Fréttablaðið - 06.07.2007, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 06.07.2007, Blaðsíða 8
Ríkissaksóknari gerir kröfu um að Rúnar Þór Róbertsson verði dæmdur í sjö til átta ára fang- elsi fyrir þátttöku í smygli á 3,8 kílóum af kókaíni til landsins. Þá er þess krafist að Jónas Árni Lúðvíks- son verði dæmdur í þriggja til fjög- urra ára fangelsi fyrir hlutdeild í málinu. Aðalmeðferð í þessu umfangs- mikla fíkniefnamáli er lokið. Verj- endur beggja sakborninga gerðu kröfu um sýknu. Verjandi Jónasar Árna, Sveinn Andri Sveinsson, hrl. sagði í mál- flutningi sínum í Héraðsdómi skjól- stæðing sinn hafa verið ákærðan fyrir að hafa fjarlægt ætluð fíkni- efni úr bíl sem fluttur var til lands- ins og reyndist geyma kókaínið. Sveinn Andri benti á að þar sem fyrir lægi að í bílnum hefðu verið gerviefni en ekki ætluð fíkniefni þá stæðist ákæran ekki. Þá undirstrikaði verjandinn að Jónas Þór hefði vitað að ekki væru fíkniefni í bílnum heldur gerviefni, þar sem DV hefði fjallað um málið þegar það kom upp á sínum tíma og verið nokkuð nákvæmt, bæði á magn og styrkleika efnisins. Fíkni- efni væru aldrei afhent áfram held- ur gerviefni sett í staðinn. Loks benti Sveinn Andri á að Jónas Árni væri einungis ákærður fyrir að hafa tekið ætluð fíkniefni úr bíln- um og ætlað að afhenda þau áfram. Forsendan fyrir broti hans væri sú að áframafhending gerviefnanna færi fram. Ekki væri hægt að byggja ákæru og sakfellingu á sönnunargögnum sem lögregla byggi til. Verjandi Rúnars Þórs, Þorsteinn Einarsson hæstaréttarlögmaður lagði áherslu á í málflutningi sínum að Rúnar Þór hefði ekki vitað um fíkniefnin í bílnum. Hann væri því fórnarlamb en ekki gerandi. Ákæruvaldið hefði ekki sýnt fram á sök hans að aðild málsins. Þá benti ekkert til þess að Rúnar Þór hefði komið að töku fíkniefnanna úr bílnum. Loks hefðu verið hnökr- ar á rannsókn lögreglu á málinu. Ásgeir Karlsson sem var yfir- maður fíkniefnadeildar þegar rann- sókn málsins hófst bar fyrir dómi, að frétt DV hefði komið lögregl- unni í opna skjöldu á sínum tíma. „Málið var á afar viðkvæmu stigi,“ sagði hann, „og það kom í ljós við rannsókn málsins að fréttin hafði verulega slæm áhrif á hana.“ Hann bætti við í samtali við Fréttablaðið að leki upplýsinga af þessu tagi væri verulegt áhyggju- efni. Málsvörnin byggð á frétt úr dagblaði Gerð er krafa um allt að átta ára fangelsisdóm yfir meintum kókaínsmyglara. Verjendur byggja meðal ann- ars á frétt DV af málinu og gagnrýna rannsókn þess. Síbrotamaður um tvítugt hefur í Héraðsdómi Norðurlands eystra verið dæmdur í fimmtán mánaða fangelsi fyrir fjölda brota. Maðurinn braust í nóvember inn í Glerárskóla á Akureyri og stal þaðan gríðarmiklum tölvubúnaði og öðrum munum. Þá ók hann undir áhrifum lyfja á ofsahraða undan lögreglu í Kópavogi í ágúst í fyrra og endaði löng eftirförin með því að maðurinn ók á annan bíl og hafnaði því næst á strætó- skýli. Hann braust einnig inn í bakarí og stal þaðan reiðufé og kókflösk- um og reyndi að greiða fyrir vörur og þjónustu með annarra manna greiðslukorti. Hann á talsverðan sakaferil að baki. Rúmlega 27,5 milljón- um króna var á dögunum úthlutað til mannaskiptaverk- efna á vegum Evrópusambands- ins. Verkefnið er á vegum skrifstofu menntaáætlunar Evrópusambandsins og nefnist Leonardo da Vinci. Árlega eru fyrirtækjum, skólum og stofnunum veittir styrkir til mannaskiptaverk- efna. Þar gefst fólki í starfs- námi eða á atvinnumarkaði, leiðbeinendum eða stjórnendum kostur á að afla sér starfsþjálf- unar í Evrópu. Í ár