Fréttablaðið - 21.07.2007, Side 62
Auðunn Blöndal og Sverrir Þór
Sverrisson fóru ásamt unnustum
sínum í heimsókn til góðvinar síns
Eiðs Smára Guðjohnsen og eigin-
konu hans Ragnhildar Sveinsdótt-
ur á dögunum. Knattspyrnukapp-
inn er nú að nýta síðustu dagana í
sumarfríinu áður en kallað verður
til æfinga hjá stórliði Barcelona
og naut lífsins með góðvinum
sínum.
Hersingin staldraði stutt við í
höfuðborg Katalóníu og hélt í sigl-
ingu um höfin blá á glæsilegri
snekkju. Samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins var ekki um að
ræða neitt venjulegt bátskrifli
heldur snekkju í eigu sjálfs Rom-
ans Abramovich, rússneska auð-
jöfursins og fyrrverandi yfir-
manns Eiðs hjá Chelsea. Nutu
vinirnir lífsins lystisemda um
borð en samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins var allt starfsfólk
snekkjunnar um borð og þjón-
ustaði Íslendingana eftir bestu
getu. Ekki fékkst gefið upp hvert
ferðinni var nákvæmlega heitið
en þeir Auðunn og Sverrir komu
til landsins um síðustu helgi.
„Ég vil ekkert tjá mig um þetta
mál. Núna er ég bara í langþráðu
sumarfríi og er að æfa sveifluna á
golfvellinum,“ segir Auðunn Blön-
dal, spurður um ferðina. Í sama
streng tók Sverrir Þór Sverrison,
hann vildi ekkert láta hafa eftir
sér í samtali við blaðið en grínar-
inn góðkunni undirbýr nú barna-
efni fyrir Stöð 2 af fullum krafti
ásamt Vilhelm Antoni Jónssyni,
Villa Naglbít.
Eiður Smári og Ragnhildur hafa
þó greinilega skipulagt hið stutta
sumarfrí atvinnumannsins vel en
þau dvöldu hér á landi um tíma
og héldu meðal annars óvænt
upp á þrítugsafmæli Ragnheiðar
með pompi og prakt. Nú stendur
hins vegar til að stjörnurnar
þyrpist á Camp Nou til æfinga
þar sem Eiður berst um byrjunar-
liðssæti í Barcelona við bestu
knattspyrnukappa heims.
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
Sigurður Heiðar Wiium
„Fólk er orðið frekar tæknivætt þegar það er
farið að gera svona hluti. Ég botna ekkert í
þessu,“ segir Magni Ásgeirsson, en nýjasta
lag hans, If I Promised You The World, er
komið í dreifingu á netinu án hans samþykkis.
Erlendir aðdáendur Magna hafa beðið í
ofvæni eftir fyrstu sólóplötu hans sem
kemur út hérlendis og á iTunes í lok
mánaðarins. Tókst einhverjum þeirra að
stela nýja laginu af heimasíðu Rásar 2, þar
sem það var frumflutt á dögunum. Einnig
hafa hinir æstu aðdáendur tekið lög af
MySpace-síðu Magna sem eiga að vera
vernduð gegn þjófnaði.
Platan heitir einfaldlega Magni og segist
rokkaranum ekki hafa dottið neitt skárra nafn
í hug. „Af því að hún er á ensku en er gefin út
á Íslandi og líka á iTunes þá er hún þannig séð
gefin út alls staðar. Það var ekki hægt að láta
hana heita íslensku nafni og ekki heldur ensku
þannig að þetta er fín lausn.“
Magni, sem var upptekinn við sveitastörfin
og ók traktor þegar Fréttablaðið ræddi við
hann, segist vera mjög sáttur við plötuna.
„Hún „sándar“ alveg frábærlega og ég er
mjög hreykinn af útkomunni. Það gekk allt
upp einhvern veginn en ég á eftir að sjá hana
fullbúna. Vonandi hefur ekkert klúðrast.“
Magni, sem tók plötuna upp í Danmörku,
gefur hana út sjálfur og segir það skipta
miklu máli. „Þetta gefur manni fullkomið
frelsi og það er enginn sem getur sagt þér að
gera neitt. Þarna á maður líka allt sjálfur og
enginn getur tekið neitt af þér. Maður stendur
bara og fellur með þessu sjálfur.“
Útgáfutónleikar vegna nýju plötunnar verða
haldnir á Borgarfirði eystri, heimaslóðum
Magna, þann 27. júlí næstkomandi.
Lagi Magna stolið frá Rás 2
Davíð Þór Jónsson hefur ákveðið
að venda kvæði sín í kross. Hann
mun ekki semja spurningar né
dæma í spurningakeppni fram-
haldsskólanna Gettu betur á þessu
ári heldur hyggst hann endurnýja
kynnin við guðfræðideild Háskóla
Íslands. „Í ljósi reynslunnar af því
hvað þetta var mikil vinna og álag
sá ég ekki fram á að geta unnið við
Gettu betur með náminu,“ segir
Davíð Þór þegar Fréttablaðið náði
tali af honum. Hann viðurkennir að
það sé pínulítill beygur í honum að
fara að setjast á skólabekk eftir
langa fjarveru en um leið ákaflega
spennandi. „Ég þarf að fara dusta
rykið af ritningalestrinum og
grísku sem ég hef ekki haldið við
síðan ég hætti.“
Davíð sagði skilið við guðfræð-
ina á sínum tíma vegna anna í
skemmtanabransanum en segir
hugann hafa stefnt í guðfræðina
aftur. „Ég hætti síður en svo vegna
áhugaleysis. Ég stóð frammi fyrir
tveimur valmöguleikum og ákvað
að velja skemmtanabransann vegna
þess að það var tækifæri sem mér
átti ekki eftir að bjóðast aftur,“
útskýrir Davíð en bætir því við að
kannski hafi dæmið snúist við.
„Núna veit ég hvað þessi bransi
gengur út á og guðfræðin er orðin
að gæsinni sem mig langar til að
grípa.“
Dómarinn á þrjátíu einingar eftir
í B.A. prófið og býst við að klára
þær á einum vetri. Hvað framhald-
ið verður vildi hann ekki tjá sig um
og gaf ekkert út á hvort kirkjan yrði
hans næsti vinnustaður. „Ég ætla
bara að sjá hvernig þetta gengur
enda eiga langtímaplön oft til að
breytast. Ég er meira fyrir að skipu-
leggja stutt fram í tímann.“
Davíð Þór úr Gettu betur í guðfræði
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki