Fréttablaðið - 28.07.2007, Blaðsíða 54
Sagan um Duke Nukem Forever
er í senn sorgleg og hlægileg. Í
nokkur ár eftir að leikurinn var
kynntur árið 1997 biðu tölvu-
leikjaunnendur hans með mikilli
eftirvæntingu. Tilkynningum um
seinkun útgáfu hans var mætt
með vonbrigðum, gráti og
gnístran tanna.
Eftir því sem árin liðu afskrif-
uðu fleiri og fleiri leikinn og
hættu að taka mark á fréttum um
þróun hans. Þegar tilkynningar
um frekari seinkanir bárust
hlustuðu fáir, en öðrum var sama.
Nú þegar meira en tíu ár eru
liðin síðan þróun leiksins hófst,
eru fleiri farnir að fylgjast með
fréttum um leikinn. Það er þó
ekki af einskærum áhuga á
leiknum sjálfum heldur eingöngu
til þess að geta hlegið að
vitfirringu framleiðendanna og
óbilandi baráttu þeirra við að
gera leik sem kemur líklega
aldrei út.
Á tíu árum hefur Duke Nukem
Forever spilað á nánast allan
tilfinningaskala leikjaunnenda,
frá eftirvæntingu til áhugaleysis,
frá vonbrigðum til skellihláturs.
Hér verður farið yfir sorgarsögu
þessa leiks.
„Ég man vel eftir upprunalega
Duke Nukem 3D, og spilaði
meira að segja gömu tvívíddar-
leikina sem komu á undan
honum,“ segir Ólafur Þór
Jóelsson, annar umsjónarmaður
tölvuleikjaþáttarins Game Tíví á
Skjá einum. „Ég hlakkaði mikið
til að spila Duke Nukem
Forever þegar hann var fyrst
kynntur. Persónan var eitthvað
svo ofursvöl og grafíkin þótti
nokkuð góð á þeim tíma.“
Hann segist hafa misst
áhugann á leiknum hægt og
rólega með
árunum, en
hann hafi enn
trú á því að
hann komi út.
„Ég held enn
þá í vonina, en
þeir þurfa að
töfra eitthvað
svakalegt
fram til að
hann verði
góður. Það hefur svo ótrúlega
mikið breyst á tíu árum í
leikjaheiminum.“
Heldur enn í vonina um útgáfu
Duke Nukem 3D var einn vinsælasti tölvuleikur heims þegar hann kom út 1996. Ári
síðar byrjuðu framleiðendurnir, 3D Realms, á framhaldsleik sem átti að skjóta fyrir-
rennaranum ref fyrir rass. Hann er ekki enn kominn út. Salvar Þór Sigurðarson fór yfir
(harm)sögu Duke Nukem Forever nú þegar leikurinn hefur verið í framleiðslu í rúm tíu ár.