Fréttablaðið - 21.07.2007, Side 55
Framhaldið er enn óljóst hjá
Bjarna hvað starfsvettvang en
hann segist aðspurður efast um að
hann muni sækja um stöðu í sveit
Stuðmanna. „Það er ekki alltaf
gott að blanda saman í miklum
mæli atvinnu og áhugamáli. Á
næstunni ætla ég bara að einbeita
mér að því að njóta þessarar ein-
stöku veðurblíðu eins og aðrir
landsmenn,“ segir Bjarni og hefur
enga trú á því að góðviðrisdögun-
um fari að fækka. „Þetta skiptir
oft svona um hundadagana. Ég er
bjartsýnismaður. Við erum að fara
norður í land og gæfuhjólið hlýtur
að fara að snúast norðanmönnum í
vil.“Bjarni segist vissulega munu
sakna þess að vinna hjá Glitni. „En
ég vona að ég komi til með að eiga
Kryddstúlkan Mel B er svo ánægð
með nýja kærastann sinn að hún
ætlar að giftast honum. Sá nýi
heitir Stephen Belafonte og vinnur
sem kvikmyndaframleiðandi. Þau
hafa þekkst í sjö ár en hafa verið
saman síðan Eddie Murphy
sparkaði Mel B og neitaði að hann
væri faðir barnsins sem hún gekk
með. Dóttirin Angel Iris er orðin
þriggja mánaða gömul og Mel
virðist vera að reyna að gleyma
Eddie: „Stephen er stóra ástin mín
og ég ætla að giftast honum. Hann
er líka miklu betri í rúminu en
Eddie!“ segir kryddstúlkan.
Nýi maðurinn hefur gengið
dótturinni í föðurstað, enda veitir
ekki af þar eð Eddie Murphy hefur
aldrei haft samband. „Stephen er
himnasending. Eddie
hefur nefnilega ekki
látið í sér heyra
síðan hún fæddist.
Sem betur fer
hefur Stephen
verið mér stoð og
stytta.“
Mel B. ætlar að giftast
nýja kærastanum
allt þetta góða fólk að vinum og
kunningjum áfram. Það hafa
myndast sterk tengsl á þessum
áratug.“ Samstarfsmennirnir
virðast að minnsta kosti þekkja
sinn mann nokkuð vel því hann
fékk að eigin sögn „einmitt það
sem hann vantaði“ í kveðju-
gjöf. „Ég fékk ekki þetta hefð-
bundna málverk heldur kerru,
vinnugalla, skóflu og tré.
Þetta fer ég með í Skorradal-
inn á næstunni,“ segir Bjarni
en þau hjónin eiga sumarbú-
stað í dalnum. „Það fór aldrei
svo að maður yrði ekki skilinn
eftir með verkefni og verk-
færi. Þetta var akkúrat það
sem mig vantaði.“
Rappararnir Kanye West og 50
Cent munu heyja harða baráttu
um efsta sæti plötulistanna þegar
þeir gefa út næstu plötur sína
sama daginn, þann 11. september.
West ætlaði upprunalega að
gefa út sína þriðju plötu, Graduat-
ion, þann 21. ágúst, til að komast
hjá því að berjast við plötu 50
Cent, Curtis. Sú plata átti að koma
út í júní en var frestað til 4. sept-
ember. Nú er búið að fresta enn
enn á ný til 11. september og ákvað
West þá að gefa sína plötu út á
sama degi.
Búast má við hörðum slag um
hylli tónlistarunnenda á útgáfu-
daginn og báðir eru rappararnir
sannfærðir um að verða ofan á.
Hörð barátta