fer styrkupphæðin til samtals 172 einstaklinga. Styrkir til starfsmennta Tveir liðsmenn vél- hjólaklúbbsins Fáfnis voru í gær- kvöldi dæmdir í gæsluvarðhald til mánudags fyrir að ráðast á annan liðsmann í félagsmiðstöð klúbbsins í fyrrakvöld. Samkvæmt upplýs- ingum Fréttablaðsins var skipti- lykli, járnstöng og öðrum verkfær- um beitt í árásinni. Lögregla mætti í félagsmiðstöð klúbbsins við Frakkastíg um kvöld- matarleytið eftir að íbúar í nágrenn- inu létu vita af barsmíðum í húsinu. Lögreglan handtók tíu liðsmenn klúbbsins og færði í fangageymsl- ur. Tveir þeirra veittu mótspyrnu við handtöku. Þá var hinn slasaði yfirheyrður áður en hann var flutt- ur til aðhlynningar á slysadeild. Hann reyndist talsvert lemstraður víða um líkamann, en ekki alvar- lega. Hann fór af slysadeildinni í kringum miðnætti. Mennirnir tíu voru yfirheyrðir fram eftir degi í gær. Fljótlega kom í ljós að einungis tveir þeirra höfðu átt hlut að máli en hinir höfðu verið á öðrum stað í húsinu. Þeim var því sleppt hverjum á fætur öðrum. Svo virðist sem maðurinn hafi gengið úr klúbbnum og verið kom- inn á staðinn til að skila búnaði í eigu klúbbsins. Því næst hafi allir farið á efri hæð hússins, nema þol- andinn og árásarmennirnir tveir. Ekki liggur fyrir hvers vegna. Beittu skiptilykli og járnstöng Sjóvá-Almennar trygg- ingar hf. hafa í hyggju að óska eftir því að viðskiptavinir þeirra gefi upp punktastöðu vegna umferðar- lagabrota. Ragnheiður Agnarsdóttir hjá Tryggingamið- stöðinni segir að engin slík áform séu fyrirhuguð hjá þeim. „Við höfum ekki séð nein gögn sem sýna sterk tengsl milli punkta og tjóna,“ segir Ragnheiður. Hún segir fyrirtækið hins vegar alltaf skoða leiðir til að umbuna þeim sem standa sig vel. „Við veitum afslátt ef menn eru tjónlausir síðasta ár og þeir sem lenda í tjóni fá viðbótar- gjald ef þeir hafa nýtt sér sína tryggingu til að borga tjónið. Umb- unarkerfi er því ekkert nýtt.“ Erlendis er algengt að óska eftir upplýsingum um tjónasögu en það hefur ekki verið tekið hér upp. „Okkur myndi hugnast það betur heldur en að óska eftir punkta- stöðu. Þess má geta að tryggingafélag í eigu Tryggingamiðstöðvarinnar, Elísabet, gefur þeim sem eru punktalausir tólf mánuði í röð þrett- ánda mánuðinn frían. Punktastaðan er því bara skoðuð til umbunar, ekki refsingar.“ Vilja umbuna þeim sem standa sig vel Tæplega fertug kona hefur verið dæmd í fimm mánaða fangelsi fyrir margvís- leg afbrot. Það alvarlegasta var brot gegn valdstjórninni, en hún hrækti stórum hráka með miklu blóði í andlit lögregluþjóns í maí síðastliðnum. Lögregluþjónninn leitaði í kjölfarið í læknis og lét bólusetja sig gegn lifrarbólgu. Hún var einnig staðin að verki við að reyna að stela fatnaði og saumavél úr kjallaraíbúð sem hún hafði brotist inn í, og að reyna að stela skópari úr Lyfju. Þá var hún tvívegis tekin með fíkniefni. Konan á talsverðan sakaferil að baki, sem hófst árið 1988. Kona dæmd fyrir að hrækja á lögreglumann Í höfuðið á móður hvaða Bítils lét Jakob Frímann Magn- ússon skíra dóttur sína? Hver skoraði mjög umdeilt mark í leik Skagamanna og Keflvíkinga? Hversu margar vikur var Alan Johnston í haldi Hers íslams? 66 °N or ðu r/ jú ní 07 REYKJAVÍK: Kringlan Bankastræti 5 Faxafen 12 KÓPAVOGUR: Smáralind GARÐABÆR: Miðhraun 11 AKUREYRI: Glerárgata 32 www.66north.is Heimsþekktir, hágæða ítalskir gönguskór – líka fyrir Laugaveginn! Komdu og líttu á úrvalið í verslunum okkar í Faxafeni 12 og Glerárgötu 32, Akureyri.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.