Fréttablaðið - 06.07.2007, Blaðsíða 26
Brynhildur Pálsdóttir kveðst
nota hefðbundna uppskrift
að amerískri súkkulaðiköku.
Þessi dugar í eitt gott fjall.
Þurrefnunum er blandað saman.
Þá er smjörinu og mjólkinni bætt
útí og hrært í tvær mínútur. Síðan
koma eggin og vanilludroparnir
og þá aftur hrært í tvær mínútur.
Deigið er sett í mót sem búið er
til úr álpappír og bakað við 180
gráðu hita. Síðan þarf að fylgjast
með hvenær kakan er bökuð í
gegn, til dæmis með því að stinga
í hana prjóni. Lögunin á mótinu
hefur áhrif á bökunartímann.
Meira vill Brynhildur ekki gefa
upp um gerð kökunnar en tekur
fram að leiðarvísir um framhald-
ið fáist á Kjarvalsstöðum.
„Þetta er auðvitað svolítið brútal
terta. Hún er mjög bragðgóð en
þó meira gerð til að skapa stemn-
ingu,“ segir hún að lokum.
Súkkulaðieldfjallið góða
Á Lifandi.is á Ingólfsstræti 8
er boðið upp á hráfæði og aðra
hollustu.
„Lifandi.is er veitingahús þar
sem boðið er upp á hráfæði en á
bakvið hann stendur áhugafólk
um hollustu og hráfæði,“ segir
Guðmundur Ragnar Guðmunds-
son, einn eigenda staðarins, og
bætir við að heitið sé tilkomið
þar sem hópurinn líti frekar á
fæðuna sem lifandi en hráa.
Orðið hrátt sé þar að auki gjarn-
an notað yfir kjöt, sem ekki verði
á boðstólum í Lifandi.is.
„Hér verða hins vegar alltaf
góðir aðalréttir í boði, grænmet-
isbuff ásamt vel útilátnu með-
læti,“ segir Guðmundur. „Það er
þó alveg viðbúið að fólk sjái í
fyrstu ekki muninn á því og jurta-
fæði.
Svo verður hægt að fá súpu
dagsins og eins orkusúpur, eins
og fólk lærir gjarnan um á nám-
skeiðum um hráfæði. Þá eru
óupptalin salöt, smoothies,
ávaxtasafar, kökur og te. Það er
kannski rétt að taka fram að teið
er það eina sem ekki er hundrað
prósent hrátt á staðnum.“
Að sögn Guðmundar er hug-
myndin með neyslu hráfæðis sú
að borða minna af unninni mat-
vöru, þar sem talið er að hún hafi
skaðvænleg áhrif á heilsuna.
„Það sama gildir um eldaðan mat.
Við teljum að hann glati næring-
arefnum við of mikla hitun, auk
þess sem ákveðin efnasambönd
myndist, sem líkaminn getur ekki
unnið úr. Svo hafa efnasambönd í
brenndum mat slæm áhrif á lík-
amann. Þess vegna er ekki farið
yfir 46 gráður þegar hráfæði er
hitað.“
Guðmundur hvetur sem flesta
til að kíkja í heimsókn og smakka
á matnum, þótt það sé ekki nema
til að fá smá tilbreytingu, en til
að lesendur hafi skýrari hug-
mynd um matinn var hann svo
vænn að gefa uppskrift að girni-
legum bollum.
Setjið allt í matvinnsluvél og
maukið (með hnífi). Gerið um það
bil 24 litlar kúlur.
Setjið í þurrkofn í átta tíma.
Snúið kúlunum reglulega svo þær
verði stökkar á öllum hliðum.
Borið fram með grænu salati
og ananas/hvítkálssalati.
Allt skorið í bita og blandað
saman. Hvítkálið skorið fínt.
Lifandi, ekki hrátt