, 8. til, 9. ilm, 11. má, 12. flass, 14. síkka, 16. ot, 17. eir, 18. róa, 20. pí, 21. fram. LÓÐrÉtt: 1. drif, 3. tt, 4. eimskip, 5. flá, 7. allstór, 10. maí, 13. ske, 15. aría, 16. orf, 19. aa. „Ég er ekki vön að leggja mikla áherslu á morgunmat. Oftast hita ég mjólk í potti og bæti svo instant-kaffi út í. Þá er ég komin með þetta fína kaffi latte. Stund- um fæ ég mér hrökkbrauð eða súrmjólk með en oftast borða ég ekki almennilega fyrr en um hádegið.“ Andrea Jónsdóttir útvarpskona. „Ég vildi hafa svona diskófíling í þessu,“ segir Ragna Lóa Stefáns- dóttir, eiginkona Hermanns Hreið- arssonar og fyrrum knattspyrnu- kona, um fertugsafmælið sitt sem hún fagnaði ásamt 150 gestum í hinum gyllta sal Hótels Borgar um helgina. Sérstakt hattaþema var í boðinu enda er Ragna Lóa að eigin sögn mikil áhugamann- eskja um höfuðföt. Sjálf var hún í glimmersamfestingi og að sjálf- sögðu með hatt í stíl. Fötin voru hönnuð af þeim Hörpu Einarsdótt- ur og Selmu Ragnarsdóttur. „Ég var búin að heyra af þeim og langaði að prófa eitthvað nýtt,“ segir Ragna Lóa um tildrög þess að hún fékk fyrrnefnda hönnuði í lið með sér. „Ég var mjög ánægð með útkomuna en stelpurnar hönnuðu líka diskógalla á Hemma sem var ekki síður flottur.“ Spurð um hverjir hefðu skarað fram úr hvað höfuðföt varðar nefnir hún knattspyrnubræðurna Jóhann- es Karl og Bjarna Guðjónssyni. „Þeir voru sérstaklega frumleg- ir og lögðu sig mikið fram,“ segir Ragna en Jóhannes Karl gekk víst svo langt að líma hattinn fastan á höfuðið. Skemmtiatriðin í boðinu voru ekki af verri endanum. „Það var fullt af stórgóðum heimatilbún- um skemmtiatriðum og ég fékk Sigríði Klingenberg til að koma og spá fyrir gesti,“ segir Ragna Lóa sem hafði þó ekki tíma til að láta spá fyrir sér. „Svo kom aldrei annað til greina en að fá Magna til að syngja. Hann er stórkostleg- ur skemmtikraftur enda vorum við bæði komin upp á svið með honum áður en við vissum af.“ Þess má geta að Magni söng einn- ig í þrítugsafmæli Hermanns fyrir nokkrum árum. „Hann er í miklu uppáhaldi hjá okkur hjónum.“ Það er ekki hægt að segja annað en að veitingarnar hafi verið í óvenjulegri kantinum en gestum var boðið upp á rjúkandi heitar pylsur með öllu. „Ég er ekki mikið fyrir að setjast niður og eyða tíma í að borða. Þess vegna ákvað ég að hafa bara miðnætursnarl og þar sem maðurinn minn er mikið fyrir pylsur drógum við bara pylsuvagn inn á svæðið. Þetta var heilmikil stemning.“ sigrunosk@frettabladid.is RAgnA lóA stefánsdóttiR: hélt upp á fertugsafmælið á borginni Með pylsuvagn í fertugsafmælinu ragna LÓa og heMMi Hjónin voru í sérhönnuðum diskógöllum sem saumaðir voru í tilefni af fertugsafmælinu. mynd/eRling.is Magni í uppÁhaLdi „Það kom aldrei annað til greina en að fá magna til að syngja,“ segir Ragna lóa sem vatt sér upp á svið og söng með bæði magna og Hermanni við mikinn fögnuð viðstaddra. geStir MeÐ hatta Knattspyrnumenn- irnir eiður smári, Birkir Kristinsson og Bjarni guðjónsson mættu í afmælið. Ragna segir að Bjarni og bróðir hans, Jóhannes Karl, hafi skarað fram úr í hattavali. Stórstjarnan Lindsay Lohan fann síðu hinnar alíslensku sveitar Steed Lord á MySpace-vefnum og varð svo hrifin af tónlist henn- ar