Fréttablaðið - 28.07.2007, Blaðsíða 2
„Ég veit ekki hvort mér er
hlátur eða grátur í huga, maður
skilur bara ekki tilganginn með
þessari taugaveiklun,“ segir Sig-
urður Hreinsson, bóndi í Mikla-
holtshreppi á Snæfellsnesi. Nýlega
var sett lögbann á jarðvegslosun
hans á landi sem er í sameigin-
legri eigu hans og nágranna hans,
Ólafs Ólafssonar stjórnarfor-
manns Samskipa.
„Við höfum staðið í uppgræðslu
á þessu landi, sem einhverra hluta
vegna er í óþökk meðeigandans.
Ég skil ekki af hverju menn vilja
stöðva landgræðslu.“
Sigurður segir konu sína, Brynd-
ísi Guðmundsdóttur, hafa fengið
símtal á dögunum frá Daða
Jóhannssyni, sýslufulltrúa á Snæ-
fellsnesi, þar sem hann tjáði henni
að lögbann á uppgræðslunni væri
í undirbúningi.
„Þegar ég spurði hann hver
ástæðan væri fyrir lögbanninu
sagðist hann
ekki þurfa að
gefa neina
ástæðu fyrir
því,“ segir
Sigurður. „Það
er einkenni-
legt að það sé
hægt að setja
á mann lög-
bann fyrir að
bæta landið.“
Sigurður og Ólafur hafa staðið í
málaferlum vegna landamerkja
og eignarréttar á jörðinni í nokkur
ár og standa þau enn yfir. Deilan
snýst um hvaða túlkun eigi að
leggja í orðið „fjalllendi“, en í
afsölum síðan 1952 segir að fjall-
lendi sé sameiginlegt með jörðun-
um. Í byrjun júlí fjallaði Frétta-
blaðið einnig um deilur þeirra
vegna ferða Ólafs um sveitina á
einkaþyrlu sinni.
Kristinn Hallgrímsson, lögmað-
ur Ólafs, segir málið vera til komið
af því að nágrannarnir talist ekki
við nema í gegnum lögmenn sína.
„Sigurður og kona hans stóðu
fyrir því að losa yfir hundrað
vörubílsfarma af mold og úrgangi
á jörðina, sem áhöld eru um hvort
þau eigi eitthvað í. Í versta falli er
hún í sameiginlegri eigu bæj-
anna.“
Hann segir að jafnvel þótt los-
unin sé einhvers konar landupp-
græðsla gerist hún ekki nema í
samvinnu við meðeiganda jarðar-
innar. „Þú sturtar ekki bara mold
og úrgangi á sameiginlegan garð
við fjölbýlishús án þess að tala við
nágranna þína.“
Lét setja lögbann á
uppgræðslu lands
Ólafur Ólafsson í Samskipum lét setja lögbann á jarðvegslosun nágranna síns
á sameiginlegu landi þeirra. Skil ekki af hverju menn vilja stöðva landgræðslu,
segir nágranninn. Lögmaður Ólafs segir aðgerðirnar í óleyfi meðeigandans.
Aukafundur verður
haldinn í bæjarstjórn Akraness í
dag að kröfu þriggja fulltrúa
minnihlutans vegna samkomlags
bæjarráðs við Kalmansvík hf. um
útfærslu á sjö hektara landi.
„Við höfum ýmislegt út á þetta
samkomulag að setja. Það hefði
til dæmis verið eðlilegra að gera
deiliskipulag fyrir svæðið áður en
því var úthlutað,“ segir Hrönn
Ríkharðsdóttir, fulltrúi minnihlut-
ans í bæjarstjórn og ein þremenn-
inganna sem kröfðust þess að
boðað yrði til fundarins.
Kalmansvík hyggst byggja á
fjórða hundrað íbúðir fyrir
fimmtíu ára og eldri en að sögn
Hrannar hefur engin greining
verið gerð á því hversu mikil þörf
er á slíku húsnæði.
Deiliskipulag
liggur ekki fyrir
Stjórnvöld í
Bandaríkjunum og Indlandi hafa
komist að samkomulagi um að taka
upp samvinnu í kjarnorkumálum.
Yfirvöld í löndunum tveimur segja
að samkomulagið sé sögulegt.
Samkomulagið er niðurstaðan í
mánaðarlöngum samningaviðræð-
um sem grunnur var lagður að
fyrir tveimur árum síðan. Það
snýst aðallega um samstarf um
þróun kjarnorku sem ekki er notuð
í hernaðarlegum tilgangi, segir
öryggismálaráðgjafi Indlands, M.
K. Narayanan. Í því er til dæmis
ekkert minnst á hvort Indlandi
megi sprengja kjarorkusprengjur
í tilraunaskyni, en það hefur lengi
verið deiluefni á milli landanna,
segir Narayanan.
Með samkomulaginu mega
Bandaríkjamenn senda kjarnorku-
úrgang til Indlands og láta Ind-
verjum í té upplýsingar um tækni
til að framleiða kjarnorku. Í stað-
inn munu vopnaeftirlitsmenn fá að
rannsaka þau kjarnorkuver Ind-
lands sem ekki eru notuð í hernað-
arlegum tilgangi; þeir mega hins
vegar ekki rannsaka kjarnorkuver
hersins.
