Fréttablaðið - 06.07.2007, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 06.07.2007, Blaðsíða 4
 Alls verða 604 rúm á Landspítalanum þegar bygg- ingu nýs spítala við Hringbraut verður lokið. Rúmum fyrir líkam- leg veikindi fjölgar um 38 frá því sem nú er. Alfreð Þorsteinsson, formaður framkvæmdanefndar um byggingu nýja spítalans, segir að ekki sé þörf fyrir fleiri rúm þar sem stefnt sé að fækkun legudaga á sjálfu sjúkra- húsinu. „Eins og annars staðar í heiminum er gert ráð fyrir að inn- lagnir verði styttri og að fólk jafni sig eftir aðgerðir á sjúkrahóteli sem þarna verður.“ Vinningstillaga úr samkeppni um nýja sjúkrahúsið hefur verið end- urskoðuð og húsnæðið tekið nokkr- um breytingum. Legudeildarálm- um var fækkað um eina og þær hækkaðar um eina hæð. Bráðamót- taka var færð nær barnaspítala og aðalinngangur fluttur miðsvæðis. Þá voru háskólabyggingar færðar frá íbúðabyggðinni í Þingholtun- um. Alfreð segir þetta hafa verið gert eftir athugasemdir íbúa sem töldu að sér þrengt og starfsmanna sem töldu að byggingin væri flött óþarflega mikið út. Í upphaflegum áætlunum var ráðgert að hefja framkvæmdir á næsta ári. Það hefur breyst og verð- ur byrjað 2009. Þegar hafa 490 milljónir verið lagðar í verkið og á næsta ári eru því markaðar 1.500 milljónir. Fjórir milljarðar renna svo til þess árlega næstu þrjú ár á eftir. Stjórnvöld hafa þegar ákveð- ið að 18 milljarðar af svonefndum Símapeningum fari í byggingu nýs spítala en framreiknaður heildar- kostnaður er áætlaður milli 50 og 60 milljarða króna. Stefnt er að því að fyrsta áfanga verði lokið árið 2013 eða 2014 og stendur vilji framkvæmda- nefndarinnar til að þess að þá verði hægt að flytja núverandi starfsemi Land- spítalans í Foss- vogi undir nýtt þak við Hring- braut. Upphafleg áætlun um að framkvæmdunum verði að fullu lokið 2018 er enn í gildi. Alfreð segir vandað til alls undir- búnings enda mikilvægt að áætlan- ir séu sem nákvæmastar. „Það er mjög brýnt svo ekki þurfi að grípa til kostnaðarsamra breytinga á framkvæmdatímanum.“ Legudögum fækkað á nýja spítalanum Legudeildarálmum nýs háskólasjúkrahúss hefur verið fækkað um eina og þær hækkaðar um eina hæð frá því sem ráðgert var í vinningstillögu um spítalann. Stefnt er að fækkun legudaga og að fólk jafni sig eftir aðgerðir á sjúkrahóteli. Taktu þátt og safnaðu stimplum hjá Olís. Glæsilegir vinningar í boði! Við höldum með þér! Kristbjörg Stephen- sen, lögmaður Reykjavíkurborg- ar, hafnar niðurstöðu lögmanna íbúa á Njálsgötu um að fyrirhug- að athvarf fyrir heimilislausa teljist vera stofnun en ekki heimili „Ekki er um það deilt að húsnæði það sem um er deilt í þessu máli uppfyllir skilyrði um íbúðarhúsnæði. Húsnæðið er jafnframt staðsett á skilgreindu íbúðarhússvæði. Engin ákvæði eru í lögum um að heimili fyrir þennan hóp einstakl- inga skuli ekki teljast til heimilis í venjulegum skilningi þess orðs heldur til stofnunar,“ segir í umsögn Kristbjargar til velferð- arsviðs borgarinnar. Verður heimili en ekki stofnun Ungur pólskur karlmaður hefur í Hér- aðsdómi Reykjavíkur verið sýknaður af ákæru um að hafa nauðgað stúlku í kjallara Hótels Sögu í mars síðastliðnum. Fjölskipaður héraðsdómur komst að þeirri niðurstöðu að athæfi mannsins gæti ekki talist ofbeldi í skilningi laga, og að manninum hefði ekki hlotið að vera það ljóst að samræðið við konuna væri gegn vilja hennar. Maðurinn var ákærður fyrir að hafa þröngvað konunni til samræðis með ofbeldi með því að ýta henni inn á salernisbás og hafa þar munnmök við hana, sleikja kynfæri hennar, hafa við hana samræði og reyna að setja getnaðarlim sinn í endaþarm hennar. Í dómnum segir að framburður stúlkunnar sé einkar trúverðugur og að ljóst sé að samræði hafi átt sér stað, gegn hennar vilja, og nokkurn veginn eins og lýst er í ákæru. Hins vegar segir í dómnum að ekki verði séð að maðurinn hafi haft ástæðu til að halda að „hún væri honum andhverf“ þar sem þau urðu sam- ferða niður að snyrtingunni og frásögn manns- ins um að vel hafi farið á með þeim sé ekki ótrú- verðug. Hún hafi auk þess ekki streist á móti á meðan á samræðinu stóð, og ekki reynt að kalla á hjálp þegar einhver kom inn á salernið. Sjálf segist hún hafa verið í of miklu áfalli til þess. Þá segir að ef byggt sé á frásögn stúlkunnar af því sem gerðist líti dómurinn svo á „að það að ákærði ýtti [stúlkunni] inn í klefann, læsti klefan- um innan frá, dró niður um hana, ýtti henni niður á salernið og síðan niður á gólf, geti, hlutrænt séð, ekki talist ofbeldi í skilningi [laga], eins og það hugtak hefur verið skýrt í refsirétti og langri dómaframkvæmd.“ Það eitt myndi nægja til að sýkna manninn, segir í dómnum. Ný vínbúð var opnuð á Hellu í fyrradag. Vínbúðin er í sama húsnæði og Kjarvalsverslunin við Suðurlandsveg. Á heimasíðu Rangárþings ytra kemur fram að yfir 200 vörutegundir verði fáanlegar að jafnaði í búðinni. Opið verður frá 14 til 18 virka daga og til klukkan 19 á föstudögum. Fyrsti viðskiptavinurinn var hestamaðurinn Brynjar Vilmund- arson sem nýlega seldi athafna- manninum Karli Wernerssyni hið mikla hestabú á Feti. Áður en Brynjari og öðrum viðskiptavinum var hleypt inn var sveitarstjórnar- mönnum boðið í kaffi. Kaffidrykkja í nýrri vínbúð Reisa á minningarkross um Þjóðverjann Oliver Meisner sem fórst við hellaskoðun í íshelli í nágrenni Hrafntinnuskers í ágúst í fyrra. Hreppsnefnd Rangár- þings ytra hefur samþykkt uppsetningu minningarkrossins sem mun vera sextíu sentímetra hár og staðsettur við íshellinn. Meisner var tæplega 38 ára þegar hann lést við það að afar þung íshella brotnaði og féll yfir hann. Meisner lét eftir sig eiginkonu. Minningarkross um Þjóðverja
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.