að hún hafði samband í gegn- um síðuna til þess að spjalla. „Hún var með einhverja einkasíðu á MySpace á þessum tíma og um 150 vini,“ segir Einar Egilsson, einn af fjórum meðlimum Steed Lord og sambýlismaður Svölu Björg- vinsdóttur, söngkonu sveitarinn- ar. Einar vill annars sem minnst gera úr atvikinu og segir hljóm- sveitarmeðlimi lítið hafa kippt sér upp við aðdáun söngkonunn- ar. „Okkur fannst þetta eiginlega bara fyndið. Það er verið að spila okkur töluvert í klúbbum úti, t.d. í LA, Miami, Atlanta og víðar. Ég veit að vinur Lindsay, plötusnúð- urinn Steve Aoki, þekkir tónlist- ina okkar. Hún gæti hafa heyrt eitthvað hjá honum og farið að leita á netinu í framhaldinu,“ segir Einar. „Við vorum að spila í Miami á þessum tíma og sögðum henni frá því. Hún var spennt fyrir því að mæta en þurfti að vera í New York á sama tíma. Ég veit að minnsta kosti ekki til þess að hún hafi mætt.“ Væntanlega er það rétt hjá Einari enda fer nærvera Lindsay sjaldnast framhjá neinum vegna þess aragrúa af ljósmynd- urum sem fylgir henni hvert fót- mál. Einar segist ekki hafa heyrt í Lindsay nýverið enda er hún búin að loka MySpace-síðunni sinni. Lindsay Lohan hrifin af Steed Lord hLjÓMSveitin Steed Lord lindsay lohan er einn af aðdáendum sveitarinnar og setti sig í samband við hljómsveitarmeðlimi til þess að spjalla. Jakob Frímann Magnússon og kona hans, Birna Rún Gísladóttir, eignuðust sem kunn- ugt er dóttur í lok maí síðastliðinn. Sú litla var skírð nýverið og var gefið nafnið Jarún Júlía, en hún er sú eina á landinu sem ber Jarúnarnafnið. „Ef merkingin er skoðuð má sjá að forskeytið „ja“ er komið af sama stofni og guðsnafnið „jave“. Rún þýðir hins vegar tákn. Nafnið merkir því eiginlega guðstákn og hvað er táknrænna fyrir almættið en ný- fætt stúlkubarn?“ sagði Jakob þegar Frétta- blaðið hafði samband við hann og spurði hvaðan þetta óvenjulega nafn væri komið. Nafn Jarúnar er þó ekki leitt beint af nöfnum þeirra Jakobs og Birnu Rúnar. „Það er búið að skíra í höfuðið á báðum ömmum barnsins. Þess vegna fórum við að skoða bæði langafa og -ömmur,“ segir Jakob. „Birnu megin voru nöfnin Guðrún og Sigrún. Afi minn hét Jakob. Allir þessir einstaklingar voru miklir áhrifa- valdar í okkar lífi. Seinna nafnið, Júlía, er hins vegar í höfuðið á móður Johns Lennon,“ segir Jakob og bætir því við að Lennon hafi alltaf verið í miklu uppáhaldi hjá bæði sér og Birnu. „Hugmyndin að nafninu fæddist fljót- lega eftir að við sáum myndir af barninu í þrí- víddarsónar. Við mátuðum nafnið strax við hana og það hefur bæði vanist og vaxið síðan.“ Mannanafnanefnd samþykkti nafnið einróma og gestir í skírninni gerðu slíkt hið sama. „Viðbrögðin hafa öll verið á einn veg enda ber stúlkan nafnið með stakri prýði.“ - sók Lét skíra í höfuðið á móður Lennons jakob og jarún júLía nafnið Jarún vísar til langamma og -afa hennar en Júlía er nafn móður Bítilsins Johns lennon. mynd/HeiðA great wall Glæsilegur Kínverskur veitingastaður Hádegisverðarhlaðborð mánudaga til föstudags frá kl: 11:45-14:00. 1,450.-kr. Opið á kvöldin 18:00- 23:00 great wall Vesturgata 6-8 s: 552-1900 FYRSTUR MEÐ FRÉTTIRNAR www.visir.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.