Fréttablaðið - 06.07.2007, Síða 10
Herskár múslimaklerkur, sem pakist-
anskar öryggissveitir tóku höndum er hann reyndi að
flýja dulbúinn í kvennakufl, sagði í gær að hinir
nærri því þúsund fylgismenn sínir, sem enn væru í
Rauðu moskunni í Íslamabad sem stjórnarherinn
hefur nú setið um í tvo daga, ættu að gefast upp eða
flýja.
Þessi ummæli klerksins, Maulana Abdul Aziz, jók
vonir um að takast mætti að binda enda á umsátrið án
þess að til blóðbaðs kæmi. En bróðir Aziz var enn inni
í moskunni og hann sagðist ekki sjá neina ástæðu til
uppgjafar.
Byssuskothríð og sprengingar heyrðust með reglu-
legu millibili í kringum moskuna, sem ýmist er köll-
uð Rauða moskan eða Lal Masjid, í gær. Að sögn
forsvarsmanna umsátursins voru allt að 100 þung-
vopnaðir bardagamenn meðal fólksins inni í mosk-
unni, sem flest er annars námsmenn af báðum kynj-
um úr kóranskóla sem tengist moskunni.
Frá því áhlaupið hófst að moskunni á miðvikudag
hafa minnst sextán manns fallið, þar af átta bardaga-
menn íslamista. Umsátrið er liður í uppgjöri ríkis-
stjórnar Pervez Musharrafs hershöfðingja við Aziz
og fylgismenn hans. Aziz hefur barizt fyrir því að
sjaríalög íslams yrðu tekin upp í Pakistan, rétt eins
og talibanar gerðu í Afganistan.
Síðan í janúar hafa klerkarnir staðið uppi í hárinu á
yfirvöldum með því að senda nema sína til að fylla
sæti bókasafns í borginni, þjarma að verslunarrek-
endum sem seja vestrænar bækur og kvikmyndir, og
með því að ræna meintum vændiskonum og lögreglu-
mönnum. Allt er þetta gert í nafni „siðaherferðar“ í
anda talibana.
Að sögn talsmanna yfirvalda eiga Aziz og bróðir
hans, Abdul Rashid Ghazi, yfir höfði sér ákærur í
mörgum liðum, þar á meðal fyrir mannrán, að hvetja
til manndrápa, brot á vopnalögum og fleira. Konur,
börn og aðrir fylgismenn þeirra, sem ekki hefðu
gerst sekir um glæpi, yrði sleppt án ákæru.
Uppgjör við öfga-
klerka í Pakistan
Pakistanskir her- og lögreglumenn sitja nú um stóra mosku í höfuðborginni
Islamabad. Sextán manns hafa fallið í átökum við hana síðustu tvo daga. Um-
sátrið er liður í uppgjöri stjórnvalda við herskáa hreyfingu bókstafstrúarmanna.
Rúmlega tvítugur
maður hefur verið dæmdur í 45
daga skilorðsbundið fangelsi
fyrir að sparka í höfuð jafn-
aldra síns á Þjóðhátíð í Eyjum
árið 2005, með þeim afleiðing-
um að fórnarlambið missti
meðvitund í dágóða stund, fékk
krampa, heilahristing og mar í
hársvörð.
Maðurinn játaði sök en
sagðist ekki hafa sparkað fast.
Vitni sögðu það ekki rétt. Það
var metið manninum til refsi-
lækkunar hversu mjög málið
dróst. Ákæra var ekki gefin út
fyrr en í mars á þessu ári, ári
eftir að skýrslutökum lauk og
hálfu ári eftir að rannsókn lauk.
Segir í dómnum að tafirnar séu
óútskýrðar.
Óútskýrðar tafir
milduðu dóm
„Þetta var lítið í þetta
skiptið, um 33 hvalir,“ segir Bald-
vin Þór Harðarson, Vestmannaey-
ingur sem er búsettur í Þórshöfn í
Færeyjum. Baldvin var þátttak-
andi þegar 33 grindhvalir voru
reknir í land og drepnir á þriðju-
daginn.
„Þetta gengur þannig fyrir sig
að sá sem verður var við grindina
lætur aðra vita. Menn flykkjast þá
út og hjálpast að við að reka vöð-
una að landi,“ segir Baldvin.
Að drápunum loknum er kjötinu
skipt. Stofnanir eins og sjúkrahús
fá sinn skerf. Sá sem fann vöðuna
fær einn hval. Lögreglan sér um
að halda utan um skiptin og að allt
fari fram með ró og spekt og fær
að launum einn hval. Þeir sem
taka þátt í drápunum fá 50 kíló af
kjöti og 25 af spiki.
Þegar um stærri vöður er að
ræða fá þeir sem taka ekki beinan
þátt í athöfninni kjöt og spik þegar
hinum hefur verið úthlutað.
„Í fyrra kom stór vaða í
Klakksvík. Hún var það stór að
kjötinu og spikinu var dreift til
fólks á þremur eyjum. Það er
aldrei talað um peninga í sam-
bandi við þetta. Fólk bara fær sinn
skerf þegar nóg er af hval,“ segir
Baldvin.
33 hvalir drepnir
Mannræningjar höfðu
í gær þriggja ára gamla breska
stúlku á brott með sér úr bifreið
í Port Harcourt í sunnanverðri
Nígeríu, þar sem olíuiðnaður er
mikill og lögleysa hefur verið
viðvarandi.
Árásarmennirnir brutu rúðu á
bílnum þar sem hann beið í
umferðarteppu, að því er fulltrúi
úr breska sendiráðinu greindi
frá. Breska utanríkisráðuneytið
gaf út yfirlýsingu þar sem þess
var krafist að stúlkan yrði
tafarlaust látin laus, heil á húfi.
Mannrán á útlendingum eru
algeng í kring um nígeríska
olíuiðnaðinn, en barnsrán þó
fátíð.
Bresku stúlku-
barni rænt
Guðmund-
ur G. Gunnarsson, odd-
viti sjálfstæðismanna í
bæjarstjórn Álftaness,
segir nýlegan dóm Hér-
aðsdóms Reykjaness, um
að rétt hafi verið af
Álftanesbæ að synja lóð-
areiganda um byggingar-
leyfi á lóðinni, út í hött
og að honum hljóti að
verða áfrýjað.
Dómurinn komst að þeirri
niðurstöðu að deiliskipulag sem
byggt hefur verið eftir frá 1980
hefði aldrei verið í fullu gildi. Því
þyrfti að fara eftir aðalskipulagi
og að fyrirhugað hús á umræddri
lóð uppfyllti ekki skil-
yrði þess. Guðmundur
segir að samkvæmt
dómnum séu þá öll hús í
nágrenninu ólögleg, þar
með talið hús Kristjáns
Sveinbjörnssonar, for-
seta bæjarstjórnar og
bæjarfulltrúa Á-listans.
„Forseti bæjarstjórn-
ar hefur misbeitt valdi
sínu og komið þessu
máli í aldeilis ótrúlegan farveg,“
segir Guðmundur. „Það hefur
ekkert verið uppi á borðum að
ekki yrði byggt á þessari lóð fyrr
en [nú],“ segir hann.
Þá segir Guðmundur vinnu-
brögð Á-listans með miklum
endemum. Þeir hafi tekið hönd-
um saman um að gera nýtt deili-
skipulag fyrir svæðið, og í því
deiliskipulagi eigi að strika
umrædda lóð, Miðskóga 8, og aðra
til út af skipulaginu, auk þess að
leggja göngustíga um nokkrar
einkalóðir. Hann vonar að Henrik
Thorarensen, eigandi lóðarinnar,
áfrýi til Hæstaréttar, þótt það sé
álitamál hvort eðlilegt sé „að hann
einn standi í þessari vitleysu“.
Segir héraðsdóm í lóðamáli út í hött
Forsætisráðherra
Ástralíu, John Howard, þvertók í
gær fyrir að olíuhagsmunir hefðu
nokkuð með innrásina í Írak að
gera. Brendan Nelson varnar-
málaráðherra hafði stuttu áður
sagt að helsti
tilgangur veru
ástralskra
hermanna í
Írak væri að
verja olíulindir
landsins.
„Írak er
mikilvæg
uppspretta
orku, sérstak-
lega olíu, fyrir umheiminn og
Ástralar þurfa að hugsa um hvað
brottför frá Írak hefði í för með
sér,“ sagði Nelson.
„Ástæða þess að við erum
ennþá í Írak er að við viljum gefa
Írökum tækifæri til að njóta
lýðræðisins,“ sagði Howard til
leiðréttingar. Um 1.600 ástralskir
hermenn eru enn í Írak.
Sagði olíu vera
ástæðu hersetu
ÓMISSANDI
Á SS PYLSUNA