Fréttablaðið - 24.07.2007, Blaðsíða 18
Nýleg rannsókn bendir til
þess að tengsl geti verið á
milli þefvísi og Alzheimer.
Vísindamenn við Cincinnati-
háskóla telja að lélegt lyktarskyn
sé hugsanlega ein fyrsta vísbend-
ing um heilabilunarsjúkdóminn
Alzheimer.
Þeir rannsökuðu 600 manns á
aldrinum 54 og upp í 100, sem
voru beðnir um á greina á milli
lyktar af lauk, sítrónu, kanil,
svörtum pipar, súkkulaði, rósum,
banönum, ananas, sápu, málning-
arþynni, bensíni og reyk.
Fjórðungur fólksins giskaði á
rétt svör eða gerði eina vitleysu.
Helmingur þeirra þekkti níu af
tólf en fjórðungur kom verst út,
þekkti átta eða færri af lyktinni.
Eftir prófið þurftu þátttakend-
ur að taka tuttugu próf ársfjórð-
ungslega næstu fimm árin, þar
sem reyndi meðal annars á þekk-
ingu þeirra og minni. Á þeim
tíma fór þriðjungur þátttakenda
að eiga við minnisleysi að stríða.
Niðurstaðan varð sú að fólk
sem gerði minnst fjögur mistök í
lyktarprófinu var fimmtíu pró-
sentum líklegra til að kljást við
slík vandamál en þeir sem gerðu
ekki fleiri en ein mistök. Einnig
komu fram vísbendingar um að
tengsl væru á milli lélegs lyktar-
skyns og allt frá minni háttar
minnisörðugleikum og upp í
Alzheimer.
Vísindamennirnir benda þó á
að ekki séu alltaf tengsl á milli
þefvísi og Alzheimer og því
óþarfi að örvænta. Best sé að
leita til læknis til að fá úr því
skorið.
Lélegt lyktarskyn
upphaf Alzheimer
Hlaupadrottningin Grete Waitz
skipuleggur Óslóar-maraþ-
onið í samstarfi við Glitni og
er ráðgjafi við það reykvíska.
Markmiðið er meðal annars
betri lýðheilsa.
„Ég byrjaði að hlaupa vegna
bræðra minna þegar ég var
krakki. Þeir voru á kafi í íþróttum
og ég leit mikið upp til þeirra. Þeir
voru nú ekkert allt of hrifnir af
litlu systur sem var alltaf í eftir-
dragi, en áður en þeir vissu af
hljóp ég fram úr þeim og þá varð
ekki aftur snúið,“ segir Grete
hlæjandi en hún uppgötvaði hæfi-
leika sína sem hlaupari þegar hún
var aðeins tólf ára gömul og hefur
æft með sama íþróttafélaginu
allar götur síðan.
Hún hefur átt fjölda heimsmeta
í langhlaupi, víðavangs- og maraþ-
onhlaupi og vann gull á heims-
meistaramótinu árið 1983 og silf-
ur á Ólympíuleikunum árið 1984.
Auk þess hefur hún unnið Lund-
úna-maraþonið tvisvar og New
York-maraþonið níu sinnum.
Í dag skipuleggur Grete Óslóar-
maraþonið og er ráðgjafi við það
reykvíska. Hún segir samstarfið
við Glitni vera einstaklega kær-
komið. „Það er mjög erfitt að fjár-
magna stóran viðburð eins og
Óslóar-maraþonið. Við höfðum í
mörg ár beðið fjársterka aðila á
hnjánum svo þegar Glitnir hafði
samband að eigin frumkvæði var
það eins og að fá jólapakka um
mitt sumar,“ segir Grete.
Í framhaldi af samstarfi Glitnis
og Óslóar-maraþonsins óskaði
Glitnir eftir aðstoð Grete við skipu-
lagningu Reykjavíkur-maraþons-
ins.
„Ég hef ákveðna þekkingu og
reynslu eftir öll þessi ár sem
íþróttakona. Ég og maðurinn minn
höfum ferðast gríðarlega mikið í
gegnum árin og hlaupið úti um
allan heim. Ég veit hvað þarf til við
skipulagningu slíkra viðburða svo
ég kem að Reykjavíkur-maraþon-
inu sem eins konar ráðgjafi og
finnst það mjög ánægjulegt,“ segir
Grete.
Hlaupin eru að sögn Grete vett-
vangur til að bjóða erlendu afreks-
íþróttafólki til að taka þátt og
skapa umtal á alþjóðavettvangi,
auk þess sem markmiðið er að
vekja almenning til vitundar um
heilbrigt líferni.
„Rannsóknir hafa sýnt að við
borðum ekkert fleiri kaloríur en á
árum áður. Samt erum við mun
feitari og þjökuð af sjúkdómum
sökum lífshátta. Þetta er því miður
mestmegnis hreyfingarleysi að
kenna. Reykjavíkurmaraþonið er
því góð áminning fyrir bættari
lýðheilsu, því allflestir geta verið
með,“ segir Grete, sem er mjög
þekkt í eigin heimalandi, Noregi,
þar sem hún er að flestra mati
„fröken heilsa og hreysti“. Þar
eltir fólk hana gjarnan í búðinni til
að athuga hvað hún kaupir í mat-
inn og Grete segist jafnvel verða
fyrir aðkasti út af súkkulaði.
„Ég hef lengi verið einn helsti
talsmaður heilbrigðs lífernis og
fólk heldur að ég borði aldrei
nammi. Málið er bara að borða
hollt daglega og hreyfa sig reglu-
lega. Þá er allt í lagi að njóta þess
að borða sætindi um helgar, eins
og ég reyni að segja við fólkið sem
rekur augu í súkkulaðið mitt í búð-
inni,“ segir Grete hlæjandi.
Reykjavíkur-maraþonið
stuðlar að betri lýðheilsu
Dreifingaraðili , S.L.I ehf. , Sími: 866 9512
Fæst hjá:
Aftur til náttúru
ORKA
FYRIR KROPPINN
FYRSTUR
MEÐ
FRÉTTIRNAR
www.visir.is
Auglýsingasími
– Mest lesið