Þeir sem gagnrýna samkomu-
lagið segja að samvinna við Ind-
land á sviði kjarnorkumála gæti
enn frekar aukið á útbreiðslu
kjarnorkuvopna í heiminum, en
Indland byggði kjarnorkuáætlun
sína upp án þess að vera aðili að
samningnum um takmörkun á
útbreiðslu kjarnorku.
Samstarf í kjarnorkumálum
Karl, var frúin ekki bara að
biðja um skó?
Forseti Póllands,
Jaroslaw Kaczynski, hefur rekið
tvo embættismenn sem eru
meðlimir í minni stjórnarflokkun-
um tveimur í ríkisstjórn hans.
Aðgerð forsætisráðherrans hefur
aukið á þá spennu sem hefur verið
innan ríkisstjórnar hans síðustu
vikurnar. Kaczynski hefur sett
stjórnendum minni flokkanna
tveggja í ríkisstjórnni afarkosti:
að styðja stefnu flokks hans
ellegar eiga það á hættu að hann
slíti samstarfinu við þá.
Andrzej Lepper, stjórnandi
annars minni flokksins, sagði að
aðgerð Kaczynskis væri fyrsta
skrefið í þá átt að slíta ríkis-
stjórnarsamstarfinu.
Stjórnarslit lík-
leg í Póllandi
„Þetta mál sýnir í hnot-
skurn hvað þetta er fáránlegt
kerfi sem við búum við hér á
landi,“ segir Jóhannes Gunnars-
son, formaður Neytendasamtak-
anna, um þá ákvörðun Sláturhúss
Hellu að nýta ekki tollakvótann
sem það fékk úthlutað þegar tolla-
kvóti á innfluttu kjöti var boðinn
út í apríl.
„Þetta fær mann til þess að velta
því fyrir sér hvort þetta hafi allt
verið í plati. Áttum við kannski
aldrei að fá ódýru vöruna?“ spyr
Jóhannes, sem dregur í efa
ummæli forsvarsmanna Slátur-
hússins sem segjast hafa misskilið
útboðsreglurnar. Hann segir að
kerfið bjóði upp á að það sé mis-
notað og segir að fyrirtæki geti
séð sér leik á borði með því að
bjóða í kvótann til þess að losna
við innflutning annarra.
„Þegar þessi samningur við ESB
var kynntur átti hann að stuðla að
lægra vöruverði. Því miður var
kvótinn boðinn út og við neytend-
ur þurfum að gjalda fyrir það með
hærra vöruverði,“ segir Jóhannes,
sem telur réttlátara að útdeila
kvótanum með því að varpa hlut-
kesti.
Neytendasamtökin hafa ítrekað
lagt til að tollaútboðum verði hætt
enda megni þau ekki að lækka
vöruverð. „Innflytjendur bjóða
enn hærra verð í þessa kvóta en
þeir gera í almenna tollkvóta, svo
þessi leið er dæmd til að mistak-
ast. Kostnaðurinn sem verður við
útboðið fellur á neytendur,“ segir
Jóhannes.
Aðstoðarorkumálaráð-
herra Bandaríkjanna, Alexander
Karsner, heimsótti Ísland í gær
og fundaði
með Össuri
Skarphéðins-
syni iðnaðar-
ráðherra.
Helsta
umræðuefni
þeirra var
nýting
jarðvarma og
samstarf
ríkjanna
tveggja í
orkumálum.
„Við vorum
að ræða mögulegt samstarf
ríkjanna og ég nefndi sérstaklega
djúpborunarverkefni sem við
erum að reka og í ljós kom að þeir
eru með mjög skylt verkefni í
gangi,“ segir Össur.
„Við höfum átt mikið samstarf í
öryggismálum, en nú má segja að
því sé lokið með brottför hersins.
Því má segja að samstarf á sviði
jarðhita sé kjörið sem einn af
burðarásum í samstarfi okkar í
framtíðinni,“ segir Össur.
Samstarf um
nýtingu jarðhita
Vodafone og Nova hafa
samið um samnýtingu farsíma-
kerfa. Vodafone fær aðgang að
nýju dreifikerfi Nova fyrir þriðju
kynslóð farsíma (3G) og Nova fær
á móti aðgang að GSM farsíma-
kerfi Vodafone.
Í tilkynningu til Kauphallar
kemur fram að stjórnir Og
fjarskipta og Nova telji að
samningurinn feli í sér verulegt
hagræði fyrir bæði félögin.
„Samkomulagið er í samræmi við
útboðslýsingu Póst- og fjarskipta-
stofnunar fyrir 3G tíðniheimildir
sem veitir rétthöfum svigrúm til
samnýtingar á dreifikerfum,“
segir þar.
NOVA og Voda-
fone saman í 3G
Bíll sem var vel merktur
Saving Iceland-hópnum lenti í
umferðaróhappi síðdegis í gær.
Bíllinn var að beygja frá Garða-
stræti inn á Vesturgötu en ekki
vildi betur til en svo að ökumað-
urinn náði ekki beygjunni og
klessti á hús við Vesturgötu.
Auglýsingastofan Jónsson &
Le´macks hefur aðsetur í húsinu
sem klesst var á. Starfsmenn
stofunnar halda úti bloggi og
sögðu á gamansaman hátt frá
atburðunum. „Hvort þetta
uppátæki sé liður í mótmælenda-
seríu hópsins vitum við ekki
enn,“ segir á blogginu.
Náðu ekki
beygjunni