Fréttablaðið - 06.07.2007, Blaðsíða 11
í öll mál
Matseðill
Morgunverðu
r
Engjaþyk
kni „frais
e des bois
“
með villt
um jarða
rberjum,
borið fra
m með m
orgunkor
ni
Engjaþyk
kni „cara
mel“
borið fra
m með st
ökku mor
gunkorni
Hádegisverður
Engjaþyk
kni „stra
cciatella“
vanilluk
ryddað m
eð súkkul
aðistjörn
um
Engjaþyk
kni „etoil
e“
með peru
m, karam
ellum og
súkkulað
istjörnum
Kvöldverður
Engjaþyk
kni „rom
ance“
með unað
sbragði o
g stökku
morgunk
orni
Engjaþyk
kni „á ch
ocolate“
vanillukr
yddað me
ð súkkula
ðikornkú
lum
Engjaþyk
kni „crèm
e de la cr
ème“
borið fra
m með hn
etu-, kara
mellu- og
kornkúlu
-mélange
Engjaþykkni
Nýtt bragð!
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
0
5
7
8
Fimm íslenskir stoðtækjanotendur
fengu í gær háþróaða hlaupafætur að
gjöf frá Össuri hf. til að auðvelda þeim að
hreyfa sig reglulega og njóta lífsins
betur. Lárus Gunnsteinsson hjá Össuri
segir að gríðarleg þróun hafi verið á
hlaupafótum síðustu árin. Efnið er úr kol-
trefjar með sérstakri lögun og valið fyrir
hvern og einn einstakling og hvað hann
hugsar sér að gera.
„Það má kannski geta þess að Trygg-
ingastofnun greiðir ekki hjálpartæki til
íþróttaiðkana,“ segir Lárus. „Fulltrúar
frá stofnuninni voru hér í dag og sýndu
þessu gríðarlegan áhuga. Það er ljóst að
hreyfing og þjálfun kemur í veg fyrir
aðra sjúkdóma. Aflimun einhvers háttar
eykur hættu á sykursýki og æðasjúkdóm-
um því hreyfing minnkar mjög í kjölfar-
ið. Þetta er gríðarleg skerðing á lífsgæð-
um, ég tala ekki um fyrir ungt fólk sem
er vant íþróttum.“
Guðmundur Ólafsson var einn af þeim
sem fengu hlaupafæturna og var hæst-
ánægður með þá. „Þetta er í fyrsta skipti
í tuttugu ár sem ég hleyp. Ég er búinn að
æfa mig í nokkra tíma og þetta gengur
frábærlega. Það er eins og ég hafi lent í
lukkupotti. Ég er aðstoðarþjálfari Fjölnis
í fótbolta og nú þýðir ekkert fyrir strák-
ana að kalla Gummi og hlaupa svo í burtu.
Ég get náð þeim núna,“ sagði hann í létt-
um dúr.
Hleypur í fyrsta skipti í tuttugu ár
„Það nötraði allt og skalf
hér í skálanum þegar þrumurnar
gengu yfir. Í kjölfarið kom mikil
rigning og haglél og það snjóaði í
fjöllin í kring,“ segir Kári
Þórisson, skálavörður í Básum í
Þórsmörk, en mikið þrumuveður
gekk yfir Suðurland í gær.
Kári segir að einhverjir hafi
orðið skelkaðir og að göngufólk
sem var í fjallgöngu þegar
þrumuveðrið gerði hafi sagt að
loftið hafi verið svo rafmagnað
að hár þeirra lyftist.
Trausti Jónsson veðurfræðing-
ur segir það ekkert einsdæmi að
þrumuveður geri á þessum
árstíma. Hann segir að hlýindin
undanfarið hafi vissulega áhrif
en aðrir þættir þurfi einnig að
koma til.
Hár göngufólks
svo rafmagnað
að það lyftist
Níu slökkviliðs- og
sjúkraflutningamenn frá Slökkvi-
liði höfuðborgarsvæðisins ætla að
hjóla yfir landið 7. til 18. júlí.
Tilgangurinn er að safna fé í
sjúkra- og líknarsjóð starfs-
mannafélags liðsins. Hópurinn
leggur af stað frá Fonti á
Langanesi á morgun og lýkur
ferðinni á Reykjanestá 18. júlí.
Sjúkra- og líknarsjóðurinn
styrkir slökkviliðs- og sjúkra-
flutningamenn sem verða fyrir
alvarlegum áföllum. Jón Viðar
Matthíasson slökkviliðsstjóri,
sem hjólar með, segist vona að
ferðin veki fólk til vitundar um
mikilvægi sjóðsins.
Safna í sjúkra-
sjóð á hjólum
Meirihluti
bæjarstjórnar Árborgar segir að
þar sem Selfossbær sé ekki
lengur til sem stjórnsýslueining
séu ekki ráðgerð sérstök
hátíðarhöld í tilefni 60 ára
afmælis Selfossbæjar.
Meirihlutinn hvetur hins vegar
leik- og grunnskóla á Selfossi til
þess að gera sögu Selfoss sem
bæjar sérstaklega skil á árinu og
leik- og grunnskóla á Eyrarbakka
og á Stokkseyri til að halda á
sama hátt til haga í starfi sínu
sögu sinna þorpa. „2008 verða tíu
ár liðin frá því að Sveitarfélagið
Árborg varð til og því telur
meirihluti bæjarstjórnar
mikilvægt að gera góð skil þegar
þar að kemur,“ segir meirihlut-
inn.
Fagnar ekki
afmæli Selfoss