Fréttablaðið - 06.07.2007, Blaðsíða 66

Fréttablaðið - 06.07.2007, Blaðsíða 66
 Arnór Guðjohnsen, faðir og umboðsmaður Eiðs Smára Guð- johnsen, greindi frá því í gær að Barcelona vildi halda landsliðs- fyrirliðanum í sínum röðum. Þrá- látur orðrómur hefur verið um að Eiður sé á leið aftur til Englands en hann hefur alltaf sagst vilja vera áfram í herbúðum Barcelona. Þar sem viljinn er beggja vegna eru litlar líkur á því að Eiður Smári fari í sumar. „Þeir (Barcelona) sögðu, „ef þú vilt glaður vera hér áfram, viljum við gjarnan að þú verðir það“,“ sagði Arnór við Sky-fréttastofuna í gær. Arnór sagði einnig að hann hefði ekki rætt við nein félög um hugsanleg kaup á Eiði Smára. Eiður er staddur á Íslandi þessa stundina og sagði Arnór að Eiður hefði í nógu að snúast. „Hann er mjög ákveðinn, hann er að æfa á fullu hérna á Íslandi í fríinu sínu og hann ætlar að vera vel undir- búinn fyrir næsta tímabil,“ sagði Arnór. Þjálfarar og læknalið Barce- lona settu saman æfingaáætl- un fyrir hvern og einn leikmann til að vinna að í sumar, áður en leikmenn koma saman til æfinga á undirbúningstímabilinu. Leik- menn félagsins hófu þessar æf- ingar í vikunni og ber þeim að æfa þrisvar í viku, kvölds og morgna, og svo oftar þegar nær dregur tímabilinu. Leikmenn félagsins eru einnig hvattir til að slappa af inn á milli og spila golf eða strandblak. Barcelona vill halda Eiði Smára Í gær var dregið í riðla í Meistaradeild Evrópu í kvenna- flokki. Valsstúlkur voru í efsta styrkleikaflokki og spila gegn meisturum Hollands, Finnlands og Færeyja, ADO Den Haag, FC Honka og KÍ Klakksvík. „Þetta er erfiðasti dráttur sem við gátum fengið. Þetta verður mjög erfitt og við erum klárlega í dauðariðlinum. Liðin frá Hollandi og Finnlandi voru of neðarlega í styrkleikaflokkum þar sem þetta er í fyrsta skipti sem þau verða meistarar,“ sagði Elísabet Gunn- arsdóttir, þjálfari Vals, en leikið er í Færeyjum dagana 9. til 14. ágúst. Eitt lið kemst áfram upp úr riðlin- um. Valsstúlkur í dauðariðlinum Chelsea vonast eftir því að ganga frá kaupum á franska landsliðsmanninum Florent Malouda um helgina. Viðræður félagsins við Lyon ganga hægt en örugglega en talið er að franska félagið krefjist um sautján millj- óna punda fyrir vinstri kantmann- inn. Líklegt er að Arjen Robben fari til Real Madrid ef af kaupun- um á Malouda verður. Vonir standa til að Malouda fari með Chelsea í æfingaferð til Bandaríkjanna í næstu viku. Nálgast kaup á Malouda Samkvæmt fréttum á Englandi eru allar líkur á því að Carlos Tevez skrifi undir samning við Manchester United á næstu dögum. BBC greindi frá því í gær að viðræður væru í fullum gangi en ekki er ljóst hvort United kaupi Tevez eða fái hann lánaðan. Kaup- verðið á Tevez ku nema um 20 milljónum punda. Sir Alex Ferguson hefur þegar keypt Anderson, Nani og Owen Hargreaves á samtals um 50 millj- ónir punda í sumar. Tevez vildi lítið tjá sig um orðróminn í sam- tali við fjölmiðla í gær. Tevez næstur? Íslenskt tónlistarsumar Nýjar íslenskar geislaplötur í næstu verslun 2CD 23. júlí 23 . jú lí 23. júlí Megas og Senuþjófarnir - FrágangurÍslandslög 7Íslandslög 1-6 Logar - mikið var Sextett Ólafs Gauks - 14 lög frá Þjóðhátíð Vestmannaeyja í brekkunni - Vinsælustu Eyjalögin 6CD 10. júlí Stuðkompaníið - 2XTÓLF
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.