Fréttablaðið - 24.07.2007, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 24.07.2007, Blaðsíða 40
Fátt hefur vakið með mér ótta-legri hugrenningar en frásögn konu af því hvernig barnatrú lin- aði ótta ömmu hennar eftir að hrörnunarsjúkdómur hafði hrifs- að burtu nær allar minningar hennar af lífinu. Konan taldi þetta til marks um það hve sálmar og bænir sem börn lærðu fyrr á tímum gætu komið að gagni síðar meir. Börn nútímans, sem fæst læra bænir, sagði hún fara á mis við mikið. Ef hugar þeirra yrðu síðar helteknir af gleymsku myndu þau líklega aðeins geta raulað með sér auglýsingastef hinna ýmsu fyrirtækja. Það væri eitt af því fáa sem börn vorra tíma lærðu utanbókar. frásögn valdið því að ég sé mig í hugskots- sjónum, háaldraða og gleymna, raulandi um hve Ljóminn sé ljóm- andi góður, betri en ég hugsaði mér. Hann eigi skilið það lof sem hann fær, virki frá hvirfli ofan í tær og verði mér að eilífu kær. Hin djöfullega smjörlíkisauglýs- ing, með Ríó tríóinu, tilheyrir nefnilega einum af mínum elstu bernskuminningum og fölnar ei. hlaut ég töluverða uppfræðslu í kristinni trú í gegn- um votta Jehóva. Vitanlega hreifst ég af illri meðferð Jehóva guðs á Filisteum og öðru úrþvætti. Fræðslan olli því líklega að ég hef ávallt haft mikinn áhuga á trúar- brögðum og öðrum glæpa- og ofbeldissögum. Engin mynd hefur vakið með mér meiri ugg en sú sem má finna í ritinu Biblíusögu- bókin mín, sem mér var gefin átta ára gamalli, en þar má sjá synd- uga móður gráta með barn sitt í fangi meðan Nói siglir örkinni burt af festu og guðrækni. Ef til vill á ég því einhverja von um að orna mér við annað en Ljómalag- ið, mér til skemmtunar, ef aldur- inn færist yfir með gleymsku. er snillingur. Um það er ég algerlega sannfærð. Rétt eins og flest allir foreldrar fjögurra ára barna. Það þarf þó ekki að þýða að honum verði rótt í ellinni. Í hjólreiðaleiðangri um Vesturbæinn varð mér á að benda á kirkju og spyrja hann um hver ætti þar heima. Hneykslaður svar- aði hann: „Prestar eiga ekki heima í kirkjum, þeir vinna bara þar.“ Því næst heimtaði hann að við kæmum við í klukkubúð til að kaupa Pez. heldur vonsvikin yfir því hve illa mér hafði lánast að uppfræða barn mitt. Í gær hlotnaðist mér þó tækifæri til að segja honum frá alheiminum, guði og öllu. Óvart hafði ég sett hönd- ina inn í köngulóarvef þar sem fjöldi köngulóarbarna var að snæðingi. Á meðan ég reyndi að losa mig við nokkra tugi þeirra spurði hann mig hvaðan þau kæmu. Ótti minn á smádýrunum olli því að ég svaraði spurning- unni á þann veg að þær kæmu frá köngulóarmömmunni og könguló- arpabbanum. Rétt svar er þó að köngulær og annað í þessum heimi er frá guði. Því svari laust þó í huga minn þegar pilturinn spurði hvernig kóngulóarbörnin yrðu til. Guði sé lof. Ljóminn í ellinni MITSUBISHI L-200 ÓTRÚLEGA FJÖLHÆFUR JEPPI Á FRÁBÆRU VERÐI Virkur þ átttakandi Mitsubishi L-200 er fjölhæfur ferðafélagi sem er meira en til í að taka þátt í öllum áhugamálum fjölskyldunnar. Mikilvægir eiginleikar • Öflug dísilvél • Minnsti beygjuradíus sambærilegra bíla • 2.800 kg dráttargeta • Opnanleg afturrúða • Super select II drifbúnaður – sá sami og í Pajero • Spyrnustýring og spólvörn Komdu og reynsluaktu 2.990.000 kr. Veglegur aukahlutapakki innifalinn: Álfelgur • 32" dekk • Klæðning í palli • Dráttarbeisli Einnig fáanlegur sjálfskiptur á aðeins 3.230.000 kr. H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA - 0 6 0 2 FYRSTUR MEÐ FRÉTTIRNAR www.visir.is

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.