Fréttablaðið - 06.07.2007, Page 72

Fréttablaðið - 06.07.2007, Page 72
Ádauða mínum átti ég von en ekki því að gerast fréttaritari þessarar baksíðu á heimsmeist- aramótinu í siglingum, sem nú fer fram í Cascais í Portúgal. Sú er þó raunin. Ég get lýst því yfir með stolti að ég þekki hinar ýmsu báta- tegundir og einkenni þeirra, til dæmis veit ég að sætustu siglinga- mennirnir sigla bátum sem kennd- ir eru við töluna 49. Siglingafólk almennt minnir helst á stúlkuna frá Ípanema; hávaxið, sólbrúnt, ungt og yndislegt. eðlislægum öfuguggahætti verður mér þó frekar starsýnt á fólk af öðrum ástæðum, eins og rússneska siglingamanninn sem er svo kafloðinn á bakinu að ég held mig vera búna að finna týnda hlekkinn, eða síbrosandi náung- ann frá Jómfrúreyjum sem lítur út alveg eins og Michael Jackson áður en hann fölnaði. Í stað þess að taka tunglgönguna leit hann á mig og sagði (hugsanlega versta pikköpplína í veröldinni?): Augun í þér passa við gólfteppið. (Um er að ræða upplitað blátt gerviteppi í anddyri íshokkíhallar.) er samt indverski seglbrettakappinn sem hafði að- eins tólf sinnum á ævi sinni stig- ið á seglbretti og þurfti töluverða aðstoð við að komast aftur í land eftir fyrstu æfinguna. Svona sigr- ar þátttökuandinn þjóðarstoltið. gerði það reyndar ekki hvað Íslendinga varðar. Við gerum það gott í greinum eins og skot- fimi (áttum gullverðlaunahafann með loftskammbyssu á Smáþjóða- leikunum fyrir nokkru, þó það hafi ekki farið hátt) en þegar kemur að íþróttum sem tengjast sjó eða snjó er eylandið Ísland úr leik. Nokkra Dani hef ég rekist á og tilkynnt þeim með stolti að vegna skorts á íslenskum keppendum muni ég styðja gömlu herraþjóðina af tvö- faldri ástríðu. Þeir láta sér yfir- leitt fátt um finnast – hvad så? – enda danskan mín kannski ekki upp á marga fiska. Og ég uppskar einungis rannsakandi augnaráð frá Norðmönnunum þegar ég hugðist vísa til menningararfs þeirra og söngla La det svinge. er ég heldur eng- inn siglingafréttaritari, ég er allt- of upptekin við að glápa á og gera grín að keppendum jafnt sem áhorfendum. Enda held ég að það sé mun meira mannbætandi iðja en að hætta lífi sinu og limum, slíta vöðva og rífa sinar, við svona ölduhopp. Jötunuxar hittu jú nagl- ann á höfuðið hér í denn: Brenni- vínið bjargaði mér frá íþróttaböl- inu. La det svinge STÓRÚTSALA Reykjavík Faxafen 12 S. 533-1550. Keflavík Hafnargata 25 S. 421-3322 50-80% AFSLÁTTUR OPIÐ VIRKA DAGA 10 – 18 LAUGARD. 11 – 16

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.