Fréttablaðið - 06.07.2007, Blaðsíða 52

Fréttablaðið - 06.07.2007, Blaðsíða 52
Síðustu ár hef ég stöðugt verið að átta mig betur og betur á því hvað það eru mikil forréttindi að hafa fengið að alast upp annars staðar en í miðbæ Reykjavíkur. Reyndar var það þar sem ég kom í heiminn og bjó fyrstu árin en fljótlega var ég samt flutt norður í land þar sem ég bjó fram undir tvítugt. Eftir að ég eltist hef ég síðan verið á stöðugu flakki fram og til baka og þó að mér finnist ágætt að búa í höfuðstaðnum finnst mér alltaf mjög gott að geta skipt um umhverfi og komist heim í sveitina. Jólafrí og páskafrí hafa því verið í miklu uppáhaldi hjá mér síðustu ár þar sem ég hef getað notað þau til þess að fara heim og slappa af. Þang- að til nýlega tengdi ég dálæti mitt á þessum fríum aðallega við meiri svefn en nú er ég búin að átta mig á að sennilega er það flóknara en svo. Síðasti vetur var nefnilega einn besti vetur sem ég hef átt þau ár sem ég hef búið í Reykjavík. Ástæðan var ekki sú að ég væri í fríi allan vetur- inn, því það var ég alls ekki, heldur sú að þetta árið var ég miklu dug- legri við að fara stuttar dagsferðir út úr bænum en fyrri ár. Skammdeg- isletin sem ég hafði verið að pirra mig á var því eftir allt saman ekki bara leti heldur líka einhvers konar hundraðogeinn innilokunarkennd. Þrátt fyrir að vera að norðan og þar af leiðandi viss um að allar helstu náttúruperlur landsins sé þar að finna er ótrúlegt hvað ég er búin að finna marga fallega og áhuga- verða staði sunnanlands á stuttum tíma. Ég hef reynt að fara eitthvað og gera eitthvað skemmtilegt flest- ar helgar og það er alveg á hreinu að því að keyra út í sveit fylgir ein- hver frelsistilfinning sem finnst ekki á miklubrautum borgarinnar. Ég mæli því með ferð í sveitina fyrir alla sem vilja vera almennt ánægðari og orkumeiri, og ekki bara á sumrin heldur líka á haustin, vorin og veturna. Helst bara eins oft og mögulegt er. Ég er líka alveg á því að þó að geti verið gaman að skreppa til London eða einhverrar annarrar borgar jafnist það ekki á við að fara út í íslenska sveit, ef maður hefur ekki verið duglegur að því.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.