Fréttablaðið - 24.07.2007, Blaðsíða 25

Fréttablaðið - 24.07.2007, Blaðsíða 25
[Hlutabréf] Actavis hverfur í dag úr OMX Ice- land 15 vísitölunni, sem einnig er nefnd Úrvalsvísitala Kauphallar- innar. Eftir standa þrettán félög og fækkar brátt í tólf með fyrir- hugaðri afskráningu Mosaic Fashions í næsta mánuði. Afskráning Actavis kemur í kjölfar þess að Novator hefur tryggt sér 99,66 prósent af hlutafé í Actavis Group, að því er fram kom í tilkynningu til Kauphallar- innar í gær. Hluthafar sem sam- þykktu tilboðið fá greitt fyrir bréf sín á morgun, 25. júlí. Vegvísir Landsbankans greindi frá því í gær að frá því formlegt yfirtökutilboð Novators var lagt fram í júníbyrjun hefði velta með hlutabréf numið 374 milljörðum króna, samanborið við 153 millj- arða króna veltu á sama tímabili í fyrra. Enn fækkar í vísitölunni Í hönd fer tími hálfsársuppgjöra, en Nýherji reið á vaðið síðasta föstudag með birtingu uppgjörs fyrir annan fjórðung þessa árs. „Century Aluminum, Kaupþing, Exista, Bakkavör og Straumur- Burðarás birta uppgjör sín í vik- unni og munu þrjú síðastnefndu félögin öll birta sín uppgjör á fimmtudaginn næstkomandi,“ segir í hálffimmfréttum greining- ardeildar Kaupþings í gær, en Century Aluminum birtir uppgjör sitt eftir lokun markaða í dag og Kaupþing fyrir opnun markaða á morgun. Glitnir, Össur og Teymi birta uppgjör 31. júlí. Greiningardeildin segir upp- gjörshrinuna nokkuð mikilvæga fyrir þróun hlutabréfamarkaðar, enda séu nokkrar væntingar um góð uppgjör í ljósi 40 prósenta hækkunar Úrvalsvísitölunnar það sem af er ári. „Þau félög sem birta uppgjör sín í júlí hafa samtals nærri 70 prósenta vægi í Úrvals- vísitölunni.“ Væntingar um góð uppgjör Eimskip og Qingdao Port Group skrifuðu í gær undir samning um rekstur 55 þús- und tonna kæli- og frystigeymslu í Qingdao-höfn í Kína. Geymslan, sem verður tekin í notkun í september, verður sú stærsta sinnar tegundar í Kína. Í samn- ingnum felst jafnframt bygging annarrar geymslu upp á 55 þúsund tonn. Samanlagt verður því geymslugeta Eimskips í Qingdao-höfn 110 þúsund tonn. Til sam- anburðar rúmar kæli- og frystigeymsla Eimskips í Sundahöfn um 3.500 tonn. Fyrst um sinn snýst samningurinn um rekstur geymslanna. Gert er ráð fyrir að Eimskip verði eigandi þeirra innan tveggja til þriggja ára. Samningurinn felur jafnframt í sér að Eimskip verður eini rekstraraðili kæli- og frystigeymsla í höfninni. Baldur Guðnason, forstjóri Eimskips, segir kostnaðinn við fyrsta hluta fram- kvæmdanna liggja á bilinu tuttugu til þrjátíu milljónir evra. Það er á bilinu 1,6 til 2,5 milljarðar króna. „Þetta er gríðar- lega stórt verkefni sem við erum stolt af að vera hluti af. Þetta er okkar fyrsta geymsla í Asíu og hún verður hluti af heildarþjónustuneti Eimskips um allan heim. Með þessu gefst okkur tækifæri, í samstarfi við Qingdao-höfn, á að byggja upp miðstöð fyrir Asíu þar sem vörum er dreift innan, til og frá Asíu. Þetta er því stór dagur,“ segir forstjórinn. Undirbúningur að samningnum hófst fyrir tveimur árum þegar Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, fór fyrir stórri sendinefnd til Kína. Það var því vel við hæfi að hann væri viðstaddur undirskrift samningsins í húsakynnum forsetans að Bessastöðum í gær. Gera stórsamning í Qingdao

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.