Fréttablaðið - 06.07.2007, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 06.07.2007, Blaðsíða 18
fréttir og fróðleikur Umdeilt landsvæði umlukið ESB-löndum Þegar rússneska blaðakon- an Anna Politkovskaya var myrt í lyftunni á heimili sínu í Moskvu í október í fyrra var hún nýbúin að ljúka við bók: A Russian Diary – sem nýverið kom út í enskri þýðingu – þar sem dregin er upp afar dökk mynd af Rússlandi í forseta- tíð Vladimírs Pútín. Í bókinni segir Politkovskaya að Pútín hafi barið niður pólitíska andstöðu gegn sér áður en hann var endurkjörinn í forsetakosn- ingunum árið 2004 með rúmlega sjötíu prósent atkvæðanna. Hún nefnir dæmi; hvernig Ivan Rybkin, einn af þeim sem ætlaði að bjóða sig fram gegn Pútín, hætti skyndilega við það. Rybkin hvarf í nokkra daga skömmu fyrir forsetakosningarnar eftir að hafa gagnrýnt Pútín harðlega. Polit- kovskaya telur að Pútín hafi látið ræna Rybkin til að ógna honum og fá hann til að hætta við að bjóða sig fram. Niðurstaða Politkovskayu er að eftir forsetakosningarnar 2004 hafi ekki verið nein skil á milli rík- isvaldsins í Rússlandi og Pútíns: „Ríkið, það er Pútín,“ segir hún. Í bókinni segir Politkovskaya að grundvallarmannréttindi, eins og mál- og samviskufrelsi, séu fótum troðin í Rússlandi. Hún segir að fjölmiðlamenn í Rússlandi þurfi að stunda „sjálfsritskoðun“, sem þýðir að segja ekkert sem komi sér illa fyrir stjórnvöld því annars gætu þeir lent í vandræðum: stjórnvöld í Rússlandi lokuðu 23 ritstjórnarskrifstofum í landinu árið 2005. Jón Ólafsson heimspekingur, sem hefur búið í Rússlandi, segir að í Rússlandi sé ekkert sem kalla megi frjálsa fjölmiðlun. „Í raun- inni er það bara mjög hugrakkt fólk sem er tilbúið að hætta lífi sínu sem getur sagt eitthvað annað en ætlast er til að það segi. Það var sennilega bara tímaspursmál hve- nær Politkovskayu yrði rutt úr vegi,“ segir Jón. En barátta stjórnvalda gegn mál- frelsi fjölmiðlamanna kann að eiga sér enn skelfilegri birtingar- mynd því í nýlegri skýrslu alþjóð- legra samtaka um starfsöryggi blaðamanna segir að frá 1996 hafi 88 blaðamenn verið drepnir í Rússlandi – aðeins í Írak hafa fleiri blaðamenn verið drepnir á tímabilinu, eða 138. Hvort stjórnvöld standi jafnvel á bak við einhver af þessum morð- um á blaðamönnum í landinu er hins vegar erfitt að segja því í langflestum tilfellum finnast morðingjarnir ekki. Hvort það er vegna þess vegna að stjórnvöld reyni ekki að finna þá er einnig óvíst en Politkovskaya segir frá því að stjórnvöld einfaldlega sleppi því að rannsaka mál ef það hentar þeim – þetta kann að eiga við um morðingja blaðakonunnar sem enn hefur ekki fundist. Á vef breska blaðsins The Guardian er hins vegar minnst á að Ramzan Kadyrov, forseti Tsjetsjeníu og bandamaður Pútíns, hafi hugsan- lega látið drepa blaðakonuna vegna skrifa hennar um stríðið í Tsjetsjeníu. Jón Ólafsson segir að það sé mjög erfitt að segja til um hverjir standi á bak við morðin á blaðamönn- um í Rúss- landi en að í flestum til- fellum sé um leigu- morð að ræða. Hann segir einnig að hópar tengdir rúss- neska her- num séu stundum nefndir til sög- unnar. Jón segir hins vegar að ekki megi gleyma því að það sé einnig mikill ofbeldiskúltúr í landinu – Politkovskaya segir nöturlegar sögur af morðum óbreyttra borg- ara á innflytjendum í bókinni – og að þess vegna sé einnig mögulegt að menn einfaldlega ákveði að láta drepa blaðamenn ef umfjöllun þeirra kemur sér illa fyrir þá. Um orð Politkovskayu, um að stjórnvöld í Rússlandi rannsaki ekki mál sem geta komið sér illa fyrir þau, segir Jón að dómskerfið í Rússlandi sé ósjálfstætt: sé ekki óháð stjórnvöldum á nokkurn hátt. Hann telur að eingöngu í stöku til- fellum fari málssmeðferð fram með eðlilegum hætti því yfirleitt stjórni einhver hagsmunaaðili niðurstöðu málsins; yfirleitt ríkið. „Það vantar mjög mikið upp á það að til sé eitthvað sem hægt er að kalla réttarríki í Rússlandi,“ segir Jón. Í ritdómi um bók Politkovskayu í enska blaðinu The Spectator í apríl sagði Anna Applebaum að henni þætti ekki skrítið að Polit- kovskaya hefði verið drepin miðað við hvernig hún talaði um ástandið í Rússlandi. Politkovskaya sagðist vera hrædd um framtíð Rússlands því svo mörgu væri ábótavant í land- inu. Í bókinni nefnir hún meðal annars hina miklu fólksfækkun í landinu – samkvæmt spám mun íbúafjöldi í Rússlandi hafa lækkað úr 145 milljónum árið 2002 niður í 139 milljónir árið 2016 – sem hún segir að stjórnvöld beri meðal annars ábyrgð á vegna þess að stór hluti landsmanna búi við fátækt og fái ekki þá heilbrigðis- þjónustu sem hann þurfi. „Það eina sem stjórnvöld hafa áhuga á er að græða peninga,“ segir blaða- konan í lok þessarar síðustu bókar sinnar, en morðið á henni hefur vakið gríðarlega hörð viðbrögð á Vesturlöndum og beint kastljósinu að þeirri ólýðræðislegu þróun í Rússlandi sem hún gagnrýndi svo harkalega í skrifum sínum og ráðamenn í mörgum lýðræðisríkj- um eru uggandi yfir. Heimildir: Anna Politkovskaya. A Russian Diary, www.newssafety. com, The Economist Intelligence Unit, og vefsíður The Glasnost Defence Foundation (www.gdf.ru), The Guardian og The Spectator. Dökk mynd af Rússlandi Myndi kaupa íslenskt viskí – Vel lesið Vertu inní Fréttablaðinu með þitt kynningarefni Áhugasamir auglýsendur vinsamlegast hafið samband í síma 5505844 | orn.geirsson@365.is Einblöðungar - bæklingar - blöð - umslög Vertu inní Fréttablaðinu með þitt kynningarefni Notaðu mest lesna* blað landsins til að dreifa kynningarefni til þinna viðskiptavina *Gallup maí 2006
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.