Fréttablaðið - 06.07.2007, Page 13
Mjúkar, harðar,
þrýstnar og
dásamlega
góðar!
SKRIFSTOFUVÖRUR
Verslun Odda • Borgartúni 29 • Sími 515 5170 • Opið virka daga 8-18 og lau. 11-14
Verslun Odda • Höfðabakka 3 • Sími 515 5105 • Opið virka daga 8-18
Verslun Odda • Glerárgötu 34 • Sími 515 5160 • Opið virka daga 8-18
Netverslun www.oddi.is
Pantanasími 515 5100
sala@oddi.is
15% afsláttur
af öllum Samsonite töskum
Tilboðið gildir til 10. júlí 2007
O
dd
i h
ön
nu
n
P
07
.0
6.
18
0
Ríkissaksóknari í
Rússlandi hefur neitað því að
framselja viðskiptajöfurinn Andrei
Lugovoi, sem bresk yfirvöld gruna
um að hafa eitrað fyrir fyrrverandi
KGB-njósnaran-
um Alexander
Litvinenko.
Neitun
ríkissaksóknara
er byggð á banni
í stjórnarskrá
Rússlands við
framsali
ríkisborgara til
erlendra ríkja.
Þetta hefur
einnig Vladimir
Pútin Rússlandsforseti sagt
opinberlega.
Litvinenko lést á sjúkrahúsi í
London í nóvember 2006 eftir
pólóníum-eitrun. Bresk sakarann-
sókn leiddi til þess að grunur féll á
Lugovoi, sem starfaði með
Litvinenko í KGB á sínum tíma.
Lugovoi verður
ekki framseldur
Neðanjarðarlest fór
af sporinu á háannatíma í
austurhluta London í gær. 37
farþegar slösuðust og voru 11
þeirra fluttir á sjúkrahús.
Flytja þurfti um 900 farþega
burt eftir að lestin fór af
sporinu, en önnur lest festist
fyrir aftan hana í göngunum.
Lögregla rannsakar hvað olli
slysinu. Lestarstjórinn segist
hafa séð eitthvað hvítt á
teinunum, mögulega einhvers
konar lak, áður en það lenti á
lestinni. Hann hemlaði umsvifa-
laust og fóru tveir fremstu
vagnar lestarinnar út af
sporinu.
Neðanjarðar-
lest fór af spori
Fyrsti áfangi
samstarfssamnings milli
utanríkisráðuneytisins og
Veðurstofu Íslands um samstarf
Íslands og Indlands á sviði
jarðskjálftarannsókna var
undirritaður í gær.
Fyrsti áfanginn mun taka hálft
ár og á þeim tíma munu tveir
indverskir vísindamenn heim-
sækja Ísland til að kynna sér
tækni á Íslandi á sviði jarð-
skjálftamælinga og eftirlits.
Tveir íslenskir vísindamenn
munu jafnframt heimsækja
Indland til að leggja grunninn að
samstarfinu.
Samningurinn var undirritaður
af Ingibjörgu Sólrúnu Gísladótt-
ur utanríkisráðherra og Magnúsi
Jónssyni veðurstofustjóra.
Samstarf um
rannsóknir