Fréttablaðið - 06.07.2007, Side 12
„Ég veiddi einu sinni
tvo laxa með heykvísl í einni af
þverám Jöklu. Áin heitir Laxá svo
það er ekkert nýtt að veiða lax á
þessu vatnasvæði,“ segir Aðal-
steinn Aðalsteinsson, bóndi á Vað-
brekku í Hrafnskelsdal og for-
maður Veiðifélags Jökulsár á Dal.
Gerður hefur verið langtíma leigu-
samningur við Veiðiþjónustuna
Strengi um uppbyggingu vatna-
svæðisins. Byrjað er að veiða á
stöng í tilraunaskyni og göngu-
seiðasleppingar hafnar.
Eftir að Jökulsá á Dal var stífluð
við Kárahnjúka hefur þetta mikla
jökulfljót breyst í fallega berg-
vatnsá. Aðalsteinn segir með ólík-
indum hvað áin er tær og miklir
möguleikar geti falist í því að
rækta upp laxastofn í ánni. „Áin er
rúmlega 120 kílómetra löng og frá
sjónarhóli stangveiðimannsins er
um paradís að ræða. Það hefur
veiðst lax og silungur í þveránum
en við höfum ekki hugmynd um
hversu mikinn lax Jökla hefur að
geyma. Það má því segja að þetta
sé tilraunastarfsemi en áin er svo
falleg að við teljum ekki annað for-
svaranlegt en að reyna að rækta
hana upp.“
Gerður hefur verið samningur
milli Veiðiþjónustunnar Strengja
og Veiðifélags Jökulsár á Dal og
annarra deilda sem hafa með þver-
árnar Hrafnkeilu, Kaldá og Laxá
að gera. Hafnar eru sleppingar
með seiðum af stofni Breiðdalsár
og með leyfi Veiðimálastjóra sett í
sleppitjarnir á nokkrum stöðum á
Jöklusvæðinu. Um 40 þúsund seið-
um verður sleppt í sumar, en sam-
kvæmt samningum verður sá
fjöldi tvö til þrjú hundruð þúsund
seiði á ári í framtíðinni, ef vel tekst
til með klakfisköflun.
Þegar vatnsrennsli í Hálslón
eykst yfir sumarið má búast við
að gruggugt yfirfallsvatn úr lón-
inu renni í ána og liti hana. Þröst-
ur Elliðason, framkvæmdastjóri
Veiðiþjónustunnar Strengja, segir
að það ætti ekki að skipta neinu
máli og tækifærin á vatnasvæð-
inu því mikil. „Þverárnar sem
renna í Jöklu eru allar á stærð við
góðar laxveiðiár sem þekktar eru
hér á landi. Þær eru mjög falleg-
ar og Jökla hefur að geyma veiði-
staði af öllum stærðum og gerð-
um.“ Þröstur segir jafnframt að
ekki þurfi að óttast vatnsleysi á
svæðinu eins og víða stendur
veiði fyrir þrifum.
Þröstur hefur ekki staðist
freistinguna og kastað flugu á
nokkra staði í Jöklu sem líklegir
eru til að verða gjöfulir í framtíð-
inni. „Þetta er vatnsfall á stærð
við Laxá í Aðaldal myndi ég giska
á og getur geymt marga laxa, og
stóra.
„Eins og segir í
auglýsingunni víkjum við frá
þessum skilyrðum ef ástæður
þykja til og nú þegar höfum við
tekið við umsóknum frá fólki sem
er eldra en 35 ára,“ segir Hörður
Davíð Harðarson, aðaldeildarstjóri
tolleftirlitsdeildar Tollstjórans í
Reykjavík, en margir urðu
undrandi þegar Tollstjórinn
auglýsti eftir tollvörðum og sett
var sú krafa að umsækjendur
væru á aldrinum 20 til 35 ára.
Hörður segir aldursviðmiðið
vegna þess að umsækjendur þurfi
að standast þrekpróf og stunda
tveggja ára nám í Tollskóla
ríkisins.
Mega vera
eldri en 35 ára
Lögreglan í Jemen
hefur handtekið níu menn sem
grunaðir eru um aðild að sjálfs-
morðsárás á mánudagskvöld þar
sem sjö Spánverjar og tveir
Jemenar létust. Mennirnir, sem
eru allir frá Jemen, voru yfir-
heyrðir í gær. Talið er að al-Kaída
hafi staðið á bak við árásina.
Bíll hlaðinn sprengiefni keyrði
á tvo jeppa sem í voru þrettán
spænskir ferðamenn. Hinir sex
Spánverjarnir særðust í árásinni
en aðeins einn þeirra alvarlega.
Lík spænsku ferðamannanna
voru flutt til Spánar með herflug-
vél á miðvikudag auk þeirra sem
særðust.
Níu handteknir
vegna árásar
Ég veiddi einu sinni tvo
laxa með heykvísl í einni
af þverám Jöklu. Áin heitir Laxá
svo það er ekkert nýtt að veiða
lax á þessu vatnasvæði.
Jökla breytist í veiðiparadís
Jökulsá á Dal hefur breyst í fallega bergvatnsá. Gerður hefur verið samningur til tíu ára um ræktun árinn-
ar. Stangveiði er hafin í tilraunaskyni og 40 þúsund laxaseiðum af stofni Breiðdalsár verður sleppt.
