Fréttablaðið - 21.07.2007, Síða 8
Íbúar á Kársnesi í
Kópavogi eru margir ósáttir
vegna framtíðarskipulags svæð-
isins. Tugir þeirra hafa hengt upp
mótmælaborða á hús sín.
„Við sjáum fram á gríðarlega
umferðaraukningu,“ segir Arna
Harðardóttir, formaður samtak-
anna Betri byggð á Kársnesi. „Við
erum með eina aðalæð, Kársnes-
brautina, einbreiða íbúagötu, sem
er í dag að flytja um átta þúsund
bíla og fólki finnst nóg um.“
Arna segir að umferðinni fylgi
trukkar, hávaði og mengun. Svif-
ryksmengun hafi mælst yfir
mörkum. Auk þess hafi mörg hús
mælst yfir hljóðvistarmörkum
vegna hávaða frá Kársnesbraut-
inni.
Að sögn Örnu mun breytt skipu-
lag hafa það í för með sér að bíla-
fjöldinn um brautina eykst um tíu
þúsund bíla á sólarhring, svæði
atvinnuhúsnæðis þrefaldast og
umfang hafnarinnar aukast til
muna. „Börnin þurfa að fara yfir
brautina í og úr skóla og þessi
íbúagata er engan veginn byggð
fyrir þetta álag,“ segir Arna.
„Það eru hverfandi áhrif af svif-
rykinu og það má minnka það með
því að banna nagladekk og auka
notkun á strætisvögnum,“ segir
Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri í
Kópavogi. „Við erum að þétta
byggðina og nýta landið betur.“
Gunnar segir jafnframt að höfn-
in sé aðeins 125 metrar og því
verði hún ekki „stórskipahöfn“.
„Þarna myndast fleiri störf
fyrir Kópavogsbúa sem búa í vest-
urbænum og annars staðar,“ segir
Gunnar. „Það er stutt fyrir fólk að
fara í vinnuna og það er umhverf-
ismál. Það vantar ekki störf núna
en það gæti breyst.“
Arna segir áform um stækkun
hafnarinnar vera tímaskekkju og
vonar að bærinn falli frá þeim.
Auk þess hafi svæði atvinnuhús-
næðis stækkað. „Þarna er komin
stærðarinnar málmvinnsla,
steypustöð sem hefur ekki starfs-
leyfi og holræsaþjónusta, alls
konar starfsemi sem á engan veg-
inn heima í bland við íbúabyggð.“
„Það er heilbrigðiseftirlitið sem
gefur starfsleyfi,“ segir Gunnar.
„Það er við litla hrifningu yfir-
valda að steypustöðin er þarna.“
Arna segir bæinn hafa hunsað
nær allar tillögur íbúanna. „Í stað
íbúalýðræðis er nokkurs konar
verktakaeinræði,“ segir Arna.
„Ég er eitt af þessum fórnar-
lömbum, ég bý á Kársnesinu og
þessi ágætu samtök hafa hvorki
haft samband við mig sem íbúa né
sem bæjarstjóra,“ segir Gunnar.
Tugir mótmæla-
borða á húsum
á Kársnesi
Samtökin Betri byggð á Kársnesi mótmæla fyrirhug-
uðu skipulagi í vesturbæ Kópavogs. Segja að umferð
muni þyngjast sem og svifryk og hljóðmengun. Bæj-
arstjóri segir samtökin ekki hafa talað beint við sig.
Hvernig vörur hafa lækkað
í verði um tæp tíu prósent frá
árinu 2002?
Hvað heitir síðasta Harry
Potter bókin, sem kom í sölu í
íslenskum verslunum í gær-
kvöldi?
Við hvaða knattspyrnufé-
lag samdi Heiðar Helguson á
fimmtudag?
Fjölskyldur meira en 250 palest-
ínskra fanga tóku fagnandi á móti þeim eftir
að Ísraelar höfðu sleppt þeim úr haldi í gær.
Þessir 250 fangar eru þó aðeins lítið brot af
þeim 9.200 Palestínumönnum sem sitja í ísra-
elskum fangelsum.
Ísraelsstjórn segist vilja með þessu sýna
Mahmoud Abbas, forseta Palestínustjórnar,
og Fatah-hreyfingu hans, stuðning í þeirri von
að koma megi raunverulegum friðarviðræð-
um af stað á ný.
Abbas sagði þetta aðeins fyrsta skrefið í því
að fá fleiri fanga leysta úr haldi. „Starf okkar
verður að halda áfram þangað til hver einasti
fangi snýr aftur til síns heima,“ sagði Abbas í
gær.
Salad Fayyad forsætisráðherra sagði sömu-
leiðis að Ísraelar yrðu að gera meira til að
bæta andrúmsloftið: „Stefna ykkar er stefna
smárra breytinga. Þið gerið smávegis hér,
smávegis þar,“ sagði hann. „Ísrael er stórt og
sterkt land. Ísrael getur leyft sér meiri
dirfsku.“
Sumir fanganna gáfu í skyn að nú væri
vopnuðum átökum við Ísrael lokið: „Við vilj-
um senda þau skilaboð til heimsins að við vilj-
um frið fyrir þjóðina okkar,“ sagði Majdi
Abdullah, fyrrverandi meðlimur í al-Aksa
skæruliðasveitunum, sem hefur setið í fimm
ár í fangelsi Ísraela.
Aðrir fanganna voru hins vegar vígreifir og
vildu ólmir leggja til atlögu við Hamas í hefnd-
arskyni fyrir yfirtöku Gaza-svæðisins.
Fyrsta skrefið í að fá fleiri fanga lausa
Ný stjórn Flugstöðvar
Leifs Eiríkssonar ohf. var kjörin
á hluthafafundi í gær. Jón
Gunnarsson,
fyrrverandi
þingmaður
Samfylkingar-
innar, var
kjörinn formað-
ur, en í fyrsta
skipti skipa
konur meirihluta
stjórnarinnar.
Rannveig
Guðmundsdóttir og Sigrún
Jónsdóttir voru einnig kjörnar
fyrir hönd Samfylkingarinnar, en
fyrir voru Ellert Eiríksson og
Magnea Guðmundsdóttir fyrir
Sjálfstæðisflokk.
Flugstöðin er í eigu ríkisins og
fer utanríkisráðherra með hlut
þess í henni.
Jón Gunnarsson
nýr formaður
HARRY POTTER
Loksins kominn til landsins
Hann fæst hjá okkur