Fréttablaðið - 06.07.2007, Blaðsíða 72
Ádauða mínum átti ég von en ekki því að gerast fréttaritari
þessarar baksíðu á heimsmeist-
aramótinu í siglingum, sem nú fer
fram í Cascais í Portúgal. Sú er þó
raunin. Ég get lýst því yfir með
stolti að ég þekki hinar ýmsu báta-
tegundir og einkenni þeirra, til
dæmis veit ég að sætustu siglinga-
mennirnir sigla bátum sem kennd-
ir eru við töluna 49. Siglingafólk
almennt minnir helst á stúlkuna
frá Ípanema; hávaxið, sólbrúnt,
ungt og yndislegt.
eðlislægum öfuguggahætti
verður mér þó frekar starsýnt á
fólk af öðrum ástæðum, eins og
rússneska siglingamanninn sem
er svo kafloðinn á bakinu að ég
held mig vera búna að finna týnda
hlekkinn, eða síbrosandi náung-
ann frá Jómfrúreyjum sem lítur
út alveg eins og Michael Jackson
áður en hann fölnaði. Í stað þess
að taka tunglgönguna leit hann á
mig og sagði (hugsanlega versta
pikköpplína í veröldinni?): Augun
í þér passa við gólfteppið. (Um er
að ræða upplitað blátt gerviteppi í
anddyri íshokkíhallar.)
er samt indverski
seglbrettakappinn sem hafði að-
eins tólf sinnum á ævi sinni stig-
ið á seglbretti og þurfti töluverða
aðstoð við að komast aftur í land
eftir fyrstu æfinguna. Svona sigr-
ar þátttökuandinn þjóðarstoltið.
gerði það reyndar ekki
hvað Íslendinga varðar. Við gerum
það gott í greinum eins og skot-
fimi (áttum gullverðlaunahafann
með loftskammbyssu á Smáþjóða-
leikunum fyrir nokkru, þó það hafi
ekki farið hátt) en þegar kemur að
íþróttum sem tengjast sjó eða snjó
er eylandið Ísland úr leik. Nokkra
Dani hef ég rekist á og tilkynnt
þeim með stolti að vegna skorts
á íslenskum keppendum muni ég
styðja gömlu herraþjóðina af tvö-
faldri ástríðu. Þeir láta sér yfir-
leitt fátt um finnast – hvad så? –
enda danskan mín kannski ekki
upp á marga fiska. Og ég uppskar
einungis rannsakandi augnaráð frá
Norðmönnunum þegar ég hugðist
vísa til menningararfs þeirra og
söngla La det svinge.
er ég heldur eng-
inn siglingafréttaritari, ég er allt-
of upptekin við að glápa á og gera
grín að keppendum jafnt sem
áhorfendum. Enda held ég að það
sé mun meira mannbætandi iðja
en að hætta lífi sinu og limum,
slíta vöðva og rífa sinar, við svona
ölduhopp. Jötunuxar hittu jú nagl-
ann á höfuðið hér í denn: Brenni-
vínið bjargaði mér frá íþróttaböl-
inu.
La det svinge
STÓRÚTSALA
Reykjavík Faxafen 12 S. 533-1550. Keflavík Hafnargata 25 S. 421-3322
50-80%
AFSLÁTTUR
OPIÐ
VIRKA DAGA 10 – 18
LAUGARD. 11 – 16