Fréttablaðið - 06.07.2007, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 06.07.2007, Blaðsíða 34
BLS. 6 | sirkus | 6. JÚLÍ 2007 F oreldrar mínir hafa alltaf verið miklir hippar en sjálf var ég farin að máta pinnahæla mjög ung,“ segir Eva Dögg Sigurgeirsdóttir markaðsstjóri sem veitt hefur konum ráðgjöf um tísku í áraraðir. Þrátt fyrir að hafa verið farin að skoða búðar- gluggana á Laugaveginum sem lítil stelpa segir Eva Dögg að hún aðhyllist ekki ákveðinn stíl heldur fari klæðnað- ur hennar eftir því í hvernig skapi hún vakni. „Ég á eina 8 ára sem er alveg eins og ég var. Það þýðir hins vegar ekkert að kvarta því mamma þurfti að díla við það sama með mig,“ segir Eva bros- andi. „Ég get ekki sagt að stíllinn minn sé svona eða hinsegin því ég breyti reglulega um stíl. Ég dett í gallabuxur og strigaskó um tíma en fer svo í pinna- hælana og er voðalega fín inn á milli, það fer eftir skapi, veðri og vindum og hvað ég er að gera hverju sinni. Ég hugsa sjaldnast fram í tímann heldur læt skapið ákvarða fötin á morgnana.“ Eva Dögg segir leiðinlegt við tískuna þegar fólk leitist eftir að klæða sig eins. Hins vegar þar sem úrvalið og flóran sé meiri sé fólk óhræddara við að prófa sig áfram og móta sinn eigin stíl. „Ég hef mjög gaman af íslenskri hönnun og „second hand“ fötum og finnst það kærkomin nýjung í flóruna. Tískuból- ur eru ekki alltaf skemmtilegar enda klæða þær ekki alla og mér finnst fólk fyrst og fremst þurfa að hugsa um hvort fötin klæði það frekar en hvort þau séu í tísku. Ekki bara kaupa af því að það eru allir aðrir að kaupa eða af því að búðarkonan segir að þetta eða hitt sé flott. Svo finnst mér líka að það ætti að vera bannað að konur kaupi of lítil föt sem þær ætla að grenna sig í því þröng föt gera okkur bara feitari,“ segir Eva Dögg sem er ófrísk að sínu þriðja barni. Hún segir lítið mál að halda áfram að klæða sig fallega þótt hún sé ófrísk því tímarnir séu heldur betur breyttir frá því þegar hún gekk með sitt fyrsta barn fyrir um 14 árum. „Þá bjó ég í Bandaríkjunum og eini meðgöngu- fatnaðurinn voru svokallaðir rjóma- kökukjólar. Hér á Íslandi var hins vegar ekkert að fá. Í dag er gaman að vera ófrísk því landslagið er allt annað og mikið úrval verslana hér á landi sem bjóða upp á smart óléttuföt,“ segir Eva Dögg sem er á leið í sumarfrí til Barce- lona. Hún hefur tekið sér frí frá tísku- ráðleggingum um tíma en segir aldrei að vita hvað hún geri eftir barneignar- leyfið. „Ég mun halda áfram í mínu starfi og mun örugglega gera eitthvað fleira spennandi enda hef ég góða reynslu og hef mjög gaman af því að starfa með fólki. Það er aldrei að vita hvað maður gerir í þessum tísku- bransa í framtíðinni.“ indiana@frettabladid.is EVA DÖGG SIGURGEIRSDÓTTIR Á VON Á SÍNU ÞRIÐJA BARNI. HÚN SEGIR MIKINN MUN Á MEÐGÖNGUFATN- AÐI Í DAG OG ÞEGAR HÚN VAR ÓFRÍSK FYRIR 14 ÁRUM. EVA DÖGG HLEYPTI SIRKUS Í FATASKÁPINN. Ófrískar konur eru líka smart GLAMÚR „Rauða kjólinn fékk ég í Zöru. Ætli stíllinn minn sé ekki pínu glamúr? Allavega hef ég voðalega gaman af öllum „díteilum“. Svo er ég í svörtum leggings við með smellum en þessi leggings tíska er voðalega þægileg þegar maður er ófrískur.” GULLSKÓR „Peysuna fékk ég í unglinga- búð en ég er hrifin af gulli og féll fyrir peysunni. Kærastinn minn gaf mér svo gullskóna en mig hafði lengi langað í gullstrigaskó.“ ELSKAR GALLAEFNI „Ég elska þennan kjól en hef fengið gagnrýni hjá þeim sem eru á móti vopnum,” segir Eva Dögg hlæjandi. „Gallajakkinn er í sérstöku uppáhaldi en mér finnst nauðsynlegt að eiga nokkra gallajakka fyrir sumarið.“ ALGJÖR PÆJA „Ég klippi oft neðan af gallabuxunum mínum enda vil ég hafa þær gamlar og þægilegar.“ FLOTT „Ég kemst enn þá í gallabux- urnar mínar og get því aðeins skvísast enn þá. Kápuna gaf vinkona mín mér og mér þykir rosalega vænt um hana. Ég held að ég hafi verið egypsk prinsessa í fyrra lífi því ég elska svona munstruð og útsaumuð efni.“ MYND/VILLI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.