Nýttu þér dýrmæta þekkingu og reynslu íslenskra garðyrkjubænda.
VELDU ÍSLENSKAR TRJÁPLÖNTUR, SÉRMERKTAR ÞÉR.
Björn Sigurbjörnsson, garðyrkjumaður.
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
S
G
B
3
81
65
0
7/
06
„Íslenskar trjáplöntur
eru aðlagaðar okkar veðráttu.“
„Ég keppti fyrst á
Landsmótinu í Hveragerði árið
1949,“ segir Ármann J. Lárusson
afreksmaður í íþróttum sem
hefur keppt á öllum Landsmótum
Ungmennafélags Íslands frá 1949
í Hveragerði þar sem hann keppti
í glímu, kúluvarpi og kringlu-
kasti.
Sem fyrr tekur Ármann þátt í
Landsmótinu sem hófst í Kópa-
vogi í gær. „Ég keppi í bridds í
þetta skiptið,“ segir Ármann sem
tekur þátt í nítjánda sinn. „Á
meðan ég var ungur þá keppti ég
í glímu og frjálsum. Í dag er
maður orðinn 75 ára gamall. Þá
hentar bridds mjög vel,“ segir
hann.
Ármann hefur ekki eingöngu
keppt á Landsmótum. Hann var
einn allra besti glímukappi
Íslands á sínum tíma. Meðal ann-
ars sigraði hann Íslandsglímuna
fjórtán ár í röð frá 1954 til 1967
þegar hann lagði glímuskóna á
hilluna.
„Eftirminnilegasta Landsmótið
er líklega á Sauðárkróki 1971. Þá
tók ég þátt í glímu og hafði ekki
glímt í þrjú ár. Ég sagði konunni
ekkert frá því að ég ætlaði að
keppa. Þegar hún sá mig í glímu-
gallanum leist henni ekki á blik-
una og hljóp upp á fjall. Ég sá
hana ekkert fyrr en keppnin var
búin,“ segir Ármann og hlær. Það
þarf varla að taka fram að hann
vann glímukeppnina.
Gistinóttum á hótelum
fyrstu fimm mánuði ársins
fjölgaði um 17 prósent frá því í
fyrra. Aukning varð í öllum
landshlutum en mest á Austur-
landi. Þar fjölgaði gistinóttum um
rúmt 41 prósent milli ára.
Gistinóttum í maí fjölgaði um
14 prósent og var aukningin í
öllum landshlutum nema á
Austurlandi. Þar stóð fjöldinn í
stað.
Bæði má rekja fjölgun
gistinátta á hótelum til Íslendinga
og útlendinga en íslenskum
hótelgestum fjölgaði um 24
prósent milli ára.
Hótelgestir
fjórðungi fleiri
Björgunarsveitarmenn
fundu í gær fjórtán látna í rútu
sem varð undir aurskriðu í
fyrradag. Lítil von þykir til þess
að nokkur af þeim fjörutíu til
sextíu farþegum rútunnar hafi
komist lífs af úr slysinu-.
Hundruð hermanna og björgun-
arsveitarmanna hafa grafið á
vettvangi frá því slysið varð.
Talið er að miklar rigningar að
undanförnu hafa valdið skriðunni.
14 fundust látnir
eftir aurskriðu
„Þetta er bara grillveisla,“
segir Jón Þór Sigurðsson, starfs-
maður Valaskjálfs, skemmtistað-
ar á Egilsstöðum. Á bls. 18 í Dag-
skránni á Austurlandi auglýsir
Valaskjálf „Kjötkvöld – Konur í
stuttum pilsum fá frítt inn og skot
á barnum í boði hússins. Rokk og
ról“ sem fram fer í kvöld.
Að sögn Jóns Þórs hefur Vala-
skjálf ekki boðið upp á þetta áður.
„Þetta er engin sérstök regla, bara
svona til að reyna að trekkja fólk
að, unga fólkið,“ segir Jón Þór.
„Ég er ekki að segja að þetta sé
besta leiðin, en það er allt í lagi að
prófa þetta. Mér finnst þetta ekk-
ert niðrandi.“
Valaskjálf hefur fengið kvart-
anir vegna „Kjötkvöldsins“ frá
íbúum Héraðs. „Mér er sagt að
fólk hafi misjafnar skoðanir á
þessu,“ segir Jón Þór. „Við feng-
um tiltal frá sóknarpresti og fólki
á Fáskrúðsfirði. Við auglýsum
þetta ekki einu sinni á Fáskrúðs-
firði svo að ég veit ekki hvaðan
þetta er komið.“
Jón Þór samdi texta auglýsing-
arinnar við annan mann. „Þetta er
náttúrlega kjánalega uppsett svo
að það er ekkert mál að snúa út úr
þessu,“ segir Jón.
„Við mundum aldrei hafa neitt
kynjamisrétti eða eitthvað sem
mundi ganga gegn jafnrétti kynj-
anna,“ segir Jón Þór. „Ef við
hleyptum karlmönnum í skotapils-
um inn frítt yrði ekkert sagt. Ekki
neitt.“
Fáklæddar fá frítt inn og skot