Fréttablaðið - 06.07.2007, Qupperneq 49
Daglega dynja í frétta-tímum ljósvakamiðl-
anna jafnvel margar fréttir
í röð um orku- og álmál, t.d.
fjórar af fyrstu fréttunum
í kvöldfréttatíma útvarps
4. júlí: Tugir rafvirkja rétt-
indalausir á Reyðarfirði,
– Alcan, Norsk Hydro og
netþjónabú keppa um álverslóðir
á Keilisnesi og við Þorlákshöfn –
nýjar sviptingar og átök um Hita-
veitu Suðurnesja, – njósnir Alcan
um Hafnfirðinga. Hafi fólk haldið
að Samfylkingin með Fagra Ísland
hægði eitthvað á stóriðjuhraðlest-
inni sýnir stanslaus fréttastraum-
ur af þeim vettvangi annað.
Þegar forysta flokksins kú-
venti í Kárahnjúkamálinu á
sínum tíma var ætlunin greini-
lega sú að sýna fram á að flokkur-
inn væri „stjórntækur“, þ.e. ætti
auðvelt með að taka þátt í þeim
málamiðlunum sem fylgir stjórn-
arþátttöku. Þetta yrði Samfylk-
ingin að gera, annars kæmist hún
ekki í stjórn. Tækifærið kom ekki
2003 en hins vegar kom það núna.
Miðað við stöðu mála virðist Sam-
fylkingarforystan hafa hugsað
málið svona fyrir síðustu kosn-
ingar: Flöggum plagginu Fagra
Íslandi og segjumst vilja stór-
iðjustopp í 4-5 ár á meðan nátt-
úruverðmæti landsins eru könn-
uð. Þannig getum við haldið hjá
okkur því umhverfisverndarfólki
sem annars fer til grænu flokk-
anna. Eftir kosningar mun fólk
sýna því skilning að við fáum ekki
allt okkar fram í stjórnarsáttmál-
anum, svo sem dýrar og tíma-
frekar náttúrfarsrannsóknir. Þá
gumum við af rammaáætluninni
sem hvort eð er átti að vinna að
og lofum að snerta ekki þau svæði
sem hvort eð er þarf ekki að fara
inn á á kjörtímabilinu. Síðan verð-
ur vonandi hægt að draga end-
anlegar ákvarðanir iðnaðarráð-
herra og umhverfisráðherra um
álver og virkjanir í tvö ár og
síðan skilgreinum við þessi tvö ár
sem „stóriðjuhlé“ þótt stanslaus
fréttaflutningur af stóriðjukapp-
hlaupinu dynji allan tímann. Á
þessu tímabili sýnum við fram á
hve stjórntæk við erum. Eftir tvö
ár: „Den tid, den sorg“.
Ef Samfylkingarforystan hefur
hugsað svona er skiljanlegt hvers
vegna Ingibjörg Sólrún og Þór-
unn Sveinbjarnardótt-
ir kúvenda úr því að
segja að stjórnvöld eigi
að stjórna ferðinni, yfir
í það að stjórnvöld eigi
ekkert að skipta sér af
því sem sjálfstæð fyr-
irtæki og sveitarstjórn-
ir séu að bralla. Svona
rétt eins og Lands-
virkjun komi eigendum
sínum, þjóðinni, ekk-
ert við. Fjölmiðlamenn
leggja sig alla fram um
að kafa ofan í valdabrölt og kapp-
hlaup álrisa og sveitarstjórna en
enginn hugar að þeim náttúru-
verðmætum sem fórna þarf fyrir
alla þessa stóriðju, s. s. norð-
austan Mývatns. Það virðist ekki
valda yfirmönnum Norsk Hydro
áhyggjum þótt þeir hafi engan
orkukaupasamning í hendi – þeir
þekkja þá forsögu virkjana á Ís-
landi að mat á umhverfisáhrifum
sé bara formsatriði. Ef við gefum
sveitarstjórnarmönnum samheit-
ið Jón og Páll í staðinn fyrir Pétur
og Pál, þá virðast þeir heldur ekki
vera að pæla í því hvernig eigi að
útvega orkuna og reisa virkjana-
mannvirki í ótal öðrum sveitarfé-
lögum en þeirra eigin. Nei, ál er
ekkert mál fyrir Jón og Pál, jafn-
vel þótt einföld samlagning sýni,
að þegar þau álfyrirtæki, sem nú
eru á fullri ferð hér á landi, hafa
fengið alla þá orku sem þau þurfa
til að reka álver af minnstu hag-
kvæmnisstærð, sem er 500 þús-
und tonn á ári fyrir hvert álver –
þá krefst sú stóriðja allrar virkj-
anlegrar vatns- og hveraorku
landsins og Fagra Ísland farið
fyrir lítið. Og þá er eftir að upp-
fylla drauma virkjanafíkla um
orkusölutil Skotlands og til net-
þjónabúa og vetnisframleiðslu
fyrir bíla og skip. Já, þjóðin er
í „ég fer í fríið“-skapi, 83 pró-
sent ánægð með nýju stjórnina
í skoðanakönnun. Aðalatriðið er
að virkja og selja orku sem hrað-
ast og óðast þótt álverin öll gefi
aðeins vinnu fyrir 2% vinnuafls
þjóðarinnar og fórnað sé náttúru-
verðmætum sem í ímynd þjóðar-
innar má meta til þúsunda millj-
arða. Fagra Ísland orðið að Magra
Íslandi. Þórunn stóð með sóma
í lappirnar við Kárahnjúka og á
ævarandi þökk fyrir það. Vonandi
fær hún ekki í hnén eins og Val-
gerður við að hitta álfurstana.
Höfundur er formaður
Íslandshreyfingarinnar.
Ál – ekkert mál
fyrir Jón og Pál
Fiskislóð 1 • Sími 580 8500 • www.ellingsen.is
Opið mánudaga–föstudaga 8–18,
laugardaga 10–16 og sunnudaga 12–16