Fréttablaðið - 21.07.2007, Page 9
Frelsi stöðvar
tímann
Þú borgar bara fyrir fyrstu 3 mínúturnar
en getur svo talað og talað fyrir 0 kr.
Fylltu á Frelsi með GSM símanum og njóttu þess að vera í gefandi samböndum í sumar.*
- 0 kr. mínútan eftir fyrstu 3 mínútur hvers símtals
- 0 kr. fyrir hver skilaboð eftir 3 SMS eða 3 MMS innan sólarhringsins
Til að geta fyllt á Frelsi með símanum þínum þarftu bara að skrá debet- eða kreditkortið þitt
einu sinni á Mínu Frelsi á siminn.is eða í verslunum Símans.
*Tilboðið gildir innan kerfis Símans. Nánari upplýsingar um tilboð og skilmála er að finna á siminn.is/frelsi 800 7000 – siminn.is
SONY ERICSSON Z310i
Léttkaupsútborgun
900 kr.
1.000 kr. á mánuði í 12 mánuði.
Verð aðeins 12.900 kr.
Sum
arti
lboð
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
2
8
5
8
9
Slysavarnafélagið Lands-
björg heldur um helgina lands-
mót fyrir unglinga. Mótið fer
fram á Gufuskálum á Snæfells-
nesi og eru þar samankomnir um
170 unglingar ásamt um 50
umsjónaraðilum. Þátttakendurn-
ir eru á aldrinum 14 til 18 ára og
eru allir virkir í ungliðastarfi
björgunarsveita Landsbjargar.
„Þau eru að æfa leitartækni,
sig og klifur. Svo æfa þau sig í
skyndihjálp og að vinna með vog-
arafl, fara í siglingar og læra að
velta við bátum sem fara á hvolf.
Þetta er björgunarsveitafólk
framtíðarinnar,“ segir Ólöf Snæ-
hólm Baldursdóttir, upplýsinga-
og kynningarfulltrúi Landsbjarg-
ar.
„Á Gufuskálum er mjög góð
aðstaða sem Slysavarnafélagið
Landsbjörg á. Þar gista krakk-
arnir í tjöldum og hamast svo
allan daginn. Þau eru ótrúlega
dugleg.“
Ólöf segir björgunarsveita-
starfið vera gott fyrir unglinga.
Sú þekking sem þeir fái í ungl-
ingastarfinu og á landsmótinu
muni nýtast þeim alla ævi, hvort
sem þeir haldi áfram í björgunar-
sveitum eða ekki.
Mótið hófst á fimmtudag og
því lýkur í dag.
Björgunarsveitafólk framtíðar
Sex Íslendingar eru staddir
á Grænlandi til að taka þátt í fimm
daga ævintýrakeppni sem hefst í
dag. Keppt er í fjallamennsku, þar
sem hlaupið er yfir fjöll og jökla,
fjallahjólreiðum og kanóróðri. Um
er að ræða sveitakeppni þar sem
fjórir eru í liði.
Íslendingarnir tefla fram einni
karlasveit, the Intersport Iceland,
og einni blandaðri íslensk-danskri
sveit, The Happy People.
Danska sjónvarpið hefur verið
þarna árlega við upptökur og gert
þætti um keppnina.
Hægt er að fylgjast með
keppninni á http://www.atc.gl/
home.html.
Sex Íslendingar
taka þátt
Forsvarsmenn
Landssambands slökkviliðs- og
sjúkraflutningamanna (LSS) hafa
lýst yfir ánægju með ákvörðun
Guðlaugs Þórs Þórðarsonar
heilbrigðisráðherra að stofna
starfshóp til að gera tillögur um
skipulag sjúkraflutninga.
LSS hefur gagnrýnt það
harðlega að dæmi séu um að
aðeins einn sjúkraflutningamaður
annist flutning sjúkra og slasaðra.
LSS telur það fyrirkomulag
algerlega óviðunandi.
Forsvarsmenn LSS funduðu með
ráðherra síðastliðinn miðvikudag
og fagna því að framtíðarskipulag
sjúkraflutninga sé til skoðunar.
Sambandið lítur einnig jákvætt á
hugmyndir ráðherra um endur-
skoðun á menntunarmálum
sjúkraflutningamanna.
Fagna frum-
kvæði ráðherra
Hæstiréttur Pakist-
ans kvað í gær upp þann úrskurð
að Pervez Musharraf forseti hefði
ekki farið að lögum þegar hann
rak Iftikhar Muhammad
Chaudhry, forseta hæstaréttar, úr
embætti. Jafnframt ógilti
dómstóllinn málatilbúnað
stjórnarinnar á hendur Chaudhry,
sem sakaður hafði verið um að
hafa gerst brotlegur í embætti.
Dómarar og stjórnarandstæð-
ingar í Pakistan fögnuðu ákaft og
sögðu þennan úrskurð hæstarétt-
ar vera mikinn sigur fyrir
lýðræðið í landinu. Dómsvaldið
hafi þarna sýnt fram á sjálfstæði
sitt gagnvart forsetanum.
Fær að halda
embættinu
Manni, með óvenju
lítinn heila, hefur tekist að lifa
eðlilegu lífi í fjörutíu ár. Rann-
sóknir franskra vísindamanna á
höfði hans sýna að hauskúpa hans
inniheldur að mestu leyti vökva.
Vísindamennirnir segja að
einungis sé lítil arða af heilavef í
höfði mannsins. „Hann var giftur
starfsmaður hjá hinu opinbera og
tveggja barna faðir,“ sagði læknir
mannsins. Þetta kom fram á
fréttavef Ananova.
Maðurinn mældist með
greindarvísitöluna 75, sem er
töluvert lægra en gengur og
gerist hjá meðalmanni.
Með vökva í
stað heila