Fréttablaðið - 06.07.2007, Side 30
BLS. 2 | sirkus | 6. JÚLÍ 2007
Spennt að heyra frá
þeim „Þeir eru allir
mjög myndarlegir og
flottir í þessum jakka-
fötum og ég hlakka
til að heyra þá syngja.
Þeir líta vel út og
virðast vera nógu
gamlir til að höndla álagið. Þetta eru
óþekkt andlit en ég er spennt að heyra
í þeim.“
Jóna Kristín Heimisdóttir,
ungfrú Reykjavík 2006
Sigursveinn er sætastur „Mér líst
ágætlega á þá og það eru
nokkrir þarna á milli sem vel
er hægt að horfa á. Þetta
lítur út fyrir að vera svona
El Divo dæmi og ég er for-
vitin að vita hvað kemur út
úr þessu. Sigursveinn er
hiklaust sætastur og það
er alveg hægt að horfa á
Arnar líka. Það verður
spennandi að fylgjast
með hvað Einar Bárðar
ætlar sér með þá, von-
andi fer hann ekki út í West Life
eða eitthvað svoleiðis.“
Guðný Pála Rögnvaldsdóttir
söngkona
Minna á El Divo „Þetta eru
huggulegustu menn og
minna á grúppuna El Divo.
Það er samt lítið að marka
eina mynd og ég er spennt
að heyra í þeim, heyra hvort
þeir geta sungið. Að mínu
mati bera Arnar og Svenni af á
þessari mynd. Það er spes
sjarmi yfir Arnari, hann er
svona latínó gaur en Svenni
er líkari Brad Pitt, hann er
svona metró. Hinir eru líka
huggulegir, meira nice gæjar.“
Guðbjörg Hermannsdóttir,
fyrrum fegurðardrottning
Skiptir mestu að þeir geti
sungið „Þetta eru ekki mínar
týpur en þeir eru fínir í þess-
um jakkafötum. Ég vona
að þeir geti sungið, það
skiptir mestu máli. Það
er svo hallærislegt
þegar verið er að hóa
saman svaka gæjum
eða píum og
breyta svo rödd-
unum í hljóðveri. Þeir líta út eins
og óperuband en ég er spennt að
heyra í þeim.“
Þórdís Brynjólfsdóttir
handboltakona
Minna á karlakór „Mér líst
nokkuð vel á þá miðað við að
hafa aldrei heyrt í þeim. Þeir
mættu samt vera meiri töffarar,
þeir minna mig svolítið
á karlakór. Svenni er
klárlega sætastur,
enda er hann að
norðan. Ég hlakka
mikið til að
heyra í þeim og
sjá hver útkom-
an verður.“
Selma Ósk Hös-
kuldsdóttir, fyrr-
um Ungfrú Norður-
land
Heyrst hefur
S verrir Þór Sverrisson, betur þekktur sem Sveppi úr Strákunum, hefur keypt einbýl-
ishús að Heiðargerði 106 í Reykjavík. Síðustu
ár hefur Sveppi búið með fjölskyldu sinni, konu
og tveimur börnum, í fjölbýlishúsi að Gvendar-
geisla 10 í Grafarholti. Nú ætlar fjölskyldan
hins vegar að breyta til og koma sér fyrir í litlu
sætu einbýlishúsi – húsi sem minnir einna
helst á vistarverur Kalla á þakinu eða annarra
persóna úr ævintýrum Astridar Lindgren.
Húsið að Heiðargerði er 147 fermetrar, gult og
með rauðu þaki. Fyrir framan húsið er brunahani í
sömu litum. Sveppi og frú reiddu fram 43 milljónir
fyrir litla sæta húsið en það á ábyggilega eftir að
fara vel um fjölskylduna þar þótt smá bið verði
eftir að hún flytji inn. Sveppi vildi ekkert tjá sig um
húsakaupin þegar blaðamaður Sirkuss náði
tali af honum. Í helgarútgáfu Rásar 2 um
helgina sagði hann hins vegar að fjölskyld-
an fengi ekki húsið fyrr en um miðjan ágúst.
Þangað til verður Sveppi og fjölskylda að
búa inni á tengdamóður hans.
Þegar Sveppi flytur inn í
Heiðargerði er hann kom-
inn nær æskufélaga sínum,
Eiði Smára Guðjohnsen
knattspyrnukappa, sem
býr í gullfallegu húsi
við Haðarland 20 í
Fossvoginum.
Sveppi kaupir sér einbýlishús
HEIÐARGERÐI
Fjölskyldan
flytur úr
Grafarholtinu
í smáíbúða-
hverfið.
MYND/VILHELM
A N T I - A G E P E R F E C T I N G F L U I D
BERST DAGLEGA GEGN
FYRSTU LÍNUNUM
STÖÐVAR Í 99% TILFELLA ÁHRIF ÁREITA Á HÚÐINA*
LÍNUR ERU MINNA ÁBERANDI ........................ 63%**
HÚÐIN ER UNGLEGRI .................................... 70%**
HÚÐIN ER ORKUMEIRI ................................... 92%
*Prófanir ex vivo.
