Fréttablaðið - 21.07.2007, Qupperneq 64
Nokkur umræða hefur verið und-anfarið um álagningu á léttvíni
og bjór. Þeir sem kaupa sér slíkan
vökva úr búð hér á landi eru neyddir
til þess að greiða til ríkisins óheyri-
lega hátt hlutfall af söluverði vör-
unnar, allt upp í 90%, og eru rök-
semdirnar fyrir þessu einkum sagð-
ar þær að með því að hafa verðið
nógu hátt verði komið í veg fyrir að
fólk fari illa út úr viðureigninni við
Bakkus.
umræða er full af þversögn-
um. Fyrir það fyrsta blasir við að
stefnan virðist ekki skila tilætluð-
um árangri, því þrátt fyrir hið him-
inháa áfengisverð hefur drykkjan
beinlínis aukist. Reyndar þætti mér
vænt um að vita, í þágu vísindanna,
hvort í útreikningum um aukna
áfengisneyslu sé gert ráð fyrir því
að á síðustu árum hefur ferðamönn-
um fjölgað gríðarlega hingað til
lands. Eins og menn vita eru þeir
hreint ekki alltaf edrú frekar en inn-
fæddir.
blasir við að eftir-
spurnin eftir guðaveigunum er slík
að bæði Íslendingar sem og aðkomu-
menn virðast reiðubúnir að greiða
fyrir þær uppsett verð, jafnvel þótt
það sé það hæsta sem þekkist á
byggðu bóli, og gildir þá einu hvort
kaupendur fussi yfir verðinu eða
hristi hausinn. Aurinn er framreidd-
ur. Sjaldan hef ég í minni hundstíð
komið til kvöldfagnaðar hér á landi
án þess að þar sé allt fljótandi í
áfengi. Hver einasta helgi í 101
Reykjavík er reglubundinn vitnis-
burður um það hversu átakanlega
bitlaust það er sem vopn í viður-
eigninni við óhóflega áfengisneyslu
að hafa verðið á víninu svona hátt.
Ef fólk vill vín, fær það sér vín.
sem hátt áfengisverð
gerir er að gera alkóhólista gjald-
þrota. Mér finnst það í öllu falli
ákaflega ósannfærandi, án þess að
ég leggi til grundvallar neinar rann-
sóknir á því, að ætla sem svo að
manneskja sem er háð áfengi muni
hætta að drekka vegna þess að það
sé svo dýrt. Ég myndi ætla að það
væri beinlínis skilgreiningaratriði á
sjúkdómnum að alkóhólistar setji
vínið framar heimilisbókhaldinu.
ekki væri nema bara af þessum
sökum er ríkisokrið á áfengi bein-
línis ómannúðlegt. Færa má fyrir
því rök að ríkið maki krókinn á
áfengisvandræðum þegnanna og
auki þar með eymd þeirra. Hvernig
vandi þessa fólks er leystur með því
að hafa vínið dýrt er vandséð, og
dæmið verður enn vandséðara í til-
viki þeirra alkóhólista sem eiga skít-
nóg af pening, en þeir eru líka til.
sem ekki á í vand-
ræðum er vitaskuld ekki síður
umhugsunarverð. Tvö rauðvínsglös
á dag eru beinlínis holl. Á bar kostar
slíkt heilbrigði 1.600 krónur á dag.
Það eru hvorki meira né minna en
584.000 krónur á ári. Það er álíka
mikið og ársafborgun af nokkuð
þokkalegri bifreið. Spurningin um
bíl eða vín hefur þannig fengið nýja
merkingu. Ekki er bara spurt hvort
menn ætli að keyra eða drekka,
heldur er önnur spurning beinlínis
orðin viðeigandi í ljósi verðlagsins:
Hvort er betra að kaupa sér, bíl eða
rauðvín?
Vínverð ÚTSALA
5. júlí - 29. júlí