**Notendapróf. 120 karlmenn notuðu vöruna í 4 vikur. Sjálfsmat.
Heimir Bjarni Ingimarsson 27
ára Akureyringur og bróðir Sigga
kapteins úr X-factor. Heimir fékk
sína fyrstu skólun í tónlist hjá sjálf-
um Ingimar heitnum Eydal og hefur
síðan verið syngjandi í kórum,
hljómsveitum, sönghópum og sem
einsöngvari. Hann kláraði fram-
haldsstig í klassískum söng og fór
svo í 6 mánaða nám í pop, rock og
jazz í The London Music School.
Núna er hann í söngkennaranámi í
Complete vocal technique.
Edgar Smári Atlason 25 ára úr
Reykjavík. Edgar byrjaði að syngja
2ja ára og hefur ekki hætt síðan.
Hann hefur sungið með Gospelkór
Reykjavíkur í 7 ár og hefur sungið á
fjölda tónleika á þeirra vegum.
Edgar hefur hefur lokið 2.-3. stigi í
tónlist en skóli lífsins segir hann þó
hafi kennt sér einna mest.
Sigursveinn Þór Árnason Hinn
Akureyringurinn í Luxor er kærasti
söngkonunnar Regínu Óskar. Svenni
er 24 ára og tók þátt í prufunum í
þeirri von að komast í hóp góðra
söngvara og fá tækifæri til að vinna
að plötu. „Ég hef mjög góða tilfinn-
ingu fyrir þessu. Þetta er sterkur
hópur og það sem af er höfum við
haft mjög gaman og ég held að þetta
sé spennandi tækifæri.“
Rúnar Kristinn Rúnarsson Tvítugur
og yngstur í hópnum. Hann er frá
Vestmannaeyjum og hefur átt sér
þann draum að sinna tónlist sem
aðalstarfi. „Þetta eru skemmtilegir
strákar og ég held að okkur eigi alls
ekki eftir að leiðast. Mig langar líka
að geta unnið við að flytja tónlist.
Það er ekki sjálfsagt á Íslandi en væri
ákaflega gaman og þess vegna stökk
ég á þetta tækifæri.“
Arnar Jónsson 22 ára, fæddur og
uppalinn í Árbænum. Arnar hefur
aldrei lært söng en ákvað að slá til og
mæta í prufurnar. „Draumurinn er
að gerast söngvari. Vera partur af
þessum hópi, sem samanstendur af
skemmtilegum og góðum söngvur-
um, sem leggja allt í þetta. Ég var í
kór í Árbæjarskóla þegar ég var
ungur og tók seinna þátt í söngva-
keppnum en þetta er sannarlega
stærsta tækifærið til þessa.“
NÝ STRÁKAHLJÓMSVEIT, LUXOR, HEFUR LITIÐ DAGSINS LJÓS EN UM HUGARFÓSTUR
EINARS BÁRÐARSONAR ER AÐ RÆÐA. SIRKUS ATHUGAÐI HVERNIG FJÓRUM ÍSLENSK-
UM KONUM LEIST Á KAPPANA.
Durex-maðurinn
Húðflúrin sem fólk fær sér í dag eru af
öllum stærðum og gerðum. Þannig var
ungur piltur, sem blaðamaður Sirkuss
rakst á fyrir tilviljun á Shell-bensínstöðinni
í Öskjuhlíð, með merki Durex-smokka-
framleiðandans húðflúrað aftan á
hálsinum. Pilturinn sagðist hafa fengið
sér húðflúrið sér til gamans. Þegar
blaðamaðurinn óskaði eftir viðtali við
hann og bað um símanúmer stóð ekki á
svari piltsins. Hann nefndi tvo fyrstu
tölustafina í símanúmerinu „…og svo
slærðu bara inn Durex.“
Hræringar í
veitingahúsabransanum
Töluverðar hræringar hafa verið í
veitingahúsabransanum síðustu vikur.
Fyrirtækið 101-heild hefur selt Kaffi
Viktor en keypti þess í stað Kaffi-
brennsluna, sem mun opna að nýju í
dag. Tómas Kristjánsson og félagar í
101-heild eru með puttana víða í
veitingahúsabransanum en meðal
veitingastaða sem fyrirtækið rekur má
nefna Thorvaldsen, Silfrið, Sjávar-
réttakjallarann og Sólon. Þá hefur
Kaffi Kósý hætt rekstri en staðurinn var
lengst af vinsæll samkomustaður
samkynhneigðra.
TÖFFARAR Í STRÁKABANDI
HVAÐ FINNST STELPUNUM?
LUXOR Frá vinstri: Arnar, Edgar, Rúnar, Heimir og Sigursveinn.